Page 1 of 2

Leikdagur no.17. og 18. á Akstursbraut 24. og 26. ágúst.

PostPosted: Thu 23. Aug 2007 21:58
by Porsche-Ísland
Jæja þið kunnið þessa rullu.

Vegna hversu langt er liðið á árið þá er þeim sem ekki eru í klúbbnum boðið að aka fyrir 1000 krónur.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Vinsamlegast farið varlega á malarveginum.

En annars er bara stöðluð auglýsing.


Föstudagskvöldið 24. Ágúst verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 19 og fram eftir.

Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 26. Ágúst og þá frá 11 um morguninn og fram eftir degi.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Eknir eru 5 hringir í einu.
Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar,
landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 10:32
by arnibjorn
Ég mæti á sunnudaginn!

Eins gott að það verði þurrt.... :burnout: :D

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:16
by Einarsss
Kominn með Viðauka á nýja bílinn 8)

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:18
by arnibjorn
einarsss wrote:Kominn með Viðauka á nýja bílinn 8)

Loksins kominn á einhvern bíl sem hægt að nota á þessari braut 8)

Ekki einhvern E39 hlunk! :lol:

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:24
by ///M
er hann rauður?

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:26
by arnibjorn
///M wrote:er hann rauður?

Hver?

Ég?

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:31
by Einarsss
Hann er rauður eins og árni

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:31
by arnibjorn
einarsss wrote:Hann er rauður eins og árni

Barílagi 8)

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 14:41
by ///M
cool 8)

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 17:27
by Stanky
einarsss wrote:Hann er rauður eins og árni


Hvaða bíll er það?

Hvorn daginn á að mæta? :D

kv,
haukur

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 17:43
by Einarsss
Stanky wrote:
einarsss wrote:Hann er rauður eins og árni


Hvaða bíll er það?

Hvorn daginn á að mæta? :D

kv,
haukur



báða auðvitað ;)

PostPosted: Fri 24. Aug 2007 17:45
by Stanky
einarsss wrote:
Stanky wrote:
einarsss wrote:Hann er rauður eins og árni


Hvaða bíll er það?

Hvorn daginn á að mæta? :D

kv,
haukur



báða auðvitað ;)


:P

Hugsa að ég komi og verði spectator... tek með hjálminn minn ef einhverjum langar að leyfa mér að sitja í!

kv,
haukur

PostPosted: Sat 25. Aug 2007 11:12
by Raggi M5
Stanky wrote:
einarsss wrote:Hann er rauður eins og árni


Hvaða bíll er það?

Hvorn daginn á að mæta? :D

kv,
haukur


Bíllinn sem Hlynur átti ?

PostPosted: Sat 25. Aug 2007 11:48
by bjahja
Bingo og hann er alltaf jafn geðveikt flottur 8)

PostPosted: Mon 27. Aug 2007 08:59
by Svezel
djöfull var gott að komast aftur upp á braut og djöflast, maður er alveg endurnærður :)