bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 30. May 2025 05:23

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject: Vís tryggingarfélag
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 14:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36
Posts: 1586
Svo er mál með vexti að það var bakkað á minn bíl úr stæði þann 7 sept
þetta atvikaðist þannig að ég bakkaði upp götuna þar sem klúbburinn gamli er.
Ég bakkaði réttum meginn eins og ég myndi keyra upp götuna þannig ég myndi ekki bakka á móti umferð.
Enn þá kemur bíll að bakka úr stæði og bakkar á minn bíl í hliðina á afturbrettinu og sést á bílnum að farið hafi verið í mitt brettið
löggan kemur og tekur skýrslu.
Sá sem bakkar á mig segjist hafa stoppað flautað á mig því hann segjist hafa séð mig, enn ég var aldrei var við þetta flaut hjá honum og hefði hann nátturlega aldrei bakkað á mig ef hann hefði séð mig og flautað.
Enn svo kemur Vís inní þetta þar sem báðir bílar eru tryggðir,
þau hjá vís dæma þetta 50/50 sem mér fynnst alveg útí hött þar sem það er bakkað á mig og sá sem bakkar úr stæði er aldrei í rétti og svo var ökumaður bílsins sem bakkaði á mig með útrunnið Ökuskýrteini,
sem er annað dæmi um að hann eigi ekki að vera í neinum rétti

þannig hver ætti að fá þetta 100% bætt.

Er alveg viss um að hefði hinn bíllinn verið í öðru tryggingar félagi hefði þetta verið dæmt í minn hag, enn þar sem bílarnir eru hjá sama tryggingarfélagi vilja þeir náttulega ekki tapa neinu.
Er alveg hundfúll útí þetta rugl og ætla ég með þetta lengra.

_________________
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 14:50 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Ég myndi segja að þú værir klárlega í rétti þar sem HANN bakkaði á þinn bíl en ekki öfugt.

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 14:58 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 25. Jun 2007 09:37
Posts: 137
Hringdu í annað tryggingarfélag og spurðu hvernig þeir myndu dæma þetta ef bílanir væru hjá sitthvoru tryggingarfélaginu. Reyndu helst að fá það í email eða eitthvað og nuddaðu því svo framaní þá hjá VÍS 8) Er ekki einhver óháður staður þar sem hægt er að leggja fram formlega kvörtun/kæru? Hlýtur að vera einhver stofnun sem er yfir tryggingafélögum..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 15:12 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Rakst á þetta.:

SÍT wrote:
Ágreiningur getur risið milli annars vegar vátryggingafélaga og hins vegar þeirra, sem telja sig eiga rétt til vátryggingarbóta. Ætíð er unnt að skjóta slíkum ágreiningi til almennra dómstóla. Sú leið er þó iðulega bæði tímafrek og kostnaðarsöm, og af þeim ástæðum oft ekki fýsileg fyrir neytendur. Samband íslenskra tryggingafélaga (SÍT) og aðildarfélög þess, í samstarfi við stjórnvöld og samtök neytenda, hafa því á markvissan hátt byggt upp kerfi, sem ætlað er á faglegan hátt, en þó skjótvirkan og ódýran, að leysa úr ágreiningi við vátryggingafélög án milligöngu dómstóla. Í hnotskurn er ferlið þetta:

1. Vátryggingafélag. Tjónadeild.
Takist ekki að ná niðurstöðu um bótaskyldu, sök eða sakarskiptingu við starfsmenn vátryggingafélagsins, oftast starfsmenn tjónadeildar, er unnt að fara þess á leit að félagið sjálft leggi málið fyrir Tjónanefnd vátryggingarfélaganna.

2. Tjónanefnd vátryggingarfélaganna.
Hún er skipuð lögfræðingum, sem tilnefndir eru af aðildarfélögum SÍT. Er nefndin vistuð hjá SÍT. Þeir aðilar máls, sem eru ósáttir við afgreiðslu félags á kröfu um vátryggingarbætur, geta óskað eftir því, að félagið leggi málið fyrir nefndina. Slíkt málskot er mönnum að kostnaðarlausu. (Meira)

3. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum.
Vilji menn ekki sættast á niðurstöðu tjónanefndar, er unnt að skjóta málinu áfram til úrskurðarnefndarinnar. Hana skipa þrír lögfræðingar, sem tilnefndir eru af viðskiptaráðuneytinu, Neytendasamtökunum og SÍT. Nefndin er vistuð hjá Fjármálaeftirlitinu. Fylla þarf út sérstakt eyðublað vegna málskots til úrskurðarnefndarinnar, sem fá má hjá vátryggingafélögunum, Fjármálaeftirlitinu, SÍT eða Neytendasamtökunum. Eyðublaðinu og fylgigögnum ber að skila til Fjármálaeftirlitsins ásamt málskotsgjaldi, nú að fjárhæð kr. 5.000,-. Gjaldið er endurgreitt verði niðurstaðan málskotsaðila í hag að öllu leyti eða hluta. Hægt er sækja formið hér. (Meira).

Árétta ber sérstaklega, að réttur manna til að skjóta ágreiningsmálum til almennra dómstóla skerðist ekki, þótt málinu hafi verið skotið til tjónanefndar og/eða úrskurðarnefndar.


http://www.sit.is/


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 15:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
eiginlega sömu aðstæður fyrir mig, bíll bakkar inní hliðina á mér uppí kringlu. Ég er dæmdur í 100% rétti

reyndar sagðist gerandi vera ábyrgur og var ekki að þræta fyrir það.

