Page 1 of 3

Ert þú einn af sauðunum...

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:33
by zazou
sem raukst til í dag og lést þig hafa það að bíða í biðröð eftir því að komast inn á dekkjaverkstæði?

Image

Læt könnunina malla í 3 daga, því ætti 'í dag' tilvísunin að halda.

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:35
by gunnar
Hell no, bmwinn er ekki vetrarbíll og upphækkaði go kartinn er á míkróskornu.

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:36
by ValliFudd
Ég verslaði mér ódýr notuð dekk í sumar því hin kláruðust í kvartmílunni. Spáði lítið í hvernig þau voru, enda bara ódýr dekk til bráðabyrgða. Svo tók ég eftir því í dag að þetta eru bara þessi fínu heilsársdekk og helvíti gott grip í morgun bara :lol:

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:37
by Aron Andrew
Ónei, ég beið sko ekki í biðröð, hringdi í morgun og pantaði tíma fyrir bílinn hennar mömmu, fólk var ótrúlega fúlt á svipinn þegar ég kom kl 17 og keyrði framhjá 60 bíla röð og beint inn :lol:

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:40
by Lindemann
neinei, ég keyri Zetorinn bara á sumardekkjunum þangað til það hættir að vera biðröð á dekkjaverkstæðunum...........ekki séns að ég nenni að bíða í biðröð.

ætli ég hendi ekki vetrardekkjunum undir einhverntíman fyrir áramót :lol:

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:45
by zazou
Aron Andrew wrote:Ónei, ég beið sko ekki í biðröð, hringdi í morgun og pantaði tíma fyrir bílinn hennar mömmu, fólk var ótrúlega fúlt á svipinn þegar ég kom kl 17 og keyrði framhjá 60 bíla röð og beint inn :lol:

:king:

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 21:58
by jens
Allt klárt á felgum, en ætla að bíða þetta af mér.

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:05
by Saxi
Iss nei, en voðalega fer einar að verða þreyttur á þessu spóli :lol:

Kveðja

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:10
by KFC
Vona að ég komist á vetardekkin á morgun. Kost ekki inn á planið heima og þar af leiðandi ekki inn í bílskúr :x

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:12
by Aron Andrew
Ég mæli með að hringja bara snemma um morguninn og panta tíma þegar manni hentar, vonlaust að hanga í þessum helvítis röðum.

Ein gamla konan sem var að bíða þegar ég kom var eitthvað að forvitnast um það hvenar hún kæmist að, þá voru 30 bílar í hana og hún búin að bíða síðan 14, klukkan var 17 þegar ég kom :shock:

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:22
by bjahja
Það er að hitna aftur, snjórinn er ekki kominn til að vera :wink:

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:25
by jens
Er að horfa á veðurfréttir núna, samkvæmt því verður 18m/s og snjókoma á morgun og næstu daga.

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:25
by Aron Andrew
jens wrote:Er að horfa á veðurfréttir núna, samkvæmt því verður 18m/s og snjókoma á morgun og næstu daga.


Bara stuð 8)

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:30
by bjahja
Ekki gera þau mistök að hlusta á veðurfréttirnar, hlustið á mig 8)

PostPosted: Mon 29. Oct 2007 22:33
by HPH
DEMN ég þarf að drífa mig að fá mér eitthvað á 33"+ :shock:
HELST Land Róver.