Jæja strákar er komin með verð. !
þetta varierar frá um 40m/vsk (to-door þristur væri um 35þús m/vsk) og upp ef þið eruð með topplúgu þá er það smá auka peningur vegna þess að ég þarf að borga saumakonuni/bólstara fyrir að sauma í það svo að hann fylgi fallega með OEM style ! þeir sem eru með sóllúgu koma bara með drag hilluna og við klæðum hana.
Þetta verð er þannig að þið komið með toppinn og pillerana tekna úr bílnum, rífið af gamla ljóta dúkinn þrífið hann, hérna má sjá góðar leiðbeiningar hvernig má þrífa svona
topp mæli eindregið með þvi að þið fáið ykkur nagla bursta og svo bara nudda, ættuð ekki að vera mikið lengur en klukkutíma að þessu...
Flott að taka toppinn út eftir vinnu, þrífan. Ætti að taka ykkur 1,5-2 tíma í heildina, komið svo með toppinn til mín að morgni til og sækið hann eftir vinnu. Setjið toppinn í, njótið hina fallegu áferð sem Alcantaraið hefur, farið svo út að rúnta og montið ykkur á næstu samkomu
