bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leikdagur 13 og 14. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23582 |
Page 1 of 5 |
Author: | Porsche-Ísland [ Tue 07. Aug 2007 15:13 ] |
Post subject: | Leikdagur 13 og 14. |
Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs. Vinsamlegast farið varlega á malarveginum. En annars er bara stöðluð auglýsing. Föstudagskvöldið 10. Ágúst verður leikdagur á Rallykross brautinni. Brautin verður opin frá 20 og frameftir. Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 12. Ágúst og þá frá 10 um morguninn og fram eftir degi. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna. Eknir eru 5 hringir í einu. Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. / / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala |
Author: | Aron Andrew [ Tue 07. Aug 2007 16:02 ] |
Post subject: | |
Stefnir í að ég taki run ![]() |
Author: | HPH [ Tue 07. Aug 2007 16:11 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Stefnir í að ég taki run
![]() |
Author: | Raggi M5 [ Tue 07. Aug 2007 16:58 ] |
Post subject: | |
Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ? |
Author: | Aron Andrew [ Tue 07. Aug 2007 16:59 ] |
Post subject: | |
Raggi M5 wrote: Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ?
Já klárlega ![]() Að mínu mati mun meira spennandi! |
Author: | Alpina [ Tue 07. Aug 2007 17:20 ] |
Post subject: | |
Raggi M5 wrote: Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ?
þetta er bæði og |
Author: | zazou [ Tue 07. Aug 2007 18:39 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Raggi M5 wrote: Eru menn frekar að fara á þetta heldur en uppá mílu á föstudeginum, þeas ef viðrar ? Já klárlega ![]() Að mínu mati mun meira spennandi! Hvað heldurðu maður ![]() Nú má alveg fara að koma blautur leikdagur. |
Author: | Hannsi [ Tue 07. Aug 2007 23:12 ] |
Post subject: | |
úff bíllinn hjá mér er skuggalega laus að aftan í bleitunni ![]() þarf lítið sem ekkert til svo maður spóli. |
Author: | Aron Andrew [ Tue 07. Aug 2007 23:28 ] |
Post subject: | |
Það verður eitthvað fyrir alla um helgina, veðurspáin segir rigning á föstudag en blingin veður restina af helginni ![]() |
Author: | fart [ Wed 08. Aug 2007 09:17 ] |
Post subject: | |
Getur einhver lánað mér bíl ![]() |
Author: | HPH [ Wed 08. Aug 2007 13:03 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Getur einhver lánað mér bíl
![]() Ég skal lána þér minn ef ég fæ að prufa þinn á nordslafen ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 08. Aug 2007 21:21 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Getur einhver lánað mér bíl
![]() já |
Author: | ta [ Wed 08. Aug 2007 23:58 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Getur einhver lánað mér bíl
![]() já |
Author: | ValliFudd [ Thu 09. Aug 2007 23:01 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Getur einhver lánað mér bíl
![]() já, ég er á spáni svo ég þarf minn ekki ![]() |
Author: | Porsche-Ísland [ Fri 10. Aug 2007 18:40 ] |
Post subject: | |
Veðurfræðingar lofa góðu veðri í kvöld,, einn og einn skúr gæti sést en hvað um það. Farinn upp á braut. Sjáumst. |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |