bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leikdagur no. 5. og 6. á Akstursbraut.is 29.júní og 1. Júlí https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=22848 |
Page 1 of 9 |
Author: | Porsche-Ísland [ Tue 26. Jun 2007 00:55 ] |
Post subject: | Leikdagur no. 5. og 6. á Akstursbraut.is 29.júní og 1. Júlí |
Þannig að núna er um að gera að ná sér í viðauka , reyna að fá hann bara fyrir allt árið og þá eru tryggingarsölumennirnir lausir við ykkur það sem eftir er árs. Dálítið bar á því að menn voru að spóla á malarveginum að og frá braut. Ef sést til manna gera þetta aftur þá verða þeir gerðir brottræknir af svæðinu. En annars er bara stöðluð auglýsing. Föstudagskvöldið 29. Júní verður leikdagur á Rallykross brautinni. Brautin verður opin frá 20 og frameftir. Síðan verður aftur leikdagur Sunnudaginn 1. Júlí og þá frá 10 um morguninn og fram eftir degi. Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína. Áhorfendur eru beðnir um að leggja við sjoppuna. Eknir eru 5 hringir í einu. Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu. Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka. Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir. Menn fá ekki að aka ef dekk eru orðin slitin inn í striga. Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini. Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm. Vinsamlegast komið með eigin hjálm, það flýtir fyrir. Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það. Gjald fyrir að aka er 5000 kr. meðlima gjald og síðan verður 1000 kr. gjald fyrir hvern dag eftir það. Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og peninginn eða kort. Engin undanþága verður frá þessum reglum. Mér þykir leitt að senda menn heim án þess að fá að aka en lögin eru bara svona og ég fer eftir þeim. Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020. Þáttökuyfirlýsing Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri sem fram fer þ. / / 2007 Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu. Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð. Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón. ______________________________________ Nafn ökumanns ___________________ Kennitala _____________ Bílnúmer ____________ ____________________ GSM númer og e-mail (vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára) Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi. _____________________________________ Nafn forráðamanns _____________________ Kennitala |
Author: | xtract- [ Tue 26. Jun 2007 00:59 ] |
Post subject: | |
gott framtak, gaman ad fylgjast med svona a fostudagskvoldinu ;d |
Author: | arnibjorn [ Tue 26. Jun 2007 09:23 ] |
Post subject: | |
Á einhver 15" E30 felgur sem hann vill lána mér? ![]() ![]() Helst ekki á dekkjum... því að ég á fullt af 15" spól dekkjum ![]() |
Author: | Einarsss [ Tue 26. Jun 2007 09:28 ] |
Post subject: | |
Reyni að mæta ef ég get ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Tue 26. Jun 2007 09:41 ] |
Post subject: | |
ég verð FRESH á föstudaginn ![]() |
Author: | Svezel [ Tue 26. Jun 2007 09:59 ] |
Post subject: | |
aronisonfire wrote: ég verð FRESH á föstudaginn
![]() Svona FRESH? ![]() Flott framtak, reyni að kíkja eitthvað við ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Tue 26. Jun 2007 10:14 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: aronisonfire wrote: ég verð FRESH á föstudaginn ![]() Svona FRESH? ![]() Flott framtak, reyni að kíkja eitthvað við ![]() ![]() ég mun vera meira fresh ef eitthvað er ![]() ![]() |
Author: | Danni [ Tue 26. Jun 2007 10:16 ] |
Post subject: | |
Dem næturvaktahelgi ![]() ![]() |
Author: | Steinieini [ Tue 26. Jun 2007 19:18 ] |
Post subject: | |
Hefur einhver reynt að fá viðauka fyrir allt sumarið hjá elísabet? Gekk ekki hjá mér ![]() |
Author: | xtract- [ Tue 26. Jun 2007 21:41 ] |
Post subject: | |
reyni ad maeta, en adeins til ad fylgjast med, kannski madur heimti hring i lu 230 ![]() |
Author: | Arnarf [ Wed 27. Jun 2007 11:06 ] |
Post subject: | |
Hringdi, var ekkert mál að fá tryggingarviðauka sem gildir að 1.sept. Stendur reyndar "Ábyrgðartrygging gildir við æfingar og keppni í kvartmílu til 01.09.07..." Ég spurði hvort þetta gilti þá bara á kvartmílubrautinni, hún sagði nei, gildir líka á akstursbrautinni. |
Author: | zazou [ Wed 27. Jun 2007 11:22 ] |
Post subject: | |
Arnarf wrote: Hringdi, var ekkert mál að fá tryggingarviðauka sem gildir að 1.sept.
Stendur reyndar "Ábyrgðartrygging gildir við æfingar og keppni í kvartmílu til 01.09.07..." Ég spurði hvort þetta gilti þá bara á kvartmílubrautinni, hún sagði nei, gildir líka á akstursbrautinni. Ég lenti í því sama hjá VÍS, það er eins og það sé ekkert til nema 402 metrar beint áfram í þeirra bókum ![]() |
Author: | Einarsss [ Wed 27. Jun 2007 11:27 ] |
Post subject: | |
Ég var einmitt að fá trygginga viðauka frá TM og þar stóð Quote: Það staðfestist hér með að ofangreint ökutæki er skyldutryggt við
skipulagðar æfingar á vegum Kvartmíluklúbbsins á Rallýkrossbrautinni í Hafnarfirði og Kvartmílubrautinni að því gefnu að viðkomandi sé félagsmaður í Kvartmíluklúbbnum. Kaskótrygging gildir ekki í ofangreindum tilvikum. en ég býst við að þetta dugi. Enda tiltekið að ég sé tryggður á rallýkross brautinni í hfj |
Author: | Jón Bjarni [ Wed 27. Jun 2007 11:52 ] |
Post subject: | |
Hvernig eruð þið að fá viðauka í svona langan tíma? Ég fæ alltaf sama svarið þegar ég er að byðja um viðauka út árið. þetta erí skoðun hjá okkur ![]() Eruð þið að tala við eitthvern sérstakan eða.. og já ég er tryggður hjá TM |
Author: | Erica [ Wed 27. Jun 2007 11:55 ] |
Post subject: | |
myndi tala aftur við TM.. einn sem fékk viðauka hjá þeim út árið og var það ekkert vandamál.. |
Page 1 of 9 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |