bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leikdagur no.15. og 16. á Akstursbraut 17. og 19. ágúst. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23730 |
Page 1 of 2 |
Author: | Porsche-Ísland [ Thu 16. Aug 2007 08:52 ] |
Post subject: | Leikdagur no.15. og 16. á Akstursbraut 17. og 19. ágúst. |
Jæja þurfa menn ekki að fara að klára þessi blessuð sumardekk,,,, það er að koma haust og menn farnir að skoða úrvalið af vetrardekkjum. Núna er tilvalið að minnka aðeins gúmímagnið á dekkjunum og gera þau betur hringlaga. Vegna hversu langt er liðið á árið þá er þeim sem ekki eru í klúbbnum boðið að aka fyrir 1000 krónur. Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs. Vinsamlegast farið varlega á malarveginum. En annars er bara stöðluð auglýsing. Föstudagskvöldið 17. Ágúst verður leikdagur á Rallykross brautinni. Brautin verður opin frá 20 og frameftir. Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 19. Ágúst og þá frá 11 um morguninn og fram eftir degi. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Eknir eru 5 hringir í einu. Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. / / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala |
Author: | arnibjorn [ Thu 16. Aug 2007 08:59 ] |
Post subject: | Re: Leikdagur no.15. og 16. á Akstursbraut 17. og 19. ágúst. |
Porsche-Ísland wrote: Vegna hversu langt er liðið á árið þá er þeim sem ekki eru í klúbbnum boðið að aka fyrir 1000 krónur.
Kúl! ![]() Ég mæti vonandi á mínum! ![]() ALLIR AÐ MÆTA!! ![]() ![]() ![]() |
Author: | Einarsss [ Thu 16. Aug 2007 09:45 ] |
Post subject: | |
Reyni að mæta á minns vonandi |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 16. Aug 2007 11:13 ] |
Post subject: | |
vonandi að ég verði búinn að henda mínum saman ![]() |
Author: | Alpina [ Thu 16. Aug 2007 16:24 ] |
Post subject: | |
Medan team be ,,,,,,,,,,, møkkar dekkjum verd ég ad ,,DÚNDRAST um á 346 einnig kláradi ég øll dekk um daginn svo ég er ,,DEKKJALAUS |
Author: | Aron Andrew [ Thu 16. Aug 2007 18:36 ] |
Post subject: | |
Er að bíða eftir nýrri kúplingu þannig að ég kem ekki ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 16. Aug 2007 18:40 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Er að bíða eftir nýrri kúplingu þannig að ég kem ekki
![]() Þú mátt taka rönn á mínum ef ég mæti á honum! ![]() |
Author: | ///MR HUNG [ Thu 16. Aug 2007 20:46 ] |
Post subject: | |
Það verða annaðhvort Danskirdagar eða spóldagar hjá mér. |
Author: | Hannsi [ Thu 16. Aug 2007 20:51 ] |
Post subject: | |
úúú ég er eftir að plögga einum fjólubláum fyrir þetta ![]() |
Author: | Angelic0- [ Thu 16. Aug 2007 21:08 ] |
Post subject: | |
hehehe.... *edit* eigum við ekki að máta hvort að 16" passar undir að aftan.. tökum þá bra bæði felgusettin með á morgun ![]() |
Author: | zazou [ Thu 16. Aug 2007 23:43 ] |
Post subject: | Re: Leikdagur no.15. og 16. á Akstursbraut 17. og 19. ágúst. |
Porsche-Ísland wrote: Jæja þurfa menn ekki að fara að klára þessi blessuð sumardekk,,,, það er að koma haust og menn farnir að skoða úrvalið af vetrardekkjum.
Núna er tilvalið að minnka aðeins gúmímagnið á dekkjunum og gera þau betur hringlaga. ... http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=21486 ![]() |
Author: | Porsche-Ísland [ Thu 16. Aug 2007 23:51 ] |
Post subject: | |
///MR HUNG wrote: Það verða annaðhvort Danskirdagar eða spóldagar hjá mér.
Þú hefur nú aldrei talist sterkur í dönskunni, þannig að þetta er ekki spurning. ![]() Sjáumst. |
Author: | HPH [ Thu 16. Aug 2007 23:52 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | F2 [ Fri 17. Aug 2007 18:38 ] |
Post subject: | |
Jæja,,,, Fjölmennum útá braut á eftir ![]() Svæðið opnar kl 8 ![]() |
Author: | F2 [ Fri 17. Aug 2007 18:40 ] |
Post subject: | |
Vegna hversu langt er liðið á árið þá er þeim sem ekki eru í klúbbnum boðið að aka fyrir 1000 krónur. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |