Verð á bremsudiskum....
Langaði nú aðeins að forvitnast... Hef mikið átt af benzum um ævina og alltaf verið ótrúlega sáttur við verðið á varahlutum hjá umboðinu bæði þegar Ræsir var og nú Öskju. En málið er að ég er að skipta um bremsudiska að framan í E46 bílnum hjá mér og hringdi fyrst í Bull & Lygi og þar fékk ég uppgefið verð 15 þús krónur stk á bremsudisk meðan TB er að bjóða þá á 6775 stk.. Er B&L að okra eða er svona SVAKALEGUR gæðamunur á þeirra vöru miðað við TB? Fyrir þá sem ekki skilja þá er TB Tækniþjónusta Bifreiða
Kveðja
Kveðja
