bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vetrardekk, verð, gæði, hvar? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=25033 |
Page 1 of 6 |
Author: | Einarsss [ Wed 17. Oct 2007 16:47 ] |
Post subject: | Vetrardekk, verð, gæði, hvar? |
Er að leita mér að vetrardekkjum og langaði að fá smá umræður í gang varðandi verð og gæði Er að skoða núna hvort það myndu borga sig að taka dekk að utan af t.d tirerack Michelin X-Ice 225/50/16, þau eru að mér sýnist vera fá ágætis dóma og kosta um 535$ komin til shopusa og gera þá um 75 þúsund miðað við gengið í dag. Hóflegt verð? Vita menn um góð dekk á betra verði? Sá líka í blaðinu 24 stundir að sólning var með hæsta umfelgunar verðið eða 6300kall. Nokkuð örrugt að ég fari ekki aftur þangað. Enda brá mér þegar ég fékk reikninginn hjá þeim síðast. |
Author: | ömmudriver [ Wed 17. Oct 2007 17:02 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta mjög gott verð miðað við það að ég keypti fjögur 15" Michelin Alpin vetradekk hjá Hjólbarðahöllinni á tæpar 100 þús. kr. En aftur á móti eru það bestu vetradekk sem ég hef keyrt um á og það í alls kyns vetrarfærð og mæli hiklaust með þeim ![]() |
Author: | Kristjan [ Wed 17. Oct 2007 17:08 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Mér finnst þetta mjög gott verð miðað við það að ég keypti fjögur 15" Michelin Alpin vetradekk hjá Hjólbarðahöllinni á tæpar 100 þús. kr. En aftur á móti eru það bestu vetradekk sem ég hef keyrt um á og það í alls kyns vetrarfærð og mæli hiklaust með þeim
![]() ERTU EKKI AÐ DJÓKA? Borgaðirðu 25 þúsund kall á dekk???? |
Author: | ömmudriver [ Wed 17. Oct 2007 17:14 ] |
Post subject: | |
Kristjan wrote: ömmudriver wrote: Mér finnst þetta mjög gott verð miðað við það að ég keypti fjögur 15" Michelin Alpin vetradekk hjá Hjólbarðahöllinni á tæpar 100 þús. kr. En aftur á móti eru það bestu vetradekk sem ég hef keyrt um á og það í alls kyns vetrarfærð og mæli hiklaust með þeim ![]() ERTU EKKI AÐ DJÓKA? Borgaðirðu 25 þúsund kall á dekk???? Ég var kind of á nýkeyptum lækkuðum E34 525iA á rennisléttum sautján tommu sumardekkjum í bænum þegar að mother of all vetrarófærðum kíkti í heimsókn á meðan ég var þar enda rétt komst ég upp brekkuna að Hjólbarðahölinni. Mig minnir að það hafi tekið starfsmenn hallarinnar um hálftíma að finna dekk og felgur sem pössuðu undir bílinn ![]() ![]() En ég keypti s.s. sett af nýjum AEZ felgum og Michelin Alpin vetradekkjum á 199.xxx kr. Þannig að dekkin gætu hafa kostað minna ![]() |
Author: | Djofullinn [ Wed 17. Oct 2007 17:21 ] |
Post subject: | |
Keyptiru 15" felgur og dekk á 200 þúsund!?!??!?!?!!!!??!!! ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Svezel [ Wed 17. Oct 2007 17:24 ] |
Post subject: | |
þvílík rassmök!!! ég keyrði síðasta vetur á toyo observe plus frá nesdekk, þau virkuðu fínt og kostuðu um 40k gangurinn í 16". ekkert bestu eða verstu dekkin en ég komst allt |
Author: | gstuning [ Wed 17. Oct 2007 17:31 ] |
Post subject: | |
Held að "shop around" eigi við hér, |
Author: | Saxi [ Wed 17. Oct 2007 17:44 ] |
Post subject: | |
Afturdrif + Dunlop winter sport M3 eða D3 = snilld Og ódýrari en michelin á tirerack. |
Author: | Zeus [ Wed 17. Oct 2007 18:03 ] |
Post subject: | |
Saxi wrote: Afturdrif + Dunlop winter sport M3 eða D3 = snilld
Og ódýrari en michelin á tirerack. Þessi dekk eru mjög góð. Var með þessi dekk síðata vetur. Hver er með Dunlop á Íslandi? |
Author: | Stanky [ Wed 17. Oct 2007 18:05 ] |
Post subject: | |
Zeus wrote: Saxi wrote: Afturdrif + Dunlop winter sport M3 eða D3 = snilld Og ódýrari en michelin á tirerack. Þessi dekk eru mjög góð. Var með þessi dekk síðata vetur. Hver er með Dunlop á Íslandi? Veit að vel flestar golfbúðir selja Dunlop golfbolta, ef það hjálpar eitthvað. |
Author: | srr [ Wed 17. Oct 2007 20:15 ] |
Post subject: | |
Zeus wrote: Saxi wrote: Afturdrif + Dunlop winter sport M3 eða D3 = snilld Og ódýrari en michelin á tirerack. Þessi dekk eru mjög góð. Var með þessi dekk síðata vetur. Hver er með Dunlop á Íslandi? Enginn sem sinnir innflutningi á Dunlop hér á landi. Hekla hefur verið með eitthvað pínu lítið úrval. |
Author: | einarornth [ Wed 17. Oct 2007 20:16 ] |
Post subject: | |
Ég var að fá dekk sem ég pantaði frá Tirerack í gegnum ShopUSA. Fékk 4 Bridgestone Blizzak (225/75/15, á jeppling) á svona 70k hingað komið með flugflutningi (7000k auka). Einnig var í pakkanum 4 geymslupokar fyrir dekk og e-ð vetrarsett með startköplum og svoleiðis. Ég athugaði svo sem ekki verðið hérna, en fyrir 2 árum keypti ég sams konar dekk á fólksbíl á 80k. Ég var mjög ánægður með þessa tegund á fólksbílnum, alveg jafn góð og nagladekk, menga minna og hljóðlátari. [EDIT] Eitt sem ég gleymdi, ShopUSA var að hækka verðið á dekkjaflutningum. Ef ég slæ inn upphæðina sem ég borgaði Tirerack í reiknivélina þeirra núna þá fæ ég 11k hærra verð en ég borgaði. ![]() |
Author: | Dóri- [ Wed 17. Oct 2007 20:17 ] |
Post subject: | Re: Vetrardekk, verð, gæði, hvar? |
einarsss wrote: ... Sá líka í blaðinu 24 stundir að sólning var með hæsta umfelgunar verðið eða 6300kall. Nokkuð örrugt að ég fari ekki aftur þangað. Enda brá mér þegar ég fékk reikninginn hjá þeim síðast. Fékk nú umfelgun hjá þeim á 17" á 8900krónur með 15% afslætti tóku eitthvað spes gjald því að þeim fannst svo erfitt að umfelga dekk á þessum felgum og btw rispuði 2 af þeim. ![]() |
Author: | Misdo [ Wed 17. Oct 2007 20:20 ] |
Post subject: | |
keypti 15 '' Pirelli nagladekk í max 1 á 40 þús með afslætti reyndar enn ég er sáttur |
Author: | srr [ Wed 17. Oct 2007 20:37 ] |
Post subject: | |
Samt er það þannig í dekkjum.... Verð og gæði fara saman. Dýru dekkin eru einfaldlega endingarmeiri og mun betri hvað öryggi varðar. Svo þessi SVAKA verðmunur kemur til baka í lengri endingartíma dekkjanna og meira öryggi í þokkabót. Just my two cents. |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |