bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur no.27 á Akstursbraut 14 okt.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24850
Page 1 of 1

Author:  Porsche-Ísland [ Tue 09. Oct 2007 23:36 ]
Post subject:  Leikdagur no.27 á Akstursbraut 14 okt.

Veðurspáinn lofar eitthverju en hverju er ekki sama. Við munum skemmta okkur hvernig sem hún verður.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Sunnudaginn 14. okt.verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við munum hafa opið frá 13-17.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

Author:  Alpina [ Sun 14. Oct 2007 01:06 ]
Post subject: 

Wet ????

Author:  IvanAnders [ Sun 14. Oct 2007 02:06 ]
Post subject: 

Jæja..... ég kem og keyri í fyrsta sinn... EF að það rignir!!! :oops:

Author:  Benzari [ Sun 14. Oct 2007 11:50 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Wet ????


Very!

Author:  F2 [ Sun 14. Oct 2007 13:04 ]
Post subject: 

Brautin er blaut enn það er sól útfrá og ætti brautin að þorna fljótlega þegar fólk byrjar að keyra 8)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/