Ég var að fá fyrsta greiðsluseðilinn fyrir tryggingu á bimmanum og ég er
ekki alveg að fíla þessar upphæðir.
Sundurliðun greiðslu
Ábyrgðartrygging ökutækis.....................kr. 243.236
Bónus 20%.............................................kr. -48.647
Slysatrygging ökumans og eiganda........kr. 13.801
Iðgjald framrúðutrygging.........................kr. 5.308
Samtals til greiðslu..................................kr. 213.698
Þetta er alveg út í hött. Hvernig í ósköpunum fær Sjóvá Almennar þeð út
að 18 ára gutti sem er í skóla geti borgað svona upphæð með mánaðar
fyrirvara.
Hvað eru þið að borga í tryggingar á ári og hvernig stendur bónusinn ???

