bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Stelpuleikdagur 21 okt. Leikdagur no 28
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24852
Page 1 of 5

Author:  Porsche-Ísland [ Tue 09. Oct 2007 23:42 ]
Post subject:  Stelpuleikdagur 21 okt. Leikdagur no 28

Þá er komið að því, Sunnudaginn 21. okt verður haldinn leikdagur þar sem stúlkur fá að njóta sín.

Fyrirkomulag veður eins og vengjulega.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Sunnudaginn 21. okt.verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við munum hafa opið frá 13-17.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

Author:  RebekkaB [ Wed 10. Oct 2007 00:31 ]
Post subject: 

Mig langar svo að prófa...en er svo hrædd um að velta bílnum :oops:

Author:  Axel Jóhann [ Wed 10. Oct 2007 00:32 ]
Post subject: 

Trúðu mér, ef það væri einhver mikil hætta á því þá væri alveg ÖRUGGLEGA einhver búinn að velta, og það oft. :lol: :)

Author:  Angelic0- [ Wed 10. Oct 2007 00:33 ]
Post subject: 

Velta bílnum... er þetta ekki bara spurning um að fá einhvern í að taka leiðsöguhring með þig ???

Sýna þér hvernig á að keyra brautina..

Mæli einnig með því að þú verðir þér út um spól-dekkjagang ef að þú ætlar í þannig æfingar...

Author:  Aron Andrew [ Wed 10. Oct 2007 00:54 ]
Post subject: 

Mega strákar ekki keyra?

Author:  Kristjan [ Wed 10. Oct 2007 01:01 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Mega strákar ekki keyra?


Hvaða part af stelpuleikdagur náðirðu ekki? :lol:

Author:  Aron Andrew [ Wed 10. Oct 2007 01:04 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Aron Andrew wrote:
Mega strákar ekki keyra?


Hvaða part af stelpuleikdagur náðirðu ekki? :lol:


Þessu þarna með stelpurnar :lol:

Author:  Porsche-Ísland [ Wed 10. Oct 2007 08:57 ]
Post subject: 

Ef það eru eitthver vafaatriði um hvort ökumaðurinn er kvennkyns þá tel ég okkur hæfa til að dæma um það,,

Aron þú sleppur ekki framhjá okkar matsmönnum,, það er ég öruggur um.

Author:  arnibjorn [ Wed 10. Oct 2007 09:00 ]
Post subject: 

Ohh ég væri geðveikt til í að láta Árný keyra 335 þarna :P

Verst að hann verður pottþétt ekki kominn saman 21. okt

Author:  ValliFudd [ Wed 10. Oct 2007 09:17 ]
Post subject: 

Dem, verðum erlendis, annars væri Árný mín alveg pottþétt til í að keyra :)

Author:  Porsche-Ísland [ Wed 10. Oct 2007 10:44 ]
Post subject: 

http://vefblod.visir.is/index.php?s=1345&p=37393

Author:  Ingsie [ Wed 10. Oct 2007 10:46 ]
Post subject: 

Flottur 8)

Author:  jens [ Wed 10. Oct 2007 10:47 ]
Post subject: 

Sá þetta í blaðinu í morgun, glæsilegt.

Author:  arnibjorn [ Wed 10. Oct 2007 10:49 ]
Post subject: 

Porsche-Ísland wrote:
http://vefblod.visir.is/index.php?s=1345&p=37393


Þetta er alveg glæsilegt maður!! :clap: :)

Author:  Aron Andrew [ Wed 10. Oct 2007 11:06 ]
Post subject: 

Gaman að sjá aukna umfjöllun um þetta :)

Alltaf að verða stærra og stærra batterí 8)

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/