gstuning wrote:Afhverju er þetta besta BMW vélin??
Afþví að hún er 600hp+
Ég myndi segja að M5 nýjasta sé besta vélin
Þetta var nú bara fyrirsögnin, enda mjög teygjanlegt hvað er "besta" vélin.
En sú staðreynd að hún knýr áfram McLaren F1 vegur náttúrulega, þessi vél er óþreytandi í hvaða gír sem er, enda er millihröðun McLaren F1 hreint ótrúleg. Svo er ekki bara magnað hve kraftmikil hún er, heldur að hún skuli taka 627hö úr 6.1l vél á 7500 snúningum án allra forþjöppu trikka.
Það að þessi vél var gerð fyrir 10 árum dregur svo ekki í stórfengleikanum. Jú, Ferrari nær meira úr vélinni í Enzo, en m.v. að tíu ár eru liðin er það nú bara eins gott.