Page 1 of 2
NÚ ER MINN Í FÝLU!

Posted:
Thu 14. Aug 2003 20:41
by bebecar
Fór loksins með gamla hvíta í skoðun - nema hvað ég fékk endurskoðun í fyrsta skipti á ævinni!
Handbremsan heldur ekki nógu vel vinstra megin - er eðlilegt að maður fái endurskoðun út þetta eina atriði?


Posted:
Thu 14. Aug 2003 21:29
by íbbi_
prufaðu að vera á mínum aldri og fara með bíla eins og þá sem ég hef farið með í skoðun,


Posted:
Thu 14. Aug 2003 21:40
by bebecar
Hehe.. já - ég ætti ekki að vera að kvarta... varstu alltaf með endurskoðun?

Posted:
Thu 14. Aug 2003 21:48
by Kull
Hvert fórstu með hann í skoðun eiginlega??

Posted:
Thu 14. Aug 2003 21:53
by bebecar
Inní Garðabæ - ég hef farið þar lengi, en nú var annar kall að afgreiða. Hann setti líka út á að það væri ekkert gúmmí á bremsupetalanum!!! Ég var nú með það í hanskahólfinu.

Posted:
Thu 14. Aug 2003 21:56
by íbbi_
það kemur fyrir að maður fekk skoðun, en þeir settu útá allt sem þeir mögulega gátu fór eitt sinn með bíl í skoðun á íso, fékk endurskoðun.. brunaði suður og með hann í skoðun án þess að gera nokkurn skapaðan hlut, fékk enga athugasemd, og skoðunarkarlin hrósaði bílnum

Posted:
Thu 14. Aug 2003 21:57
by Kull
núnú, hvaða skoðun er þar?
Annars hef ég farið tvisvar útá nes, mjög fínir í bæði skiptin.

Posted:
Thu 14. Aug 2003 22:01
by íbbi_
Frumherji hf eða ehf. fór reyndar með hann í frumherja fyrir sunnan líka.

Posted:
Thu 14. Aug 2003 22:47
by Svezel
Þú verður þá bara taka hammara í vinstri beygju

Re: NÚ ER MINN Í FÝLU!

Posted:
Thu 14. Aug 2003 22:50
by Benzari
bebecar wrote:Fór loksins með gamla hvíta í skoðun - nema hvað ég fékk endurskoðun í fyrsta skipti á ævinni!
Handbremsan heldur ekki nógu vel vinstra megin - er eðlilegt að maður fái endurskoðun út þetta eina atriði?

Þetta er fáránlegt, finnst að hann ætti ekki að fá endurskoðun útaf þessu.

Posted:
Thu 14. Aug 2003 23:03
by bebecar
Það finnst mér líka! Og græni miðinn er ÆPANDI þarna í framrúðunni!


Posted:
Thu 14. Aug 2003 23:09
by Moni
hehe hann blasir þá alltaf við þér...
-

Posted:
Thu 14. Aug 2003 23:24
by hagur
Ugh ... þessir grænu miðar eru nú meiri viðbjóðurinn. Örugglega vísvitandi gert að hafa þá svona græna. Menn frekar drífa sig þá að lagfæra það sem er að og fá "alvöru" miða.
En að fá endurskoðun út á svona tittlingaskít er fyrir neðan flest allar, ef ekki allar gangstéttarhellur.


Posted:
Thu 14. Aug 2003 23:34
by Moni
ég fékk líka endurskoðun útá þetta...
Sömu megin hjá mér líka... ætli þetta sé smitandi bebecar??


Posted:
Fri 15. Aug 2003 08:28
by bebecar
Örugglega! "Leftushandbremsus sýklópadíus" er latneska heitið á þessu!