bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Spurning varðandi kaup á varahlutum erlendis.. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23499 |
Page 1 of 2 |
Author: | SteiniDJ [ Wed 01. Aug 2007 18:30 ] |
Post subject: | Spurning varðandi kaup á varahlutum erlendis.. |
Sælir. Er að fara versla mér ljós á bílinn á http://www.schmiedmann.com og var að velta fyrir mér einu varðandi við verðið. Það stendur: Code: [b]Price excl. tax:[/b] € 20,14
[b]Price incl. tax:[/b] € 25,17 Hvað á ég að velja til að reikna verðið? Þarf ég að borga skattinn þarna úti líka? Biðst afsökunnar ef þessi spurning hefur komið áður. ![]() Kv, Steini. |
Author: | gstuning [ Wed 01. Aug 2007 22:20 ] |
Post subject: | |
þarft ekki að borga state vat. notar excluding tax. |
Author: | SteiniDJ [ Wed 01. Aug 2007 22:37 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: þarft ekki að borga state vat.
notar excluding tax. Kærar þakkir! |
Author: | SteiniDJ [ Wed 01. Aug 2007 22:54 ] |
Post subject: | |
Hefur einhver pantað af þessari síðu? Þegar ég held áfram í order vill hann láta mig borga fullan skatt (incl. tax) og ég virðist ekki geta losað mig við það. Hvernig fæ ég upp réttan skatt? Botna ekkert í þessu. |
Author: | xtract- [ Wed 01. Aug 2007 23:03 ] |
Post subject: | |
færðu skattinn ekki endurgreiddann eða eitthvað því líkt? |
Author: | Svezel [ Wed 01. Aug 2007 23:11 ] |
Post subject: | |
þegar ég pantaði hjá þeim fyrir nokkrum árum vildu þeir ekki fella niður skattinn nema ég væri með fyrirtæki ![]() |
Author: | xtract- [ Wed 01. Aug 2007 23:22 ] |
Post subject: | |
og helduru að það skipti mali hvernig fyrirtæki þetta er? |
Author: | SteiniDJ [ Wed 01. Aug 2007 23:23 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: þegar ég pantaði hjá þeim fyrir nokkrum árum vildu þeir ekki fella niður skattinn nema ég væri með fyrirtæki
![]() Maður gæti reynt að redda því :/ Mjög sérstakt. |
Author: | gstuning [ Wed 01. Aug 2007 23:56 ] |
Post subject: | |
það að þeir felli ekki niður skattinn þegar er verið að senda til útlanda er alveg fáránlegt og í raun ólöglegt. |
Author: | Svezel [ Thu 02. Aug 2007 10:46 ] |
Post subject: | |
mín reynsla af scmiedmann er bara ekki góð, leiðindakallar sem svara seint eða aldrei og alltaf með einhverja svona stæla. hef allaveganna ekki hugsað mér að versla aftur við þá. |
Author: | gstuning [ Thu 02. Aug 2007 12:00 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: mín reynsla af scmiedmann er bara ekki góð, leiðindakallar sem svara seint eða aldrei og alltaf með einhverja svona stæla. hef allaveganna ekki hugsað mér að versla aftur við þá.
sama hér, maður hreinlega verður að hringja til að fá eitthvað frá þeim, hef sent email og beðið endalaust og fengið svo svar mörgum vikum seinna, þeim vantar hreinlega að ráða meiri starfskraft. |
Author: | gunnar [ Thu 02. Aug 2007 12:41 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Svezel wrote: mín reynsla af scmiedmann er bara ekki góð, leiðindakallar sem svara seint eða aldrei og alltaf með einhverja svona stæla. hef allaveganna ekki hugsað mér að versla aftur við þá. sama hér, maður hreinlega verður að hringja til að fá eitthvað frá þeim, hef sent email og beðið endalaust og fengið svo svar mörgum vikum seinna, þeim vantar hreinlega að ráða meiri starfskraft. Nei, það vantar bara að reka allt þetta helvítis pakk þarna og ráða hæfari og fleiri menn þarna. Þjónustustigið er svipað og í Bónus þarna. |
Author: | SteiniDJ [ Thu 02. Aug 2007 16:43 ] |
Post subject: | |
Mælið þið með einhverri annari BMW-vefverslun sem er á ensku? Væri vel þegið! ![]() |
Author: | JonFreyr [ Thu 02. Aug 2007 16:44 ] |
Post subject: | Piff |
Þetta eru bjánar upp til hópa, ég fór með mín viðskipti til lögfræðings (vinur tengdamömmu) hérna úti....þeir létu mig borga "moms" af því sem ég verslaði hjá þeim og sögðu að ég þyrfti að fá endurgreitt á flugvellinum. Þegar á flugvöllinn var komið kom í ljós að Schmiedmann eru ekki viðurkenndir af GlobalRefund og tollurinn hérna úti endurgreiðir ekki krónu af vörum sem koma frá Schmiedmann. EKKI versla frá þeim nema þeir gefi moms-lausa nótu, bara ekki láta húkka þig á því að þú getir fengið endurgreitt síðar í ferlinu. Þú þarft ekki að vera með fyrirtæki til að fá endurgreiddan virðisaukann, þegar að varan er seld úr landi að þá þurfa þeir ekki að skila virðisauka af vörunni. Einfalt mál. Hins vegar vilja þeir ekki tala við hvorki mig né þennan aðila sem fór að garfa í mínum málum. Þeir svara ekki fyrirspurnum gegnum email og skelltu á manneskju frá NordiskeTax sem vildi fá upplýsingar um þessar nýju "vinnureglur" Schmiedmann. Það er ólöglegt að rukka um virðisauka ef að varan er seld úr landi. Einfalt ![]() Vona að þetta hjálpi. |
Author: | crashed [ Thu 02. Aug 2007 18:59 ] |
Post subject: | Re: Piff |
JonFreyr wrote: Þetta eru bjánar upp til hópa, ég fór með mín viðskipti til lögfræðings (vinur tengdamömmu) hérna úti....þeir létu mig borga "moms" af því sem ég verslaði hjá þeim og sögðu að ég þyrfti að fá endurgreitt á flugvellinum. Þegar á flugvöllinn var komið kom í ljós að Schmiedmann eru ekki viðurkenndir af GlobalRefund og tollurinn hérna úti endurgreiðir ekki krónu af vörum sem koma frá Schmiedmann. þetta er mjög einfalt þeir rukka þig um virðisauka og hriða hann svo sjálfir
EKKI versla frá þeim nema þeir gefi moms-lausa nótu, bara ekki láta húkka þig á því að þú getir fengið endurgreitt síðar í ferlinu. Þú þarft ekki að vera með fyrirtæki til að fá endurgreiddan virðisaukann, þegar að varan er seld úr landi að þá þurfa þeir ekki að skila virðisauka af vörunni. Einfalt mál. Hins vegar vilja þeir ekki tala við hvorki mig né þennan aðila sem fór að garfa í mínum málum. Þeir svara ekki fyrirspurnum gegnum email og skelltu á manneskju frá NordiskeTax sem vildi fá upplýsingar um þessar nýju "vinnureglur" Schmiedmann. Það er ólöglegt að rukka um virðisauka ef að varan er seld úr landi. Einfalt ![]() Vona að þetta hjálpi. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |