bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursleikni 05-09-07, mæting 19,00 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24100 |
Page 1 of 1 |
Author: | Porsche-Ísland [ Tue 04. Sep 2007 23:45 ] |
Post subject: | Akstursleikni 05-09-07, mæting 19,00 |
Mætum snemma,, það dimmir orðið tæplega 10. Veðurspáinn er geðveikt flott, nú er um að gera að koma og sína hvað hægt er að gera. Þarna er aflið ekki allt heldur hver stjórnar græjunni. Akstursbraut.is stendur fyrir æfingu í akstursleikni á Miðvikudagskvöldið Búið er að leggja braut sem búið er að marka af með keilum og tími tekinn á bílum. Þetta hentar öllum bílum, vélarafl er algjört auka atriði. Við byrjum kl. 19.00 og verðum fram eftir kvöldi. Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka. Fólk er beðið um að aka malarveginn rólega. En annars er bara stöðluð auglýsing. akstursleikni á Akstursbrautinni. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna. Eknir eru 1 hringir í einu. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 1000 kr. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. / / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala _________________ Halldór Jóhannsson Porsche 944 Turbo ´89 Porsche 924 '82 |
Author: | Aron Andrew [ Wed 05. Sep 2007 23:31 ] |
Post subject: | |
Jæja, einhverjar sögur af afrekum kvöldsins? ![]() |
Author: | Lindemann [ Wed 05. Sep 2007 23:32 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Jæja, einhverjar sögur af afrekum kvöldsins?
![]() ENGINN BMW ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Wed 05. Sep 2007 23:35 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: Aron Andrew wrote: Jæja, einhverjar sögur af afrekum kvöldsins? ![]() ENGINN BMW ![]() Fyrsta skipti ever? ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |