Page 1 of 1
Veit einhver hvað er eðlilegt verð fyrir þetta

Posted:
Thu 04. Sep 2003 01:00
by SpeedGirl
BMW 750, árg 91, ekinn um 260 þús (og það alltsaman í þýskalandi)
Lakk óaðfinnanlegt (svartur) nánast ósnert buffaló leður (grátt) ssk, sími, talva on board, 17" felgur, rafmagn í öllu, topplúga, þjófavörn, cd spilari, hægt að loka öllum gluggum og topplúgu með hnappi á þjófavarnarkippunni. Algerlega óryðgaður og vel með farinn????
Anyone?

Posted:
Thu 04. Sep 2003 08:41
by bebecar
Það er voðalega erfitt að segja til um það. Ef hann stenst mekkaníska skoðun og er ótjónaður þá kannski 700-800 þús??? Jafnvel minna, þessir bílar eru ekki eftirsóttir og því eru hörku góð kaup í þeim.

Posted:
Thu 04. Sep 2003 09:20
by flamatron
OBC, On board Computer...

Posted:
Thu 04. Sep 2003 09:27
by bebecar
Reynið þið að hjálpa stúlkunni með að finna rétt verð á þetta


Posted:
Thu 04. Sep 2003 09:31
by GHR
Það er ekkert hægt að segja til um verðið, bílarnir eru jafn mismunandi og fólk

Ég meina kannski er þetta eins stráheilt eintak og einn hérna á spjallinu sem er að selja óaðfinnalegan M3

Og kannski er þetta bara venjulegt eintak.......
Hvað er ásetta verðið??? Síðan er ágætt regla að prútta það um 150-200þús og þá er eigandinn sáttur


Posted:
Thu 04. Sep 2003 18:29
by saemi
Þú ættir að borga á milli 3 og 5 þúsund EUR fyrir svona bíl.
http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... 15318&rd=1
Sæmi

Posted:
Fri 05. Sep 2003 00:11
by Bjarki
Hvar er verið að selja þennan bíl og hver var að flytja hann inn?

Posted:
Fri 05. Sep 2003 00:21
by SpeedGirl
þessi bíll er allavega til sölu. langaði bara að heyra hvað er svona CA verð á þetta. Þetta er stráheilt eintak... Nánast eins og nýr.

Posted:
Fri 05. Sep 2003 09:02
by Bjarki
Er hann á bílasölu, var hann í blaðinu????
ég er ekki að fara að kaupa hann á undan þér eða eitthvað þannig bara forvitni..

Posted:
Fri 05. Sep 2003 13:58
by SpeedGirl
Hann er ekki í neinu blaði............ afhverju þessi forvitni?

Posted:
Fri 05. Sep 2003 14:04
by SpeedGirl
Hann er reyndar ekki heldur á sölu, né á söluskrá...
Ennþá.
Og ekkert víst að hann verði settur á sölu...

Posted:
Sat 06. Sep 2003 11:43
by morgvin
hann er semsagt á landinu....
hélt þú værir bara að skoða á mobil eða eitthvað.
750-900k er bara svona eðlilegt verð að ég held.