bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leikdagur 7 og 8. Ekið í hina áttina þessa helgi. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=23017 |
Page 1 of 4 |
Author: | Porsche-Ísland [ Thu 05. Jul 2007 12:41 ] |
Post subject: | Leikdagur 7 og 8. Ekið í hina áttina þessa helgi. |
Gaman að sjá hvernig það kemur út. Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs. Vinsamlegast farið varlega á malarveginum. En annars er bara stöðluð auglýsing. Föstudagskvöldið 06. Júlí verður leikdagur á Rallykross brautinni. Brautin verður opin frá 20 og frameftir. Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 8. Júlí og þá frá 10 um morguninn og fram eftir degi. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna. Eknir eru 5 hringir í einu. Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. / / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala |
Author: | xtract- [ Thu 05. Jul 2007 12:53 ] |
Post subject: | |
frábært framtak að hafa þetta hverja helgi, hvað þá bæði föstudag og sunudag ![]() Gaman að sjá svona metnað. Ef mig minnir rétt frá því í fyrra þá er þetta allt saman skref í réttustu átt ![]() |
Author: | gunnar [ Thu 05. Jul 2007 12:57 ] |
Post subject: | |
Ugh hefði verið til í að koma um helgina og keyra.. ![]() Jæja kem þá bara næstu ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 05. Jul 2007 13:02 ] |
Post subject: | |
Ég keyri ef það verður þurrt ![]() Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu ![]() |
Author: | zazou [ Thu 05. Jul 2007 14:21 ] |
Post subject: | |
Það verður áhugavert. Þarf þá ekki að smækka pittinn? Bílar sem koma á fleygi ferð í átt að pittinum áður en kemur að hlykknum geta skapað hættu. |
Author: | gunnar [ Thu 05. Jul 2007 14:22 ] |
Post subject: | |
zazou wrote: Það verður áhugavert.
Þarf þá ekki að smækka pittinn? Bílar sem koma á fleygi ferð í átt að pittinum áður en kemur að hlykknum geta skapað hættu. Sammála því, spurning um að fara pittinn í áttina að það sem áhorfendurnir leggja bílunum, þ.e.a.s, hafa röðina þar hjá. Svo menn lendi nú ekki í því að negla á hvorn annan ef þeir ná ekki beygjunni. |
Author: | bjahja [ Thu 05. Jul 2007 14:38 ] |
Post subject: | |
Djöfull, fyrsta skiptið í sumar sem ég get komið og þá er eithvað svona í gangi ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 05. Jul 2007 14:45 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Djöfull, fyrsta skiptið í sumar sem ég get komið og þá er eithvað svona í gangi
![]() Þetta á eftir að vera svolítið spes... Ég var rétt svo byrjaður að geta spólað eitthvað þarna í rétta átt... spurning hvernig mér gengur í hina! ![]() En já svo er spurning með hvernig piturinn verður.. ![]() |
Author: | bimmer [ Thu 05. Jul 2007 14:52 ] |
Post subject: | |
Spurning hvort sá blái verði kominn úr tolli...... |
Author: | F2 [ Thu 05. Jul 2007 15:20 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: Ég keyri ef það verður þurrt
![]() Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu ![]() Gríslingur Lærir mest á því að æfa þig í bleytu!!! ![]() |
Author: | zazou [ Thu 05. Jul 2007 15:24 ] |
Post subject: | |
F2 wrote: arnibjorn wrote: Ég keyri ef það verður þurrt ![]() Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu ![]() Gríslingur Lærir mest á því að æfa þig í bleytu!!! ![]() Og kostar minna... ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 05. Jul 2007 15:31 ] |
Post subject: | |
F2 wrote: arnibjorn wrote: Ég keyri ef það verður þurrt ![]() Nenni ekki að mæta þarna í hellidembu ![]() Gríslingur Lærir mest á því að æfa þig í bleytu!!! ![]() Jájá allt í lagi að keyra í bleytu. En það er hundleiðinlegt að hanga þarna í grenjandi rigningu ![]() Þið verðið að redda nýjum gám maður! ![]() |
Author: | siggir [ Thu 05. Jul 2007 15:38 ] |
Post subject: | |
Miklu skemmtilegra að keyra í blautu ![]() Það er hægt að setja hraðahindrun til móts við pittinn.. Búa bara til hlykk með keilum og dóti. ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 05. Jul 2007 15:40 ] |
Post subject: | |
Leggja bara Ofurbling Audi-inum fyrir pittinn.. þá eru allir safe ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Sat 07. Jul 2007 01:45 ] |
Post subject: | |
Þetta var bara nokkuð gaman ![]() Þakka fyrir mig! |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |