Svo er mál með vexti að það var bakkað á minn bíl úr stæði þann 7 sept
þetta atvikaðist þannig að ég bakkaði upp götuna þar sem klúbburinn gamli er.
Ég bakkaði réttum meginn eins og ég myndi keyra upp götuna þannig ég myndi ekki bakka á móti umferð.
Enn þá kemur bíll að bakka úr stæði og bakkar á minn bíl í hliðina á afturbrettinu og sést á bílnum að farið hafi verið í mitt brettið
löggan kemur og tekur skýrslu.
Sá sem bakkar á mig segjist hafa stoppað flautað á mig því hann segjist hafa séð mig, enn ég var aldrei var við þetta flaut hjá honum og hefði hann nátturlega aldrei bakkað á mig ef hann hefði séð mig og flautað.
Enn svo kemur Vís inní þetta þar sem báðir bílar eru tryggðir,
þau hjá vís dæma þetta 50/50 sem mér fynnst alveg útí hött þar sem það er bakkað á mig og sá sem bakkar úr stæði er aldrei í rétti og svo var ökumaður bílsins sem bakkaði á mig með útrunnið Ökuskýrteini,
sem er annað dæmi um að hann eigi ekki að vera í neinum rétti
þannig hver ætti að fá þetta 100% bætt.
Er alveg viss um að hefði hinn bíllinn verið í öðru tryggingar félagi hefði þetta verið dæmt í minn hag, enn þar sem bílarnir eru hjá sama tryggingarfélagi vilja þeir náttulega ekki tapa neinu.
Er alveg hundfúll útí þetta rugl og ætla ég með þetta lengra.


