bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur no.21. og 22. á Akstursbraut 07 og 09 sept.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24148
Page 1 of 1

Author:  Porsche-Ísland [ Thu 06. Sep 2007 23:04 ]
Post subject:  Leikdagur no.21. og 22. á Akstursbraut 07 og 09 sept.

Nú er það svart maður,, en það geri þetta allt bara skemmtilegra.

Eins og menn hafa komist að þá er þetta ekki spurning um hvort þeir séu á eitthverri milljóna græju eða ekki.

Heldur er þetta bara að ná góðri tækni við að höndla það sem maður er með í höndunum í það og það skiptið.

Mætum snemma.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.

En annars er bara stöðluð auglýsing.


Föstudagskvöldið 07. sept verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 19 og fram eftir. Það dimmir orðið fljótt þannig að þetta er búið fyrir 22.

Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 09. September og þá frá 11 um morguninn og fram eftir degi.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

Author:  F2 [ Fri 07. Sep 2007 18:36 ]
Post subject: 

Allir að mæta útá braut 8)

Opnar kl 7

Author:  Einarsss [ Fri 07. Sep 2007 21:58 ]
Post subject: 

Nokkuð góð mæting miðað við veður en það var jafn skemmtilegt og altaf :o

Author:  gunnar [ Sat 08. Sep 2007 03:56 ]
Post subject: 

Djöfull langar mig upp á braut maður... :x :x

Author:  F2 [ Sun 09. Sep 2007 10:45 ]
Post subject: 

Geggjað veður útá braut,,,,, 8)

Author:  IngóJP [ Mon 10. Sep 2007 21:45 ]
Post subject: 

ekki jafn gott vedur og á spáni :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/