Akstursleikni 11-07-07

Hér skal spjalla um BMW.

Akstursleikni 11-07-07

Postby Porsche-Ísland » Tue 10. Jul 2007 09:05

Akstursbraut.is stendur fyrir æfingu í akstursleikni á Miðvikudagskvöldið 11-07-07.
Búið er að leggja braut sem búið er að marka af með keilum og tími tekinn á bílum. Þetta hentar öllum bílum, vélarafl er algjört auka atriði.
Við byrjum kl. 19.00 og verðum fram eftir kvöldi.

Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og
þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs.

Fólk er beðið um að aka malarveginn rólega.


En annars er bara stöðluð auglýsing. 04. Júlí verður akstursleikni á Rallykross brautinni.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna.

Eknir eru 1 hringir í einu.


Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.
Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. / / 2007


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.

Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.

Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda
né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni -
hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________ ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Halldór Jóhannsson
Porsche 944 Turbo S '89
Porsche 924 Turbo '81
Porsche Boxster S '02
Audi A6 Quattro Avant '96
User avatar
Porsche-Ísland
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 409
Joined: Fri 28. Jan 2005 17:47
Location: Reykjavík

Postby IngóJP » Tue 10. Jul 2007 11:23

viðauki kominn kaupi hjálm á eftir og og bíllinn í standi
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby HPH » Tue 10. Jul 2007 11:38

IngóJP wrote:viðauki kominn kaupi hjálm á eftir og og bíllinn í standi

ætlar þú á Master.
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby IngóJP » Tue 10. Jul 2007 12:41

HPH wrote:
IngóJP wrote:viðauki kominn kaupi hjálm á eftir og og bíllinn í standi

ætlar þú á Master.


afhverju ætti ég að fara á master :lol: kem á fólksbílnum
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby finnbogi » Tue 10. Jul 2007 16:00

IngóJP wrote:
HPH wrote:
IngóJP wrote:viðauki kominn kaupi hjálm á eftir og og bíllinn í standi

ætlar þú á Master.


afhverju ætti ég að fara á master :lol: kem á fólksbílnum



ég held að þér sé alveg óhætt að breyta undirskrift úr "Hvað Næst?" í VW
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image
finnbogi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2645
Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni

Postby IngóJP » Wed 11. Jul 2007 16:54

jæja hverjir ætla að mæta?
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Aron Andrew » Thu 12. Jul 2007 00:13

53,15 8)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby IngóJP » Thu 12. Jul 2007 01:40

þú varst bara að standa þig :wink:

ég er samt sáttur með mína tíma þó svo þeir hafi ekki verið spes...enda að læra á bíllinn og brautina.. kemur allt með æfingunni
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby arnibjorn » Thu 12. Jul 2007 07:48

Aron Andrew wrote:53,15 8)

Á keilubananum ógurlega! 8) :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby iar » Thu 12. Jul 2007 13:46

Aron Andrew wrote:53,15 8)


Magnað! Hvernig var brautin sett upp?
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby arnibjorn » Thu 12. Jul 2007 13:48

iar wrote:
Aron Andrew wrote:53,15 8)


Magnað! Hvernig var brautin sett upp?

Ekkert bakkað og svo áður en þú komst að beinakaflanum keyrðiru í kring um tunnu og svo í keilu sikk-sakk í beinakaflanum og keyra svo beint í stæði og stoppa. :P

Vona að þú fattir þetta :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby bjahja » Thu 12. Jul 2007 14:16

ohhh, ég væri til í að testa brautinni svoleiðis :D
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby arnibjorn » Thu 12. Jul 2007 14:20

bjahja wrote:ohhh, ég væri til í að testa brautinni svoleiðis :D

Bara ekki taka Aron á þetta...

Missa bílinn í beinakaflanum og nánast strauja alla keilurnar :lol:

Bara fyndið að bíllinn hans var með keilufar á öllum hliðum! :D

En hann var líka að keyra þetta mjög hratt! 8)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby xtract- » Thu 12. Jul 2007 14:21

hvad voru bestu timarnir?
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby arnibjorn » Thu 12. Jul 2007 14:24

xtract- wrote:hvad voru bestu timarnir?


51.16 eða 51.23 var besti tíminn þegar að ég fór.

Einhver Imprezu gutti sem náði honum..... í fyrsta rönni meira að segja held ég! :shock:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests