Page 1 of 4

Allir í bankann að gefa blóð!

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 22:25
by iar
Var að heyra að þau væru í vandræðum í Blóðbankanum. :-(

Hvernig væri nú að drífa sig í heimsókn í Blóðbankann og fá sér kaffi og meððí og gefa blóð!

Mæli með að allir skreppi og gefi nokkra dropa, okkur munar ekkert um það!


Blóðbankinn flutti nýlega og er núna við Snorrabraut 60 (gamla Skátahúsið). Mynd og kort má finna hér

Afgreiðslutími:
mánudaga og fimmtudaga: 8:00-19:00
þriðjudaga og miðvikudaga: 8:00-15:00
föstudaga: 8:00-12:00


Það er aldrei að vita nema einhver sem við þekkjum vel þurfi á því að halda á morgun. :idea:


kv. Ingimar

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 22:43
by Steini B
Flott að minnast á þetta, og ég mundi hiklaust gefa blóð ef ég gæti...

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 22:53
by Knud
Sama hér, er með bráðaofnæmi og má ekki gefa blóð :(

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 23:09
by Tommi Camaro
Knud wrote:Sama hér, er með bráðaofnæmi og má ekki gefa blóð :(

við hverju :?:

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 23:11
by SteiniDJ
Ég er svo hræddur við nálar. :o En það er satt, maður veit aldrei hvenær það gæti orðið stórslys og fólk þyrfti nauðsynlega blóð.. Kannski maður bara horfi framhjá óttanum :P

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 23:14
by Knud
Tommi Camaro wrote:
Knud wrote:Sama hér, er með bráðaofnæmi og má ekki gefa blóð :(

við hverju :?:


Bráðaofnæmi fyrir öllum fisk. Þá má víst ekki gefa blóð

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 23:23
by ///MR HUNG
Knud wrote:
Tommi Camaro wrote:
Knud wrote:Sama hér, er með bráðaofnæmi og má ekki gefa blóð :(

við hverju :?:


Bráðaofnæmi fyrir öllum fisk. Þá má víst ekki gefa blóð
Sveeekkkjandi...Er að háma í mig dýrindis harðfisk núna :drool:

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 23:27
by Siggi H
AMG er á heiðurslista þarna, er ekki boðið uppá áfengi? rennur betur blóðið þá..

PostPosted: Wed 03. Oct 2007 23:58
by einarornth
Knud wrote:Sama hér, er með bráðaofnæmi og má ekki gefa blóð :(


Sama hér, hafði reyndar gefið nokkrum sinnum þegar þetta uppgötvaðist.

PostPosted: Thu 04. Oct 2007 00:01
by gunnar
Það þarf ekkert að vera að þið vitið þetta, en ef ég er með bráðaofnæmi fyrir morfíni má ég þá gefa blóð ?

PostPosted: Thu 04. Oct 2007 00:04
by Lindemann
best að tala bara við liðið í blóðbankanum.......ættu að vita þetta þar

PostPosted: Thu 04. Oct 2007 01:13
by Dohc
fór þarna og gaf prufu því ég hafði aldrei farið áður, og ég hélt það myndi líða yfir mig :lol:
ekki það að ég sé hræddur við nálar eða svoleiðis,
þetta litla blóðmagn sem fór út var nóg til þess að ég var bara slappur :oops: :lol:

þarf samt að fara aftur og gefa meira :D

PostPosted: Thu 04. Oct 2007 08:03
by jens
Gef reglulega blóð, þetta er nauðsynlegt maður veit aldrei hvenær maður þarf blóð eða einhver sem stendur manni nálægt.

PostPosted: Thu 04. Oct 2007 08:08
by gunnar
Dohc wrote:fór þarna og gaf prufu því ég hafði aldrei farið áður, og ég hélt það myndi líða yfir mig :lol:
ekki það að ég sé hræddur við nálar eða svoleiðis,
þetta litla blóðmagn sem fór út var nóg til þess að ég var bara slappur :oops: :lol:

þarf samt að fara aftur og gefa meira :D


Og þú ert nú ekki minnsti maðurinn á plánetunni :shock:

PostPosted: Thu 04. Oct 2007 10:00
by Aron Fridrik
ætlaði að gefa blóð einu sinni.. en vantaði viku í að ég yrði 18 þannig að ég mátti það ekki..

hitt skiptið var röðin orðinn svo löng að þau gatu ekki tekið við mér :P