bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursleikni 15-08-07 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23697 |
Page 1 of 2 |
Author: | Porsche-Ísland [ Tue 14. Aug 2007 08:37 ] |
Post subject: | Akstursleikni 15-08-07 |
Jæja núna er komið að því,, Eftir langa bið mun það gerast, keilur munu fljúga, þær fáu sem sleppa við það munu skipta litum af hræðslu. . . . . . Aron Andrew mætir aftur, það má enginn missa af því þegar drengurinn kemur til að bæta metið. Tímaverðir hafa verið í mikilli æfingarbúðum að þjálfa þumalinn svo allt verði upp á sitt besta. Veðurspáinn er geðveikt flott, nú er um að gera að koma og sína hvað hægt er að gera. Þarna er aflið ekki allt heldur hver stjórnar græjunni. Akstursbraut.is stendur fyrir æfingu í akstursleikni á Miðvikudagskvöldið 15-08-07. Búið er að leggja braut sem búið er að marka af með keilum og tími tekinn á bílum. Þetta hentar öllum bílum, vélarafl er algjört auka atriði. Við byrjum kl. 19.00 og verðum fram eftir kvöldi. Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka. Fólk er beðið um að aka malarveginn rólega. En annars er bara stöðluð auglýsing. 15 ágúst verður akstursleikni á Akstursbrautinni. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna. Eknir eru 1 hringir í einu. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. / / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala |
Author: | Hannsi [ Tue 14. Aug 2007 11:01 ] |
Post subject: | |
úff hvað ég mundi mæta á 540 ef ég þyrfti ekki að borga þennan bévítans 6000 kall ![]() |
Author: | bjahja [ Tue 14. Aug 2007 11:03 ] |
Post subject: | |
Hannsi wrote: úff hvað ég mundi mæta á 540 ef ég þyrfti ekki að borga þennan bévítans 6000 kall
![]() Þú þarft að borga 5000 kall í fyrsta skiptið og svo 1000 kr í hvert skipti eftir það. En þú færð samt góðann svona ![]() |
Author: | Hannsi [ Tue 14. Aug 2007 11:05 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Hannsi wrote: úff hvað ég mundi mæta á 540 ef ég þyrfti ekki að borga þennan bévítans 6000 kall ![]() Þú þarft að borga 5000 kall í fyrsta skiptið og svo 1000 kr í hvert skipti eftir það. En þú færð samt góðann svona ![]() ef ég ætti 6000 þá mundi ég mæta ![]() |
Author: | IngóJP [ Tue 14. Aug 2007 11:27 ] |
Post subject: | |
þetta er skitinn 5000 kall ![]() |
Author: | Hannsi [ Tue 14. Aug 2007 12:09 ] |
Post subject: | |
IngóJP wrote: þetta er skitinn 5000 kall
![]() 39kr duga sammt sem áður ekki ![]() |
Author: | HPH [ Tue 14. Aug 2007 13:37 ] |
Post subject: | |
Hannsi wrote: IngóJP wrote: þetta er skitinn 5000 kall ![]() 39kr duga sammt sem áður ekki ![]() taktu bara yfirdrátt, fáðu lánað. ![]() |
Author: | Svezel [ Tue 14. Aug 2007 14:28 ] |
Post subject: | |
já besta planið að taka lán til komast á rallycrossbrautina |
Author: | zazou [ Tue 14. Aug 2007 14:30 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: já besta planið að taka lán til komast á rallycrossbrautina
Betra en að skæla hér ![]() |
Author: | ///M [ Tue 14. Aug 2007 14:31 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | freysi [ Tue 14. Aug 2007 15:00 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | JonHrafn [ Tue 14. Aug 2007 21:57 ] |
Post subject: | |
djöfull missti ég mig þegar þessi krakki birtist á skjánum hjá mér |
Author: | Alpina [ Tue 14. Aug 2007 22:01 ] |
Post subject: | |
///M wrote: ![]() hehehehehe,,, ............... BARA.. FYNDIÐ ![]() |
Author: | arnibjorn [ Tue 14. Aug 2007 23:33 ] |
Post subject: | |
Ég var að koma úr skúrnum hjá Bjandrew Crew og þar var verið að skipta um dempara á E30.. þeir ætla báðir að reyna mæta á morgun og bæta metið ![]() ![]() |
Author: | aronjarl [ Wed 15. Aug 2007 00:29 ] |
Post subject: | |
eriggi krakki þetta er DÚKKA hehe |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |