bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur no.23 á Akstursbraut 16 sept. SUNNUDAGUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24304
Page 1 of 3

Author:  Porsche-Ísland [ Fri 14. Sep 2007 08:12 ]
Post subject:  Leikdagur no.23 á Akstursbraut 16 sept. SUNNUDAGUR

Nú er það svart maður,, þannig að við erum hættir á föstudagskvöldum og eru eingöngu á Sunnudögum með Leikdag.

Veðurspáinn lofar fínu veðri og það stenst alltaf.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í Tryggingarviðauka.

En annars er bara stöðluð auglýsing.

Sunnudaginn 16. sept verður leikdagur á Akstursbrautinni.
Við opnum kl. 11 um morguninn og fram eftir degi.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
_________________

Author:  Axel Jóhann [ Sat 15. Sep 2007 02:08 ]
Post subject: 

Ég mæti. 8) :lol:

Author:  bimmer [ Sun 16. Sep 2007 10:43 ]
Post subject: 

Geðveikt veður - allir út á braut 8)

Author:  Alpina [ Sun 16. Sep 2007 11:01 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Geðveikt veður - allir út á braut 8)


team ,,,,,,,,270/white x 2 mæta :twisted:

Author:  Angelic0- [ Sun 16. Sep 2007 13:28 ]
Post subject: 

ohh, ég losna út kl 16:00...

ef að ég hefði getað græjað viðauka á föstudaginn.. þá hefði það verið first thing að mæta þarna...

Spurning samt um að mæta og glápa :)

Author:  bimmer [ Sun 16. Sep 2007 17:21 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
bimmer wrote:
Geðveikt veður - allir út á braut 8)


team ,,,,,,,,270/white x 2 mæta :twisted:


Híhí.... ekki alveg....... :lol:

Fínn dagur BTW.

Author:  Aron M5 [ Sun 16. Sep 2007 17:53 ]
Post subject: 

á einhver myndir :?:

Author:  Einarsss [ Sun 16. Sep 2007 18:04 ]
Post subject: 

Þetta var gaman! Hlakka til að sjá myndir frá deginum í dag :P E30 var í góðum meiri hluta á brautinni í dag


Hringur með RNGTOY var bara til að bæta ofan á daginn.

8)

Author:  Alpina [ Sun 16. Sep 2007 18:11 ]
Post subject: 

ALVEG í ............... LAGI

Author:  bimmer [ Sun 16. Sep 2007 19:27 ]
Post subject: 

aron m5 wrote:
á einhver myndir :?:


Mr. Boom tók helling.

Var ekki sjálfur með myndavél en hér er afrakstur dagsins... dekk sem voru
splunkuný í byrjun dags og svo smá nudd á afturstuðara bílstjóramegin:

Image

Image

Author:  saemi [ Sun 16. Sep 2007 20:25 ]
Post subject: 

A job bloody well done I'd say!

Author:  IngóJP [ Sun 16. Sep 2007 20:26 ]
Post subject: 

leitt að komast ekki í dag en

Til Hamingju með 2x skúrinn Þórður þetta er bara þægilegt

Author:  bimmer [ Sun 16. Sep 2007 21:39 ]
Post subject: 

IngóJP wrote:
leitt að komast ekki í dag en

Til Hamingju með 2x skúrinn Þórður þetta er bara þægilegt


Takk fyrir það - þetta er snilldin ein, nóg pláss:
Image

Fínt að geta geymt bræðurna inni :wink:
Image

Author:  bimmer [ Sun 16. Sep 2007 21:42 ]
Post subject: 

Hér eru 3 video frá í dag - þriðja videoið er af síðasta rönninu þar
sem dekkin fóru í döðlur:

http://www.onno.is/thordur/almennt/leikdagur160907/Leikdagur_160907_01.wmv

http://www.onno.is/thordur/almennt/leikdagur160907/Leikdagur_160907_02.wmv

http://www.onno.is/thordur/almennt/leikdagur160907/Leikdagur_160907_03.wmv

Svolítið öðruvísi að keyra bílinn á venjulegum götudekkjum.

Author:  Lilja [ Sun 16. Sep 2007 21:54 ]
Post subject: 

Gott mál að eiga tvöfaldan skúr ...... en að eiga tvöfaldan skúr með akkúrat þessum bílum inní :drool: hehe.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/