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 15:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36
Posts: 1586
að þeir skulu bara hlusta á svona bull í hinum ökumanninum
um að hann hafi bakkað stoppað og flautað því hann segjist hafa séð mig ef hann hefði séð mig hefði hann aldrei bakkað á mig og tjónið á mínum bíl sínir alveg 100% að það var bakkað á mig því tjónið hjá mér er á miðju afturbrettinu enn tjónið á galant druslunni sem hinn var á er á hægra aftur horni sem sagt á horni stuðarans

_________________
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 15:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
mæli með að þú farir bara og talir við þá í eigin persónu. Miðað við frásögnina þá ætti eðlilega skynsöm manneskja að geta lagt saman 2+2 og fengið rétt úr þessu.

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 16:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
Var að lenda í sama í fyrra dag var bara sagt mér að ég mætti laga bílinn strax horfðu bara á þetta og þú ert í rétti

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 16:11 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Mon 28. Nov 2005 02:10
Posts: 122
Location: 105
Quote:
Ég bakkaði réttum meginn eins og ég myndi keyra upp götuna þannig ég myndi ekki bakka á móti umferð.


Þú bakkaðir sem sagt vitlausu megin á götunni?
Engu að síður ef hann var með útrunnið skírteini ætti ekki að skipta neinu máli hvernig þetta gerðist, heldur ætti hann alltaf að vera réttlaus.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 16:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36
Posts: 1586
Omar wrote:
Quote:
Ég bakkaði réttum meginn eins og ég myndi keyra upp götuna þannig ég myndi ekki bakka á móti umferð.


Þú bakkaðir sem sagt vitlausu megin á götunni?
Engu að síður ef hann var með útrunnið skírteini ætti ekki að skipta neinu máli hvernig þetta gerðist, heldur ætti hann alltaf að vera réttlaus.


ég bakkaði rétt upp ef ég hefði verið á hinum helmingnum hefði ég getað fengið bíl fyrir aftan mig enn ég bakka eins og umferðin gengur´bara í stað að keyra götuna upp þá bakkaði ég götuna upp

_________________
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 16:38 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Mon 13. Nov 2006 09:18
Posts: 185
En þú bakkar líka og þá er niðurstaðan eflaust 50/50 skv þeirra mati, þ.e.a.s. báðir bílstjórarnir aka aftur á bak. Einnig eru þetta líka svo er virðist orð gegn orði hvað varðar að hinn ökumaðurinn hafi stöðvað og flautað. Var ekkert vitni að atburðinum, ef ekki reyndu þá að áfrýja þessu áfram á tjónanefnd tryggingafélaganna.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 16:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36
Posts: 1586
kelirina wrote:
En þú bakkar líka og þá er niðurstaðan eflaust 50/50 skv þeirra mati, þ.e.a.s. báðir bílstjórarnir aka aftur á bak. Einnig eru þetta líka svo er virðist orð gegn orði hvað varðar að hinn ökumaðurinn hafi stöðvað og flautað. Var ekkert vitni að atburðinum, ef ekki reyndu þá að áfrýja þessu áfram á tjónanefnd tryggingafélaganna.


búið að fara í gegnum tjónanefnd og þau dæmdu þetta 50/50 enn get farið með þetta lengra
er einhvað sem heitir að banna bakka götu ?
og svo er hann að bakka úr stæði sem þýðir engin réttur
svo er hann líka með útrunnið skýrteini sem þýðir líka enginn r´´ettur og skil ég ekki hversveggna þetta sé dæmt 50/50
og jú er með fullt af vitnum af þessu enn tryggingarfélög dæma ekki af vitnum þá verður lögreglan að gera það



svo ætla ég að bæta einu við

í lögregluskýrslunni stendur að vinstra stuðara hornið hjá mér hafi skemmst
sem gerðist enn það gerðist mun meir afturbrettið beyglaðist og það kom sprunga í afturljósið

þannig skýrslan var röng enn ég er búinn að benda þeim á það og Þeir eru búnir að meta tjónið hjá tjóna nefnd enn dæma þetta samt 50/50 :?

_________________
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 17:02 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Feb 2006 12:01
Posts: 421
Ein spurning samt: Afhverju varstu að bakka upp götuna en ekki keyra bara áfram eins og allir aðrir?

_________________
Björgvin
BMW 540i E39
BMW 330D E46
Merceded Benz S320
Mercedes Benz 190E 2.6
Mercedes Benz C36 AMG
Mercedes Benz C320 Brabus
Mercedes Benz E320
Mercedes Benz 230 CE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 17:09 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ef þú varst á ferð afturábak þá held ég að það sé erfitt að dæma þetta öðruvísi en 50/50. Þú ert ALLTAF í órétti við að bakka.

Ef þú ert hins vegar kyrrstæður eftir að hafa verið að bakka... það er annað mál! Þá ættir þú að vera í rétti.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 03. Oct 2007 17:19 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 08. Aug 2007 10:31
Posts: 101
Hvað er þetta mikið tjón? Þarftu ekki að leggja út í lögfræðikostnað ef þú ætlar með málið lengra?

Þú verður að meta þetta út frá upphæð tjónsins, það er ekki gaman að fara með þetta fyrir dómstóla með tilheyrandi kostnaði og lenda svo í að þetta er bara dæmt 50/50 aftur.

Eins ósanngjarnt og það er, þá er besti kosturinn í stöðunni kannski sá að sætta sig við þetta og skipta um tryggingafélag. Ég hef lent í svipuðu og gerði það á endanum.

Ertu annars viss um að útrunnið ökuskírteini eigi að fela í sér 100% órétt? Ég er ekki svo viss um það, hélt að það þýddi bara sekt en að ökumaður sé samt enn með ökuleyfi þó sjálft ökuskírteinið væri útrunnið. En ég er svo sem enginn lögfræðingur.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group