bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Leikdagur no.19. og 20. á Akstursbraut 31 ágúst og 02 sept.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=24008
Page 1 of 2

Author:  Porsche-Ísland [ Thu 30. Aug 2007 09:04 ]
Post subject:  Leikdagur no.19. og 20. á Akstursbraut 31 ágúst og 02 sept.

Nú er það blautt maður,, en það geri þetta allt bara skemmtilegra.

Miklu minna álag á bílinn en töluvert meira stress á bílstjórann.
Eins og menn hafa komist að þá er þetta ekki spurning um hvort þeir séu á eitthverri milljóna græju eða ekki.

Heldur er þetta bara að ná góðri tækni við að höndla það sem maður er með í höndunum í það og það skiptið.

Dekkjaslit verður í lámarki.

Mætum hress og í pollagöllunum,,


Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.

En annars er bara stöðluð auglýsing.


Föstudagskvöldið 31. Ágúst verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 19 og fram eftir. Það dimmir orðið fljótt þannig að þetta er búið um 22.

Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 02. September og þá frá 11 um morguninn og fram eftir degi.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

Author:  Einarsss [ Thu 30. Aug 2007 09:06 ]
Post subject: 

Ef ég verð ekki að vinna þá mæti ég 8)



[-o<

Author:  Kristján Einar [ Thu 30. Aug 2007 10:12 ]
Post subject: 

verður ekki bannað að borða banana á brautinni héðan í frá :lol: ?

Author:  BjarkiHS [ Thu 30. Aug 2007 10:33 ]
Post subject: 

Er ekki málið að byrja seinna á sunnudeginum :?: Og reyna þannig að þjappa hópnum saman :?: :?:

Author:  arnibjorn [ Thu 30. Aug 2007 10:50 ]
Post subject: 

BjarkiHS wrote:
Er ekki málið að byrja seinna á sunnudeginum :?: Og reyna þannig að þjappa hópnum saman :?: :?:

Jú ætli það sé ekki best!

Eða jafnvel hafa þetta bara milli 13-14 svo að sem flestir mæti þarna á sama tíma! :shock:

Author:  siggir [ Thu 30. Aug 2007 13:18 ]
Post subject: 

Er aftur sama og síðast? Bara þúsund kall í fyrsta skipti?

Author:  Porsche-Ísland [ Thu 30. Aug 2007 14:47 ]
Post subject: 

siggir wrote:
Er aftur sama og síðast? Bara þúsund kall í fyrsta skipti?


Nennir enginn orðið að lesa það sem stendur í auglýsingunni.

Author:  arnibjorn [ Thu 30. Aug 2007 14:50 ]
Post subject: 

Porsche-Ísland wrote:
siggir wrote:
Er aftur sama og síðast? Bara þúsund kall í fyrsta skipti?


Nennir enginn orðið að lesa það sem stendur í auglýsingunni.

Það stendur ekkert um það í auglýsingunni hvort að menn þurfa að borga meðlimagjaldið ef þeir eru að fara keyra í fyrsta skiptið. :)

Author:  Aron Andrew [ Thu 30. Aug 2007 15:25 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Porsche-Ísland wrote:
siggir wrote:
Er aftur sama og síðast? Bara þúsund kall í fyrsta skipti?


Nennir enginn orðið að lesa það sem stendur í auglýsingunni.

Það stendur ekkert um það í auglýsingunni hvort að menn þurfa að borga meðlimagjaldið ef þeir eru að fara keyra í fyrsta skiptið. :)


Porsche-Ísland wrote:
Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Author:  arnibjorn [ Thu 30. Aug 2007 15:35 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
arnibjorn wrote:
Porsche-Ísland wrote:
siggir wrote:
Er aftur sama og síðast? Bara þúsund kall í fyrsta skipti?


Nennir enginn orðið að lesa það sem stendur í auglýsingunni.

Það stendur ekkert um það í auglýsingunni hvort að menn þurfa að borga meðlimagjaldið ef þeir eru að fara keyra í fyrsta skiptið. :)


Porsche-Ísland wrote:
Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Það kostar alltaf 1000kr að aka.

Það sem Siggi er að meina hvort hann þurfi ekki að borga meðlimagjaldið fyrst það er sumarið er að verða búið :)

Author:  F2 [ Fri 31. Aug 2007 18:52 ]
Post subject: 

það er geggjað veður útá braut 8)

Author:  Porsche-Ísland [ Sun 02. Sep 2007 10:02 ]
Post subject: 

Drýfa sig á fætur og komið ykkur út.

Geðveikt gott veður.

Author:  Einarsss [ Sun 02. Sep 2007 10:57 ]
Post subject: 

újéé 8)

Author:  bimmer [ Sun 02. Sep 2007 18:08 ]
Post subject: 

Hvernig var svo?

Author:  Einarsss [ Sun 02. Sep 2007 19:21 ]
Post subject: 

Bara gaman :D

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/