bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvað myndir þú vera til í að borga fyrir 545i? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23724 |
Page 1 of 6 |
Author: | saemi [ Wed 15. Aug 2007 19:43 ] |
Post subject: | Hvað myndir þú vera til í að borga fyrir 545i? |
Til gamans þá langar mig aðeins til að athuga hvað fólki finnst eðlilegt að borga fyrir eftirfarandi grip. 545i 2004 módel ekinn 130.000 km. Einn eigandi, bók, fullt af aukahlutum, góður litur með svörtu leðri og bla bla bla. Segjum svo að þú ætlaðir að kaupa þér svona bíl, hvað finnst þér eðlilegt kaupverð? Ég er ekki að tala um skot út í loftið, ég er að tala um hvað þú værir til í að punga út, gefið að þú ætlaðir að fá þér svona bíl. Vildir ekki henda pening út um gluggann og ekki kaupa slæman bíl. |
Author: | Angelic0- [ Wed 15. Aug 2007 20:18 ] |
Post subject: | |
Ég held að 4-4,5 mill sé raunhæft verð á svona bíl með einhverjum normal aukahlutapakka, öllum service-heft full-útfylltum en þá bíl sem að er ekki FULLY LOADED. Menn eru auðvitað að fá slatta bíl fyrir þennan pening sem að þessir bílar eru að kosta. Svo er náttúrulega hægt að tína til fullt af induvidual hlutum og fleira til sem að eykur söluverð alveg upp að 5,2-5,5. E60 er bara almennt dýr bíll að ég held... svo að ég skaut á 4,5... |
Author: | Kristján Einar [ Wed 15. Aug 2007 20:31 ] |
Post subject: | |
btw, sá svona 550 fyrir utan FL group í gær rak upp ![]() en algjörlega OT engu að síður |
Author: | saemi [ Wed 15. Aug 2007 20:31 ] |
Post subject: | |
Gott svar. Ég er ekki búinn að íhuga þetta mikið, en datt inn á þetta um daginn. Sló þessu inn í mobile og varð svolítið hissa. Mér sýnist á öllu að þetta sé 540i E39 dæmið að endurtaka sig! |
Author: | xtract- [ Wed 15. Aug 2007 20:38 ] |
Post subject: | |
sæmi, hvaða dæmi með e39 540 ertu að vitna í? ![]() |
Author: | Svezel [ Wed 15. Aug 2007 20:51 ] |
Post subject: | |
var einmitt að skoða 545 á mobile um daginn, kom mér ansi á óvart. stefnir í að 545 fari alveg eins og 540. fannst líka áhugavert hvað diesellinn heldur sér í verði, en það er svosem ekkert undarlegt miðað við hvað hann er mun betri kostur (að mínu mati allaveganna) |
Author: | ///MR HUNG [ Wed 15. Aug 2007 20:52 ] |
Post subject: | |
Er þetta ekki frekar E39 M5 að endurtaka sig. |
Author: | fart [ Wed 15. Aug 2007 20:53 ] |
Post subject: | |
Bensínbílar með stórar vélar falla hratt í verði í EU. X5 4.4i kostar stundum minna en 3.0d af sömu árgerð og akstri. |
Author: | Djofullinn [ Wed 15. Aug 2007 20:59 ] |
Post subject: | |
Angelic0- wrote: Ég held að 4-4,5 mill sé raunhæft verð á svona bíl með einhverjum normal aukahlutapakka, öllum service-heft full-útfylltum en þá bíl sem að er ekki FULLY LOADED. Sæmilega útbúinn svona bíll kostar lágmark 4,5 til landsins. Og þá á eftir að fjármagna. Held að 5 millur sé mjög sanngjarnt miðað við þennan akstur og normal búnað.
Menn eru auðvitað að fá slatta bíl fyrir þennan pening sem að þessir bílar eru að kosta. Svo er náttúrulega hægt að tína til fullt af induvidual hlutum og fleira til sem að eykur söluverð alveg upp að 5,2-5,5. E60 er bara almennt dýr bíll að ég held... svo að ég skaut á 4,5... |
Author: | Djofullinn [ Wed 15. Aug 2007 21:01 ] |
Post subject: | |
Það minnir mig á það! Af hverju uppfærist ekki lengur reiknivélin á kraftinum? Evran er kominn í 89 en samt er hún í 85 í reiknivélinni. |
Author: | saemi [ Wed 15. Aug 2007 21:24 ] |
Post subject: | |
///MR HUNG wrote: Er þetta ekki frekar E39 M5 að endurtaka sig.
Non M bíll er alltaf non M. Svo mér finnst ekki hægt að segja að þetta sé E39 M5 að endurtaka sig. Sama dæmið samt nema ekki M5. Ég er nokkuð viss um að hann mun fylgja í kjölfarið eftir 2-4 ár. E39 540i var fyrri til að lækka en M5. Þetta virðast vera bílar sem vel stæðir einstaklingar "eiga" í 2-4 ár og skipta svo út fyrir nýja bíla. Mikið af þessum 545 eru með skattinn af, sem vísar til þess að þetta eru bílar teknir í gegnum fyrirtækin sem þarf svo að losa þegar nýr bíll er tekinn inn fyrir viðkomandi aðila. Ég hvet alla til að fara inn á mobile.de og skoða verðin. Ég get ekki betur séð en hægt sé að fá vel búinn góðan bíl á 30þús EUR og svo skattinn af því! |
Author: | ///MR HUNG [ Wed 15. Aug 2007 21:28 ] |
Post subject: | |
Ég er að tala um verð úti vs verð hér. Þetta er svipað dæmi. |
Author: | saemi [ Wed 15. Aug 2007 21:31 ] |
Post subject: | |
///MR HUNG wrote: Ég er að tala um verð úti vs verð hér.
Þetta er svipað dæmi. Ertu að tala um muninn á verðinu hérlendis miðað við úti??? Ef svo er þá er ég sammála. Það var 1.5 milljón munur á þessum bílum um tíma úti og hér heima. |
Author: | ///MR HUNG [ Wed 15. Aug 2007 21:32 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: ///MR HUNG wrote: Ég er að tala um verð úti vs verð hér. Þetta er svipað dæmi. Ertu að tala um muninn á verðinu hérlendis miðað við úti??? Ef svo er þá er ég sammála. Það var 1.5 milljón munur á þessum bílum um tíma úti og hér heima. ![]() |
Author: | amg [ Wed 15. Aug 2007 22:03 ] |
Post subject: | |
mér finnst bara mikilvægt að þeir sem halda að það se "ekkert" mál að flytja inn bíl, að það séu ýmsir áhættu og kostnaðarliðir inni í svona dæmi það þurfa líka allir að fá sitt fyrir snúðin sinn ég er nu buinn að flytja inn all-nokkra bíla og er maður alltaf að læra og lærir lengi vel |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |