Page 1 of 2

Akstursleikni 29-08-07, mæting 19,00

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 08:21
by Porsche-Ísland
Jæja núna er komið að því,,

Skólarnir eru byrjaðir og þeir sem voru úti a landi í sumar eru mættir í bæinn. Nú er þeirra tíma að sýna hvenig á að gera þetta.

Veðurspáinn er geðveikt flott, nú er um að gera að koma og sína hvað hægt er að gera.
Þarna er aflið ekki allt heldur hver stjórnar græjunni.



Akstursbraut.is stendur fyrir æfingu í akstursleikni á Miðvikudagskvöldið 29-08-07.
Búið er að leggja braut sem búið er að marka af með keilum og tími tekinn á bílum. Þetta hentar öllum bílum, vélarafl er algjört auka atriði.
Við byrjum kl. 19.00 og verðum fram eftir kvöldi.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka.

Fólk er beðið um að aka malarveginn rólega.


En annars er bara stöðluð auglýsing. 29. ágúst verður akstursleikni á Akstursbrautinni.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Eknir eru 1 hringir í einu.


Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 1000 kr.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.

Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.

Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda
né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni -
hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 11:02
by Hannsi
hvað er besti tíminn í RWD flokki?

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 11:05
by Aron Andrew
53,00

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 11:23
by gunnar
Aron Andrew wrote:53,00


Hver tók þann tíma ?

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 11:24
by Aron Andrew
gunnar wrote:
Aron Andrew wrote:53,00


Hver tók þann tíma ?


8)

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 11:29
by gunnar
Anskotans.... 8)

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 12:17
by ValliFudd
Hvernig ætli lítill, léttur 1,0 yaris virki í akstursleikni? :naughty:

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 12:20
by arnibjorn
Ég vona að það verði ekki rigning... samkvæmt mbl.is á að vera skýjað og rigning :?

En ef það verður þurrt þá væri gaman að sjá RNGTOY mæta og rústa RWD flokknum :P

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 13:07
by Steini B
Ég ætla að mæta á vinDiesel.... :D

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 10:08
by Aron Andrew
Er ekki hægt að hafa akstursleikni í dag? spáin segir rigning á morgun og út vikuna :evil:

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 10:09
by ValliFudd
Aron Andrew wrote:Er ekki hægt að hafa akstursleikni í dag? spáin segir rigning á morgun og út vikuna :evil:

samkvæmt www.belgingur.is ætti að vera komin MÍÍÍGANDI rigning um 18 í dag

PostPosted: Tue 28. Aug 2007 12:43
by Einarsss
OT en hvenær á að halda drift keppni? :D

PostPosted: Wed 29. Aug 2007 08:01
by Porsche-Ísland
Bara að mynna á að redda tryggingarviðaukanum.

PostPosted: Wed 29. Aug 2007 16:42
by iar
Jæja.. hvernig ætli regntímarnir séu.. ætla ekki einhverjir að mæta? :-D

PostPosted: Wed 29. Aug 2007 16:44
by ValliFudd
mig langar SVAÐALEGA að mæta á yaris, en hann er víst óvart tryggður hjá Verði.. bad idea...
ég held að hann geti alveg náð góðum tíma á sinni 1,0 vél :twisted: