bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bifreiðaumboðið B&L skiptir um eigendur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23467
Page 1 of 2

Author:  bjahja [ Tue 31. Jul 2007 11:28 ]
Post subject:  Bifreiðaumboðið B&L skiptir um eigendur

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frett.html?nid=1282930

Er það satt að þetta sé IH :shock: :shock: :argh:

Author:  IngóJP [ Tue 31. Jul 2007 11:32 ]
Post subject: 

ef ég man rétt þá eru þetta sömu menn og keyptu IH

Author:  Djofullinn [ Tue 31. Jul 2007 11:33 ]
Post subject: 

Vonandi ekki IH miðað við sögurnar sem maður hefur heyrt um ábyrgðarviðgerðir...

Author:  bimmer [ Tue 31. Jul 2007 11:39 ]
Post subject: 

Væri gaman að vita af hverju selt er.....

Author:  X-ray [ Tue 31. Jul 2007 11:39 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Vonandi ekki IH miðað við sögurnar sem maður hefur heyrt um ábyrgðarviðgerðir...


Gert er ráð fyrir að reka félagið áfram í sömu mynd og verið hefur og verður Erna Gísladóttir áfram forstjóri félagsins.


Hún Erna sér um sína :wink:

Author:  Djofullinn [ Tue 31. Jul 2007 11:41 ]
Post subject: 

X-ray wrote:
Djofullinn wrote:
Vonandi ekki IH miðað við sögurnar sem maður hefur heyrt um ábyrgðarviðgerðir...


Gert er ráð fyrir að reka félagið áfram í sömu mynd og verið hefur og verður Erna Gísladóttir áfram forstjóri félagsins.


Hún Erna sér um sína :wink:
Jájá en örugglega undir áhrifum og leiðsögn frá nýjum eigendum :)

Author:  ///M [ Tue 31. Jul 2007 11:42 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
X-ray wrote:
Djofullinn wrote:
Vonandi ekki IH miðað við sögurnar sem maður hefur heyrt um ábyrgðarviðgerðir...


Gert er ráð fyrir að reka félagið áfram í sömu mynd og verið hefur og verður Erna Gísladóttir áfram forstjóri félagsins.


Hún Erna sér um sína :wink:
Jájá en örugglega undir áhrifum og leiðsögn frá nýjum eigendum :)


yfirleitt þegar fyrirtæki skipta um eigendur og þetta er sagt þá endist það í svona tvo daga áður en hlutirnir byrja að breytast :lol:

Author:  srr [ Tue 31. Jul 2007 13:07 ]
Post subject: 

///M wrote:
Djofullinn wrote:
X-ray wrote:
Djofullinn wrote:
Vonandi ekki IH miðað við sögurnar sem maður hefur heyrt um ábyrgðarviðgerðir...


Gert er ráð fyrir að reka félagið áfram í sömu mynd og verið hefur og verður Erna Gísladóttir áfram forstjóri félagsins.


Hún Erna sér um sína :wink:
Jájá en örugglega undir áhrifum og leiðsögn frá nýjum eigendum :)


yfirleitt þegar fyrirtæki skipta um eigendur og þetta er sagt þá endist það í svona tvo daga áður en hlutirnir byrja að breytast :lol:

Hefur allavega gerst í öllum þeim sameiningum sem ég hef gengið í gegnum :lol:

Author:  iar [ Tue 31. Jul 2007 13:09 ]
Post subject: 

Meira um þetta á vb.is:

http://www.vb.is/index.php?menu=news&su ... source=ext

Quote:
Sund ehf. kaupir bifreiðaumboðið B&L
- eiga einnig bifreiðaumboðið Ingvar Helgason


Sævarhöfði ehf., félag í eigu Sunds ehf., sem meðal annars á bifreiðaumboðið Ingvar Helgason ehf., hefur keypt allt hlutafé í bifreiðaumboðinu B&L, samkvæmt öruggum heimildum Viðskiptablaðsins. Samningur um kaupin er þó háður samþykki birgja.

B&L var að stærstum hluta í eigu fjölskyldu Gísla Guðmundssonar, fyrrverandi forstjóra og núverandi stjórnarformanns B&L. B&L hefur umboð fyrir BMW, Huyndai, Land Rover og Renault og rekur umfangsmikla sölu á notuðum bílum ásamt stóru þjónustuverkstæði á Grjóthálsi 1 og Viðarhöfða 1 í Reykjavík.

Með kaupunum verða tvö fyrirtæki í eigu tengdra aðila sem hafa innan sinna vébanda umboð fyrir 11 bílaframleiðendur, þar af hefur Ingvar Helgason umboð fyrir fimm; Isuzu, Nissan, Opel, Saab og Subaru auk Ameríkugerða Chevrolet og Cadillac. Þess má geta í þessu samhengi að Hekla hf. ásamt tengdum félögum hefur umboð fyrir sex bílaframleiðendur.

Starfsmönnum B&L var tilkynnt um kaupin í gær og síðdegis í gær stóð til að halda starfsmannafund hjá Ingvari Helgasyni.

Kristinn Geirsson, sem er hluthafi í Sævarhöfða, segir að samningurinn gangi í gegn þegar samið hafi verið við alla birgja. Hann segir að ekkert sé sjálfgefið með það að allir birgjar samþykki kaupin en niðurstaða um það fáist líklega innan mánaðar.

Kaupin á B&L hafa átt sér nokkurra mánaða aðdraganda. Fyrirtækin verða rekin aðskilin og sem tvö fyrirtæki.
"Það liggur fyrir að Erna Gísladóttir heldur áfram að reka B&L. Síðan verður hagræðing í fjármálum skoðuð gaumgæfilega. Grunnatriði sem snúa að viðskiptavinunum eru óbreytt og fyrirtækin rekin áfram sem sjálfstæð félög," segir Kristinn.

Þó er ljóst að þegar fram í sækir þykir líklegt að ná megi fram mikilli framlegð í rekstri fyrirtækjanna með samnýtingu í stjórnun og á öðrum sviðum. Um þetta sagði Kristinn að ekkert sérstakt lægi fyrir um þetta en ýmislegt væri hægt að gera sem eigendur ætluðu að gefa sér góðan tíma til þess að skoða. Kristinn sagði að kaupverð væri trúnaðarmál á milli kaupenda og seljenda.

Sævarhöfði ehf. er að stærstum hluta í eigu Sunds ehf. en að auki eru hluthafar Kristinn Geirsson, Haukur Guðjónsson, forstjóri Ingvars Helgasonar, og fleiri aðilar.

Rúmlega 100 manns vinna hjá Ingvar Helgasyni sem hefur í nær 50 ár starfað við sölu og þjónustu á bifreiðum og tækjum. Um 100 manns vinna hjá B&L. Ekki náðist í Ernu Gísladóttur, forstjóra B&L, í gær.

Author:  Einarsss [ Tue 31. Jul 2007 14:00 ]
Post subject: 

Þeir verða náttúrulega að fylgja gæðikerfi og þjónustustöðlum frá bmw til að halda umboðinu þannig að þetta ætti vonandi ekki að breyta miklu fyrir okkur

Author:  Steini B [ Tue 31. Jul 2007 14:10 ]
Post subject: 

Æjj, mér lýst ekkert á þetta... :?

Author:  Gunni [ Tue 31. Jul 2007 14:25 ]
Post subject: 

Þið verðið að átta ykkur á því að þetta ER EKKI IH sem er að kaupa Bogl
heldur sömu aðila og nýverið keyptu IH.

Þ.a.l. á ekki að draga þá ályktun að stimpillinn sem IH hefur haft á sér
ferðist sjálfkrafa yfir til bogl. Svo er líka frekar ólíklegt að nýjir eigendur
geri þjónustu viljandi verri til að fæla frá viðskiptavini :hmm:

Author:  IvanAnders [ Tue 31. Jul 2007 17:52 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
Þið verðið að átta ykkur á því að þetta ER EKKI IH sem er að kaupa Bogl
heldur sömu aðila og nýverið keyptu IH.

Þ.a.l. á ekki að draga þá ályktun að stimpillinn sem IH hefur haft á sér
ferðist sjálfkrafa yfir til bogl. Svo er líka frekar ólíklegt að nýjir eigendur
geri þjónustu viljandi verri til að fæla frá viðskiptavini :hmm:


ORÐ!

Svo má ekki gleyma að IH fékk þennan stimpil á sig, áður en það var selt.

Maður verður bara að vona það besta! :)

Author:  HPH [ Tue 31. Jul 2007 19:58 ]
Post subject: 

þetta er BARA LAME. :gay: [-( Nú missi ég aukavinnuna mína alveg örgulega.

Author:  Thrullerinn [ Tue 31. Jul 2007 22:49 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
Þið verðið að átta ykkur á því að þetta ER EKKI IH sem er að kaupa Bogl
heldur sömu aðila og nýverið keyptu IH.

Þ.a.l. á ekki að draga þá ályktun að stimpillinn sem IH hefur haft á sér
ferðist sjálfkrafa yfir til bogl. Svo er líka frekar ólíklegt að nýjir eigendur
geri þjónustu viljandi verri til að fæla frá viðskiptavini :hmm:


Góður póstur.

Fjölskylda að selja fjölskyldufyrirtækið, ekkert að því. Spurning bara hvort
þau flétti saman rekstrinum, þ.e. húsnæði o.fl. á næstu árum.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/