bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Eurotrip 2007, rúmlega 2000hp í fjórum bílum... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=22316 |
Page 1 of 14 |
Author: | saemi [ Sat 26. May 2007 01:52 ] |
Post subject: | Eurotrip 2007, rúmlega 2000hp í fjórum bílum... |
Þá er ferðalagið hafið. Í gærkveldi var tekið á móti byrjunarliði ferðarinnar í Hamborg. Enginn annar en Smári bílakaupmaður sá um að leysa út bifreiðar meðlima, að undanskildum einum sem var í vinnslu í Þýskalandi. Á hann þakkir skildar fyrir góða og hóflega verðlagða þjónustu þar á bæ, sem seint verður slegið við, en móttökurnar voru eftirminnilegar svo vægast sé sagt.... Náð var í félagana Þórð (Bimmer), Sveinbjörn (Alpina) og Sæmund (MR.BOOM) á lestarstöðina í Hamborg ásamt Baldri á hótelinu og ferðin byrjuð á bílferð í tveggja tímabelta bíl. Smári náði í liðið á forláta Cadillac sem er lengri en orð fá lýst, ef hann er á leið austur eða vestur þá eru farþegar í aftursæti í öðru tímabelti en þeir í framsætinu. Ófáir hálsar brustu við teygingar eftir þessu farartæki þegar farið var með ofantalda til kvöldsverðar í borg gámanna. Að kvöldverði loknum var haldið "heim" á leið og lúin ferðabein hvíld fyrir átök dagsins. Snemma morguns daginn eftir var svo náð í félagana á AUDI RS 6 sem Sveinbjörn aka Alpina hélt ekki vatni yfir. Er svo komið að hann talar fullmikið um þetta farartæki og spurning hvar þetta tal muni enda! Verður herr "!!!!!!!-----------Uber Taxi-------------!!!!!!!!!" að herr "----------!!!!!!!Allrad!!!!!!!!---------"???????? En nóg með það. Haldið var af stað og náð í farartækin sem biðu spennt eftir að spretta úr spori. Þórður tók smá þrifnaðarsession áður en haldið var af stað, bara til að keyra inn í skýfall klukkutíma seinna og gera bílinn nákvæmlega eins og áður en hafist var handa við þrifnaðinn. Gripirnir þrír, E39 supercharged M5 "onno", E39 "imola" M5, SL55 AMG Carlsson voru svo staðnir átján bláa sem leið lá niður þýskaland til Nurnberg. Þar biðu 2 ferðafélagar í viðbót, þeir Sæmi (Saemi) og Logi (Logi) sem komu með lest frá Frankfurt til móts við byrjunarliðið og var náð í þá á lestarstöðina og haldið rakleiðis í bækistöðvar "Auto Tauber" þar sem fjórði fararskjótinn beið spakur, herr RNGTOY! Auto Tauber höfðu þar lokið við breytingar á RNGTOY og var rætt um heima og geima þar á meðan snurfusaður var M5 "onno". Það kom nefnilega á daginn í 30° hér í Evrópu að loftkælingin var ekki alveg að gera sitt besta. MR.BOOM var ekki allskostar ánægður með loftkælinguna... eða frekar vöntun á loftkælingu í gripnum og lét það í ljós í talstöðinni á leiðinni. Baldur var ekki seinn á sér að segja hvað hann skildi það vel og hversu slæmt það væri ábyggilega að vera lofkælingarlaus. Hann væri einmitt í þessu að prufa í fyrsta skipti loftkælinguna í sætunum á SL bílnum.. sem virkaði bara glettilega vel.... ásamt lofkælingunni sem væri stillt á 18°. Þessu loftkælingarleysi var kippt í liðinn hjá þessum snillingum og í framhaldinu staðnir 16 bláir (4x4) í rökkrinu og myrkri áleiðis á áfangastað. Gekk á ýmsu á leiðinni þar sem herra onno fékk hiksta þar sem hann fék !!!!!BARA!!!!! vont bensín. Það lagaðist svo með góðum slurk af V-power. Síðan var supercharger reimin á leið af og var skorin í burtu að endingu. Herr RNGTOY missti annan og fjórða gír vegna óvæntra gírskiptis-vandamála. Morgundagurinn bíður okkar óþreyjufullur og kemur þá betur í ljós hvað gerist í málunum, en nokkuð víst er að bílarnir munu fá einhvern bata ef ekki fullann! Það stendur til að vera hér í Nurburg og Spa næstu daga.... setjum inn meira á næstunni. Kveðja á skerið! Sæmi, Sæmi, Þórður, Sveinbjörn, Logi, Baldur. |
Author: | Eggert [ Sat 26. May 2007 01:56 ] |
