M3 vs M3
Sælir,
Er eitthvað að skoða M3 hér úti í UK. Líklegast ekki alveg strax sem þetta yrði verslað en langar að vita að hverju ég stefni.
Það sem kemur til greina er:
E30 M3 S14B23
E36 M3 S50B30
E36 M3 Evo S50B32
Það sem mig langar að spyrja ykkur að er: Hafið þið prófað E36 M3 og E30 M3? Ég hef bara prófað E30 M3 og fannst hann sjóðandi skemmtilegur. Er E36 jafnskemmtilegur? Hef heyrt að hann sé ekki alveg jafn mikil græja.
E30 er bara orðinn svo dýr hér(eðlilega) miðað við E36 að ég er eitthvað að gæla við það að prófa hann fyrst og kaupa svo E30 seinna og kaupa þá betri bíl en ég hef efni á á næstunni.
Svo er það næsta spurning. Er eitthvað að því að kaupa S50B30 í stað S50B32? Það munar töluverðu í verði og myndi þýða að ég gæti keypt fyrr og fengið nokkuð góðan bíl fyrir peninginn. Veit líka að Vanos á það til að bila í b32. Er einhver finnanlegur "performance" munur að ráði á þessum bílum?
Svo að lokum. Það er ekki topplúga í mörgum af þeim bílum sem ég hef fundið til sölu. Var það ekki í boði í einhverjum árgerðum, vitið þið það?
Tek það fram að ég er bara að skoða í augnablikinu. Þetta er bara svo freistandi þegar maður sér alla þessa úber fínu bíla á hálf virði