bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vetrar/heilsársdekk https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=2374 |
Page 1 of 1 |
Author: | Jss [ Fri 22. Aug 2003 00:30 ] |
Post subject: | Vetrar/heilsársdekk |
Datt í hug að setja í gang könnun um hvernig dekkjum menn aka á um vetrartímann og hvernig þau hafa reynst þeim. Fékk innblástur frá þræði um nagladekk, kemur þó að miklu leyti til af því að maður gæti þurft að versla sér vetrardekk fyrir veturinn. Síðan er reyndar alltaf spurningin hvort það komi alvöru vetur. Ef menn velja valkostinn annað þá væri vel þegið ef þeir tilgreindu þá hvaða dekk er um að ræða. Valkostirnir eru bara það fyrsta sem mér datt í hug þannig að endilega bætið við ef ykkur finnst á vanta. |
Author: | arnib [ Fri 22. Aug 2003 00:56 ] |
Post subject: | Re: Vetrar/heilsársdekk |
Jss wrote: Ef menn velja valkostinn annað þá væri vel þegið ef þeir tilgreindu þá hvaða dekk er um að ræða. Valkostirnir eru bara það fyrsta sem mér datt í hug þannig að endilega bætið við ef ykkur finnst á vanta.
Það er enginn valkostur "annað" ?... ![]() |
Author: | Mal3 [ Fri 22. Aug 2003 01:48 ] |
Post subject: | |
Eitt atriði, þó ónelgd vetrardekk séu lögleg allan ársins hring eru þau ekki heilsársdekk. Heilsársdekk eru dekk sem (merkilegt nokk) eru hönnuð til að sameina eiginleika sumar og vetrardekkja. Annars hef ég notað Continental Viking Stop 2, að mig minnir, ca. 4 vetur og það virkaði prýðilega. En núna var ég á Kelly sumardekkjum ![]() En þessi Continental dekk voru að virka MJÖG vel. |
Author: | Dr. E31 [ Fri 22. Aug 2003 02:28 ] |
Post subject: | |
Ég er á (eins og er) Michelin Pilot Alpine, þau voru bara mjög góð í fyrravetur, þá mjög slitin, núna eru þau eiginlega ónýt. Í vetur fer ég á 16" með gömlum Michelin X M+S (held ég) fínt munstur á þeim, maður sér til hvernig þau virka í vetur. |
Author: | íbbi_ [ Fri 22. Aug 2003 16:44 ] |
Post subject: | |
Goodeyar ultragrip 400, er ég á, naglalaus, fín í snjó og hálku. en varð þó fyrir vonbrigðum með hvað þau spænast upp á þurru |
Author: | Mal3 [ Fri 22. Aug 2003 20:43 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: Goodeyar ultragrip 400, er ég á, naglalaus, fín í snjó og hálku. en varð þó fyrir vonbrigðum með hvað þau spænast upp á þurru
Mér sýnist þetta vera viðloðandi með svona dekk. Ertu að meina í þurru að vetri til (þegar maður er svo heppinn að fá þurrt malbik...) eða að sumri til? Þessi dekk verða væntanlega mun mýkri í hita og eyðast þar af leiðandi hraðar. |
Author: | Gunni [ Sat 23. Aug 2003 04:29 ] |
Post subject: | |
það er samt ekkert til sem heitir að vera heppinn með þurrt malbik á veturna, það heitir frekar að vera óheppinn með snævi lagt malbik, því það gerist ei oft!!! |
Author: | Jss [ Sat 23. Aug 2003 11:58 ] |
Post subject: | |
Hef gleymt að ýta á takkann þegar ég setti inn annað sem valkost ![]() Get ekki breytt því núna en shit happens. |
Author: | iar [ Sat 23. Aug 2003 12:00 ] |
Post subject: | |
Jss wrote: Hef gleymt að ýta á takkann þegar ég setti inn annað sem valkost
![]() Get ekki breytt því núna en shit happens. Jújú, betra seint en aldrei. ![]() |
Author: | Mal3 [ Sat 23. Aug 2003 13:52 ] |
Post subject: | |
Gunni wrote: það er samt ekkert til sem heitir að vera heppinn með þurrt malbik á veturna, það heitir frekar að vera óheppinn með snævi lagt malbik, því það gerist ei oft!!!
Eru ekki flestir hér á afturdrifsbílum? Hélt þið ættuð að þakka fyrir að fá nokkra snjódaga ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |