bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E32 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24502 |
Page 1 of 1 |
Author: | Tension Head [ Sun 23. Sep 2007 18:57 ] |
Post subject: | BMW E32 |
þar sem mér finnst e32 bodyið eitt fallegasta og mest vel heppnaðasta body frá BMW útlitslega séð þá ætla ég vonandi að láta drauminn rætast og flytja einn vel valdan frá þýskalandi eftir áramót. vinir mínir og kunningar hafa átt svona bíla í gegnum tíðina s.s. 730, 750. ég hallast eiginlega mest að 730 V8. ég er pínu búinn að vera að lesa um þessar týpur á netinu og svona en enskan er bara ekki upp á sitt besta hjá manni. mig langar soldið að fá álit ykkar á þessu hvað séu eiginlega bestu kaupin, bestu vélarnar, minnsta bilun o.s.frv.? t.d. af hverju frekar 730 V8 en L6? er 735 kannski málið. bensíneyðslan er eiginlega aukaatriði. endilega segið ykkar álit og reynslusögur sem þið getið deilt með mér. góð ráð og svona. |
Author: | HAMAR [ Sun 23. Sep 2007 19:03 ] |
Post subject: | |
Hvað með að taka 740i bíl ? |
Author: | Djofullinn [ Sun 23. Sep 2007 19:04 ] |
Post subject: | |
Ég myndi pottþétt taka 740. Finnst glórulaust að taka 730 V8 þegar maður getur fengið 740 fyrir svipaðan pening. Hann hefur nákvæmlega ekkert framyfir 740. |
Author: | Tommi Camaro [ Sun 23. Sep 2007 19:05 ] |
Post subject: | |
taktu frekar 740. e32 það er bara í lagí ekki taka með þessari l6 vél þær eru bara hræðinlega og aflausar sérstaklega þegar þú ert komin á 2 tonna leðursofa |
Author: | sh4rk [ Sun 23. Sep 2007 20:00 ] |
Post subject: | |
Tekur klárlega 740i, bara skemmtilegir bílar. Ég er búinn að eiga 2 og þetta er bara í lagi |
Author: | Lindemann [ Sun 23. Sep 2007 20:01 ] |
Post subject: | |
munurinn á 3. lítra vélunum 6cyl og 8cyl er gífurlegur..... ég hafði ekkert sérstakt álit á þessari 3. lítra V8 vél áður en ég prófaði svoleiðis...... mér fannst hún ekki mjög spennandi á pappírum. En málið er samt sem áður, að þessi vél vinnur alveg miklu betur og er miklu þýðari en gamla vélin. Ég tek samt undir með hinum að taka frekar 740 ef þú hefur kost á því, þá hefuru sömu kosti og í 3. lítra vélinni, en getur líka fengið fínt spark í rassinn ef þú skellir pinnanum í gólfið. |
Author: | Eggert [ Sun 23. Sep 2007 21:07 ] |
Post subject: | |
Mótorinn í 730 V8 og 740 er sá sami fyrir utan slagrými... báðir M60 mótorar. Glórulaust að taka bíl með M30, vegna kraftleysis... og svo er M70 (V12) frekar dýr þegar kemur að viðhaldi, svo 740i hefur klárlega vinninginn hvað varðar afl vs. verð vs. viðhaldskostnað. |
Author: | saemi [ Sun 23. Sep 2007 21:09 ] |
Post subject: | |
Gleymdu 730i, bara 740i eða 750i |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Sep 2007 21:17 ] |
Post subject: | |
ég var sáttari við e32 heldur en ég var við E38.. og einhverja hluta vegna varð ég fyrir vonbrigðum með E65, ég tæki 740 |
Author: | Tension Head [ Sun 23. Sep 2007 22:50 ] |
Post subject: | |
þakka fyrir góð svör. já ég ætla að skoða þessa 740 betur. hef bara ekki prufað þá. hef bara prufað 750 og 730. |
Author: | gunnar [ Sun 23. Sep 2007 22:51 ] |
Post subject: | |
Myndi taka 740 hiklaust, V12 kannski fullmikill biti bæði í eyðslu og viðhaldi. en 730 kannski full geldir og leiðinlegir. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |