bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
innflutningur, info https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23717 |
Page 1 of 1 |
Author: | don1 [ Wed 15. Aug 2007 04:29 ] |
Post subject: | innflutningur, info |
nú standa mál þannig að ég er að ganga frá kaupum á 540 í þýskalandi.. en! get ég tollað bílinn og fengið hann á númer áður en hann kemur heim? ætlunin er nefnilega að hafa hann á íslenskum plötum útí danmörku meðan ég er í skóla. það er nefnilega geðveiki að tolla hann í dk.. farið eftir gangverði en ekki söluverði s.s er hægt að fá plöturnar áður en ég fer út? og tryggja og tolla? |
Author: | Kull [ Wed 15. Aug 2007 04:32 ] |
Post subject: | |
Engin leið að fá bílinn á númer án þess að koma með hann heim eftir því sem ég best veit. |
Author: | don1 [ Wed 15. Aug 2007 04:34 ] |
Post subject: | |
hvernig eru þessir bílar þá keyrðir heim? farið í norrænu og þannig? braðabirgðanúmer? |
Author: | Einarsss [ Wed 15. Aug 2007 08:06 ] |
Post subject: | |
færð rauð númer þegar þú kemur með bílinn með norrænu. Svo þarftu að fara með hann í nýskráningarskoðun etc... |
Author: | arsaellg [ Wed 22. Aug 2007 14:57 ] |
Post subject: | Innflutningur |
Ég flutti bílinn minn inn í sumar og það sem ég gerði í þýskalandi var að koma honum á svokölluð "Export Plates" sem þýðir einfaldlega innflutnings númer. Þessi númer gilda í rúma 15daga. Og svo er það bara að koma bílnum í norrænu innan 15 daga. Þú getur þá keyrt um á þessum númerum í bæði þýskalandi, danmörku og í færeyjum. Svo þegar þú kemur til Íslands þá þarftu að A: Skrá bílinn B: Borga tollinn C: Tryggja bílinn. Þetta þarftu að gera allt á Seyðisfirði. En hinsvegar þarftu fyrst að senda öll gögnin sem fylgdu bílnum, þ.e.a.s. pappírana til Umferðarstofu svo að þeir geti búið til númer á bílinn. Það er eiginlega best fyrir þig að senda þessi skjöl í Þýskalandi, þessvegna með FedEx. En hinsvegar ef þú skildir gleyma að gera það þá er kona þarna á Seyðisfirði sem gæti hugsanlega reddað þér. En þú færð símanúmerið og heimilisfangið hjá konunni hjá sýslumanninum á Seyðisfirði. Held að þetta gengur svona fyrir sig, ég er með þetta svona 99% á hreinu, kannski gleymdi ég einhverju. En þá rifjast það upp fyrir mér:) Ef þú hefur einhverjar spurningar þá ætti ég að geta svarað þér. En annars, þá held ég að það sé sniðugast fyrir þig að senda skjölin þ.e.a.s. eigendaskírteini bílsins og allt það í annaðhvort Hanstholm, í Danmörku. Það er staðurinn sem Norræna siglir frá. Eða ljúka því af í Álaborg. Ég mæli með að þú gerir það í Álaborg, ég lenti nefnilega í veseni útaf því ég hafði ekki sent skjölin áður en ég fór. Og það er líka gott að mæta alveg 2-3 tímum áður en þú átt að mæta í Hanstholm:) kv. Árni ![]() |
Author: | Bjarkih [ Wed 22. Aug 2007 19:51 ] |
Post subject: | |
Og taka með þér nesti og afþreyingu til að hafa á leiðinni ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |