góðan daginn!
þannig er mál með vexti að ég er mikið að spá í bílakaupum,
hef verið að skoða galant því það er japanskt og á að vera svo ótrúlega gott uppá bilunartíðni og þ.h.
Svo náttúrulega er alltaf freystandi að skella sér á bmw! kraftmikið, lookar geðveikt vel og ekki svo náttúrulega akustureiginleikar og þægindi.
Þá fóru félagar að segja við mig, neii ekki fá þér bimma þetta bilar svo ógeðslega mikið þú ferð bara á hausinn, segja svo að skiptingarnar eru mjög oft og fara og heddið og það allt.
það væri náttúrulega meiriháttar tjón og kæmi bíllinn þá til með að vera inní skúr í fleiri fleiri mánuði.
þannig er mál með vexti að ég er vinnandi maður þannig að ég tými alveg að borga bensínpeningana þannig að það angrar mig ekkert.
Ég er nokkuð skynsamur þannig að ég kæmi ekki til með að spóla eins og óður hestur.
var að pæla í BMW 540i A 96 - 8 árgerð og flytja inn?
Það væri alveg snilld ef þið getið sagt mér álit ykkur, deilt reynslu ykkar svo ég loksins nái áttum á þessu öllu saman
