Page 1 of 2

AutoExpress rakkar niður E60 520i

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 11:41
by Mal3
Rakst á þennan pistil íAutoExpress og er nú bara frekar sjokkeraður. Sýndist systurblaðið Evo gefa 530i ****½ án mikilla kvartana en þarna fær 520i nánast falleinkunn þar sem höfundur kroppar í allt - nema aksturseiginleika reyndar...

Einhver sem er búinn að skoða grunntýpur af E60?

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 12:42
by bebecar
Þessari gagnrýni er nú ekki beint fylgt eftir á traustvekjandi máta. Bíllinn virðist samt vera sekur um of mikla vigt og það kemur á óvart að hann sé með ódýrt plast í innréttingunni - slíkt verður maður að sjá sjálfur en ef innréttingin er eitthvað í líkingu við Z4 þá veit ég ekki hvað maðurinn á við.

Hinsvegar er ég sammála honum að það á auðvitað að vera nægjanlegt afl í svona bíl. Hann er hinsvegar fljótur að gleyma því að E39 520, og E34 518 voru engar sleggjur en fullkomlega boðlegir "entry level" Bimmar.

Lykt - hmmm... það hlýtur að koma fljótlega í ljós. Kannski var þetta af öðrum bíl í umferðinni.

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 12:48
by Mal3
Ég veit bara ekkert hvaða gaur þetta er, en þetta er auðvitað dálkur en ekki reynsluakstursdómur. Hann fer dálitlum hamförum þarna eða kannski frekar offörum og oftast þegar maður sér bíla koma á óvart líkt og í þessu tilfelli hafa menn prófað annað eintak til að sjá hvort þetta sé normið.

Smá fílíngur í þessu að gaurinn sé að reyna að verða annar Jeremy Clarkson með að vera nógu mikill orðhákur.

Þætti samt gaman að sjá eitthvað annað blað skoða 520i SE eins og hann gerði.

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 12:51
by bebecar
Já, en svo er best að dæma sjálfur - ég man eftir einum E39 520 bíl sem ég keyrði og sá var fimm gíra... hann var alls ekki öflugur en samt yndislegt að keyra hann og hiklaust mest smooth bíll sem ég hef keyrt. Hann hafði líka nægilegt afl til að taka frammúr - bara ekki mjög mikið, en alveg nóg.

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 13:00
by Svezel
Mér finnst reyndar innréttingin í nýju fimmunni ekkert spes, full plastic fyrir BMW

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 14:53
by Gunni
Svezel wrote:Mér finnst reyndar innréttingin í nýju fimmunni ekkert spes, full plastic fyrir BMW


ég skil ekki alveg þetta full plastic ? Mér fannst þessi bíll vera laglegur alveg í gegn. ég prófaði náttlega 3L bílinn og hann hefur fínt afl og vinnur mjög vel, gæti alveg trúað því að 2L sé full lítið fyrir svona bíl, en kaupandinn hefur víst val um margar vélar og um margar línur af bílum þannig að ef honum finnst 2L fimman og kraftlaus getur hann bara keypt sér 2L þristinn eða 3L fimmuna :)

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 15:30
by Haffi
þið meinið 2.2 170hoho :P

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 15:41
by benzboy
Gunni wrote:ég skil ekki alveg þetta full plastic ? Mér fannst þessi bíll vera laglegur alveg í gegn. ég prófaði náttlega 3L bílinn og hann hefur fínt afl og vinnur mjög vel, gæti alveg trúað því að 2L sé full lítið fyrir svona bíl, en kaupandinn hefur víst val um margar vélar og um margar línur af bílum þannig að ef honum finnst 2L fimman og kraftlaus getur hann bara keypt sér 2L þristinn eða 3L fimmuna :)


Sammála hverju orði

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:14
by Svezel
Sko miðjustokkurinn er úr leiðinlegu þunnu plasti eins og handföngin að innan. Þetta er bara það sem mér finnst.

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:19
by bebecar
Smásvona smáatriði getur haft ótrúlega mikið að segja.

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:29
by iar
Svezel wrote:Sko miðjustokkurinn er úr leiðinlegu þunnu plasti eins og handföngin að innan. Þetta er bara það sem mér finnst.


Tók nú ekki sérstaklega eftir efnunum í þessu þegar ég settist inn í bílinn á frumsýningunni að miðjustokkurinn og "hillan" í hurðinni er ekki í sömu hæð. Það finnst mér smá afturför í hönnuninni að innan. Eins að miðjustokkurinn skuli ekki lengur snúa að ökumanni. :roll:

Afturför í ergónómíkinni að mínu mati. :-)

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:31
by Haffi
WHAT snýr hann ekki lengur að ökumannI?????

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:52
by Djofullinn
Haffi wrote:WHAT snýr hann ekki lengur að ökumannI?????

Í gömlu bílunum hallar hann aðeins að ökumanni ;)

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:53
by Haffi
Já ég veit..... en gerir það það það ekki það lengur :P

PostPosted: Wed 27. Aug 2003 16:57
by Djofullinn
Haffi wrote:Já ég veit..... en gerir það það það ekki það lengur :P

Neibb ekki í sjöunni heldur :(