Post subject: | |
Skemmtileg lesning. Verið duglegir að öppdeita þráðinn með infoi og sögum ![]() |
Author: | arnibjorn [ Sat 26. May 2007 01:57 ] |
Post subject: | |
Spennó ![]() Verður gaman að heyra meira frá ykkur gömlu köllunum ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 26. May 2007 02:55 ] |
Post subject: | |
Blasta helling af myndum og djúsi sögum ![]() ![]() ![]() |
Author: | Angelic0- [ Sat 26. May 2007 03:03 ] |
Post subject: | |
Leit að heyra með vandamálin... Hvernig stendur á því að SC reimin fer alltaf af ? Og hvað kom fyrir með gírana í RNGTOY ? Endilega feed us more info ![]() Hlakka til að heyra sögur af ferðinni er ég sæki pústið mitt ![]() |
Author: | fart [ Sat 26. May 2007 06:06 ] |
Post subject: | |
Djöfulli gaman að lesa þetta, hvað á að gera í dag? sólbað og viðgerðir þar sem að það er lítið hægt að keyra í dag. Leiðinlegt að heyra með bilanir, ég ætla rétt að vona að minn hangi í þokkalegu standi. ![]() |
Author: | saemi [ Sat 26. May 2007 06:54 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Djöfulli gaman að lesa þetta, hvað á að gera í dag? sólbað og viðgerðir þar sem að það er lítið hægt að keyra í dag.
Leiðinlegt að heyra með bilanir, ég ætla rétt að vona að minn hangi í þokkalegu standi. ![]() Það stendur til að fara til Hockenheim, það er víst driftkeppni þar og sýning hjá "tuner" fyrirtækjum. Svo er nú ábyggilega ekki rosalegt mál að gera við þetta sem er að hrjá tækin. En drunurnar kalla, ekki slæmt að vakna við þetta. Rétt í þessum skrifuðum heyrðist svona íííííííííííkkkkkk-clonk..... mér líður eins og það hafi verið eitthvað bara slæmt í gangi upp á hring! |
Author: | saemi [ Sat 26. May 2007 07:06 ] |
Post subject: | |
P.S. myndir komnar. Verða í albúmi MR.BOOM hér í myndasafninu á kraftinum. |
Author: | bimmer [ Sat 26. May 2007 07:12 ] |
Post subject: | |
Varðandi reimina á bláa þá höldum við að það sem gerst hafi er að við tókum bensín í gær og strax eftir það fór bíllinn að freta og trunta. Ekki ósvipað því þegar Racelogic spólvörnin var að kicka inn. Keyrðum hann í svolítinn tíma - reyndar bara á léttu átaki þar sem hann gekk svo illa. Fórum síðan inn á Shell stöð og mixuðum slatta af Vpower í tankinn. Tékkuðum síðan reimina eins og venjulega og þá kom í ljós að hún var búin að hoppa eina ribbu framanaf sveifarás pulleyinum. Þannig að hún var bara skorin af á staðnum. Bíllinn hætti fretinu strax þegar við fórum af stað þannig að sennilegast var þetta bara vont bensín. Skellum nýrri reim á í dag - nóg af þeim með. Varðandi RNGTOY þá höldum við að það sé bracketið að aftan sem festir gírstöng við boddý sem hafi losnað - hann komst í R, 1, 3 og 5 en 2, 4 og 6 voru óvirkir. Lögum þetta í dag. |
Author: | Hannsi [ Sat 26. May 2007 10:08 ] |
Post subject: | |
Gæti trúað að þetta sé rétt með RNGTOY lent í þessu á 520 bíl sem ég átti og þá komst hann bara í R 1, 3, 5 en ekki 2 og 4 |
Author: | ///M [ Sat 26. May 2007 10:23 ] |
Post subject: | |
sweet sweet, eg er einmitt ad chilla i berlin.... 30° og sol ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sat 26. May 2007 15:33 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | fart [ Sat 26. May 2007 15:44 ] |
Post subject: | |
Á túttunum tveimur hérna megin, búinn að þriggjalagavaxa GT, læka um 5mm að framan og allllt klárt í morgundaginn. |
Author: | Ingsie [ Sat 26. May 2007 17:42 ] |
Post subject: | |
Gaman að fá að fylgjast með ![]() |
Author: | fart [ Sat 26. May 2007 19:42 ] |
Post subject: | |
farinn að sjá botninn á rauðvínsflöskunni eftir 2-3 kampavín, allt klárt í hasarinn, MOTHERFUCKIN SPENNTUR. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 14 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |