bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ljósmyndakeppni BMWKrafts og B&L - FRAMLENGT TIL 15. okt https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=22426 |
Page 1 of 2 |
Author: | iar [ Fri 01. Jun 2007 00:17 ] |
Post subject: | Ljósmyndakeppni BMWKrafts og B&L - FRAMLENGT TIL 15. okt |
Í sumar verðum við með í gangi ljósmyndakeppni. Keppnin mun standa frá og með 1. júní til og með 15. október. Nánari upplýsingar hér fyrir neðan og á http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/ Ljósmyndakeppni BMWKrafts og B&L ![]() ![]() Tilgangurinn með keppninni er að sameina áhugamál margra meðlima BMWKrafts, ljósmyndun og BMW og allt tengt BMW. Þema Allt tengt BMWKrafti, BMW og/eða öðrum tengdum málefnum. Tímabil Keppnin stendur frá og með 1. júní til og með 15. október 2007. Verðlaun Vegleg verðlaun eru í boði B&L. Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar að mati dómnefndar. * 1. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 30.000,- í verslun B&L * 2. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 20.000,- í verslun B&L * 3. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 10.000,- í verslun B&L Reglur * Þátttökurétt hafa allir gildir meðlimir í BMWKrafti * Hver þátttakandi má senda inn þrjár myndir. Ef þátttakandi sendir inn fleiri myndir eru aðeins þær þrjár nýjustu teknar gildar. * Myndir skal taka á stafræna myndavél og skila á jpeg sniði (.jpg) * Upplausn myndar er frjáls. Lágmark stærð mynda er þó 250px á annanhvorn kantinn. * Myndir skulu hafa verið teknar af sendanda á tímabilinu frá og með 1. júní til og með 31. ágúst 2007. * Innsend mynd verður að vera tekin á einum lýsingartíma (e. exposure). Undantekning á því eru svokallaðar HDR myndir. Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum né teikna inn á myndina. * Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Við mælum sterklega með að þú takir fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni í reitinn "Lýsing" til að auðvelda dómnefnd yfirferð á myndum. * Allar breytingar á myndum sem eru gerðar í myndavélinni sjálfri eru leyfðar. * Ekki má bæta neinum texta við/á myndirnar eftirá. * Óheimilt er að stækka myndflöt (canvas) til neins annars en að búa til sýnilegan ramma sem er aðgreinanlegur frá myndinni. * Þátttakendur gætu þurft að senda inn óbreytta, upprunalega mynd eins og hún var tekin ásamt lýsingum á því hvernig myndin var unnin eftir á í tölvu. Upprunalega myndin verður að innihalda EXIF upplýsingarnar gildar og óbreyttar. Ef ekki tekst að útvega myndina áður en 10 dagar líða frá því að óskað er eftir henni verður myndin dæmd úr leik. * BMWKraftur áskilur sér rétt til að nota myndirnar í kynningarefni og í birtingu úrslita keppninnar. Myndirnar munu þá vera greinilega merktar höfundum. Öll önnur notkun mynda er bönnuð nema að höfðu samráði við höfund. * Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna myndum sem brjóta gegn þessum reglum eða þykja af öðrum ástæðum ekki falla undir skilyrði og/eða þema keppninnar. * Dómnefnd hefur einnig rétt til að framlengja skilafrestinn eða jafnvel blása keppnina alveg af ef ekki næst næg þátttaka. Þátttaka Þátttökurétt hafa allir gildir meðlimir BMWKrafts. Hægt er að senda inn myndir á vef keppninnar: --> http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/ <-- |
Author: | Steini B [ Fri 01. Jun 2007 00:28 ] |
Post subject: | |
Ohh, og ég sem er nýbúinn að selja vélina mína... ![]() |
Author: | Kull [ Fri 01. Jun 2007 10:15 ] |
Post subject: | |
Flott mál, var einmitt að ljúka ljósmyndanámskeiði ![]() |
Author: | iar [ Fri 01. Jun 2007 11:08 ] |
Post subject: | |
Steini B wrote: Ohh, og ég sem er nýbúinn að selja vélina mína...
![]() Keppnin stendur í allt sumar svo það er nægur tími til að redda nýrri eða fá bara lánaða. ![]() |
Author: | elli [ Fri 01. Jun 2007 12:12 ] |
Post subject: | |
Þetta er skemtilegt uppátæki. Nú er bara að skipta um battery í vélini sem ég fékk hjá Sæma. Er ekki til eitthvað sem heitir "beginers luck" í ljósmyndun ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 14. Jun 2007 01:51 ] |
Post subject: | |
Flott þetta, ætla reyna vera með þó ég sé enginn súper ljósmyndari. |
Author: | Vargur [ Thu 14. Jun 2007 13:07 ] |
Post subject: | |
Frábært framtak ! Ég er forvitinn um dómnefndina, hverjir eru í dómnefnd og hvað hafa þeir til brunns að bera ? |
Author: | iar [ Wed 11. Jul 2007 00:15 ] |
Post subject: | |
Uppfært! B&L mun veita VEGLEG verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar: ![]() 1. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 30.000,- í verslun B&L 2. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 20.000,- í verslun B&L 3. sæti: Vöruúttekt að upphæð kr. 10.000,- í verslun B&L Varðandi dómnefndina (afsakaðu Dúfan, þessi póstur frá þér fór algerlega framhjá mér ![]() Nú fer tímabilið að verða hálfnað svo það er um að gera fyrir fólk að vera duglegt við að taka myndir og senda inn!! |
Author: | iar [ Thu 02. Aug 2007 22:37 ] |
Post subject: | |
Minni á að aðeins tæpur mánuður er eftir af ljósmyndakeppninni! Allt um keppnina, reglur, verðlaun og annað er að finna hér: http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/ Athugið að um MJÖG vegleg verðlaun í boði B&L er að ræða svo það er rugl að taka ekki þátt! ![]() |
Author: | iar [ Thu 30. Aug 2007 20:44 ] |
Post subject: | |
Síðasti dagurinn framundan! Það er pláss fyrir MIKLU fleiri myndir! Núna eru 10 þátttakendur búnir að senda inn samtals 18 myndir! |
Author: | Einarsss [ Tue 04. Sep 2007 12:24 ] |
Post subject: | |
Hvenær verða úrslitin kynnt? Maður er spenntur að sjá hvaða myndir vinna |
Author: | Hannsi [ Thu 13. Sep 2007 11:05 ] |
Post subject: | |
einarsss wrote: Hvenær verða úrslitin kynnt? Maður er spenntur að sjá hvaða myndir vinna
Var ekki verið að tala um að hafa það á árshátíðinni!? |
Author: | Einarsss [ Thu 13. Sep 2007 11:22 ] |
Post subject: | |
Hvar var talað um það? |
Author: | iar [ Thu 13. Sep 2007 11:40 ] |
Post subject: | |
einarsss wrote: Hvar var talað um það?
Orðið á götunni.. ![]() En jú. Planið er að úrslitin verði kynnt á árshátíðinni. ![]() |
Author: | iar [ Mon 24. Sep 2007 21:53 ] |
Post subject: | |
Ljósmyndakeppnin hefur verið framlengd til 15. október! Athugið að ekki verður tekið hart á því hvenær myndin er tekin, þ.e. myndin þarf ekki endilega að vera tekin á tímabilin júní-ágúst. Nú er um að gera að grafa upp góðu myndirnar og senda inn!! Khoma Schvo!! ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |