Page 1 of 2

BMW X5 ameríkutýpa 2001 hvernig hafa þeir reynst?

PostPosted: Wed 08. Aug 2007 15:02
by Ívar/320i
Nú þekki ég lítið til ameríku-bmw og langar því að spyrja;

Er einhver hérna sem þekkir eitthvað til hvernig 4.4 l ameríkutýpan af BMW X5 árg 2001 hefur verið að koma út hérna heima?
Er eitthvað sem sérstaklega þarf að varast í tengslum við þessa bíla?
Er markaðsvirði ameríkubílanna mikið lægra en hinna evrópsku?

Sá einn svona til sölu á 3.090.000. ek.69þ.m. Hefur einhver hugmynd um hvað raunvirði svona bíls er? Tekur B&L nokkuð ameríkutýpu uppí bíla hjá sér?

PostPosted: Wed 08. Aug 2007 17:25
by Kristjan PGT
Mæli eindregið með að þú fáir nr. bílsins og hringir bara uppí B&L og spyrjir um uppítökuverð :)

PostPosted: Wed 08. Aug 2007 18:32
by Bjössi
BogL tekur ekki bíla uppí sem eru innfluttir notaðir frá ameríku síðast þegar ég vissi

PostPosted: Thu 09. Aug 2007 11:01
by IngóJP
Bjössi wrote:BogL tekur ekki bíla uppí sem eru innfluttir notaðir frá ameríku síðast þegar ég vissi


allaveganna var einn X5 ameríku týpa þar um daginn

PostPosted: Thu 09. Aug 2007 11:04
by fart
Mæli líka með að þú kaupir þér aðgang að carfax og tékkir VIN númerði þar.

PostPosted: Thu 09. Aug 2007 17:52
by HAMAR
Eru ekki allir X5 smíðaðir í USA ?

nei það held ég ekki

PostPosted: Thu 09. Aug 2007 21:10
by Ívar/320i
HAMAR wrote:Eru ekki allir X5 smíðaðir í USA ?

Nei það held ég ekki.. Þessi bíll sem ég er að tala um er amk. framleiddur í þýskalandi en fyrir ameríkumarkað.

PostPosted: Thu 09. Aug 2007 22:43
by IceDev
X5 = Smíðaðir í Spartanburg, South Carolina

ok..

PostPosted: Thu 09. Aug 2007 23:31
by Ívar/320i
IceDev wrote:X5 = Smíðaðir í Spartanburg, South Carolina


Ok, en skv. skráningarskírteininu er hann framleiddur í þýskalandi, getur svosem vel verið villa í skráningu, halda bara að allir bmw séu framl. í þýs. Ég bara þekki þetta ekki.

PostPosted: Fri 10. Aug 2007 03:36
by HPH
X5 og Z3 eru framleid í USA. veit ekki alveg með Z4 en mig grunar það.

PostPosted: Fri 10. Aug 2007 03:48
by IceDev
HPH wrote:X5 og Z3 eru framleid í USA. veit ekki alveg með Z4 en mig grunar það.


Z4 eru einnig framleiddir í Júsei

PostPosted: Sun 12. Aug 2007 02:03
by SteiniDJ
Við vorum með 2003 X5 4.4l, USA módel. Hann var með pixelvanda í mælaborði sem var lagað, þannig að það voru ekki lengur mílur. Svo var ákveðið að kaupa krók undir hann, en hann var með USA rafkerfi en krókurinn með EU kerfið (eitthvað svoleiðis). B&L fengu bílinn til að prófa þetta og á endanum tókst það nokkuð vel.

Bílinn bilaði svolítið á einum punkti, en svo var þetta draumur. Klárlega frábærir bílar í alla staði. Hann var til sölu hjá B&L um daginn.

PostPosted: Sun 12. Aug 2007 02:06
by xtract-
málið með dráttarkrókinn var það ekki útaf því að amerískir bílar eru ekki með þokuljós að aftan? :o

PostPosted: Sun 12. Aug 2007 02:14
by SteiniDJ
xtract- wrote:málið með dráttarkrókinn var það ekki útaf því að amerískir bílar eru ekki með þokuljós að aftan? :o


Veit ekki alveg hvernig það var, en þeir segjast hafa lært hvernig á að smella þessum krókum undir ameríkubílana eftir þetta - sem er bara hið besta mál!

PostPosted: Sun 12. Aug 2007 03:58
by Aron Andrew
xtract- wrote:málið með dráttarkrókinn var það ekki útaf því að amerískir bílar eru ekki með þokuljós að aftan? :o


Jú, það er þannig, amerískir bílar eru með undanþágu varðandi þokuljósin að aftan, en ef þeir eru með aftanívagn þá verða að vera þokuljós aftan á þeim, eins heimskulegt og það er :roll:

Fordinn okkar fékk einmitt endurskoðun útaf þessu og númeraplöturamma :lol: