...DA motorsport....
Jæja ég hef þagað yfir þessu nógu lengi og hef ákveðið að segja hérna dálitla sögu af förum mínum við visst fyrirtæki í "tuning-bransanum".
Þannig er að þegar ég og Óskar erum að fara út í Eurotrip þá hef ég samband við nokkur tuning fyrirtæki í Evrópu með það í huga að kaupa eitthvað sniðugt í roadster. Ég kanna verð og hvað er í boði en finn ekkert sem ég er tilbúinn að eyða í þar sem verðin voru vægast sagt stíf! (10.000 evrur min).
Svona í gríni þá ákveð ég að hafa samband við Da motorsport í Tyrklandi og athuga hvað þeir geta boðið. Þeir segjast geta boðið SC og Turbo sem er að skila frá 400-1000hö. Jæja ég tjékka betur á þessu og fer að athuga þann kost að keyra jafnvel til Tyrklands og láta þá installa kitti. Þeir segja að það sé engin þörf á að keyra til þeirra fyrir minna en 1000hö og pressa ansi stíft á það kit.
Mér fannst það ansi mikill pakki þ.a. ég segi við þá að ég hafi samband eftir ferðina til að sjá budget hjá mér þá. Þeir bjóða mér þá notað kit á MJÖG góðu verði sem einhver hafði sett upp í stærra turbo kittið. Þetta gera þeir daginn sem við förum út og ég komst ekki í tölvu næstu 5dagana eða svo.
Jæja eftir Eurotrip hef ég aftur samband við snillingana og spyr þá hvort notaða kittið sé ennþá til. Þeir segja svo ekki vera en gera mér svo gríðarlega spennandi tilboð í nýtt kit. Það var fleiri hundruð þúsund kr. ódýrara en svona kit átti að kosta og segjast geta byrjað að setja það saman strax. Eftir umhugsun læt ég slag standa en segist ekki geta borgað fyrr en eftir nokkrar vikur.
Þeir samþykkja það og svo nokkrum vikum seinna millifæri ég á kappana umrædda upphæð sem var nú hægara sagt en gert þar sem Tyrkland og Ísland eru ekki beint alveg í sama bankaumhverfi. Þetta hefst allt saman og Mert, verkstjóri DA, hringir í mig um kvöldið og segir að það sé búið að setja allt í gang og ég fái kittið eftir 2-3vikur. Þetta var í lok okt. 2006.
Jæja eitthvað teygist á þessu en í byrjun des fæ ég loksins pakka en þeir höfðu seinkað pakkanum um einhverja vikur vegna þess að þeim vantaði hosur og annað smálegt. Þegar ég loksins opna pakkanna og fer að taka upp dótið mitt þá er nú strax ljóst að það vantar ansi mikið í þetta; engin eldgrein, enginn IC, engin tölva o.s.frv. o.s.frv.
Ég hef náttúrlega strax samband alveg brjálaður og Mert segist hafa splittað þessu þar sem það hafi vantað nokkra hluti sem komi ekki strax en næsti pakki fari eftir 1-2vikur max.
Jæja ekkert gerist og þeir hætta alveg að svara síma og tölvupósti en mér var helst farið að detta í hug að þeir hefðu bara lagt niður DA þar sem síðan þeirra lá niðri og annað í þeim dúr. Ég fæ Óskar til að senda þeim póst og spyrja um eitthvað drasl til að kaupa og viti menn, svar nokkrum klst síðar...og það um helgi!
Ég held áfram að djöflast á þeim þegar þeir loks svara mér og Mert segist hafa lent í slysi og sé að svara frá spítalanum....yeah right. Segist græja pakkann minn í næstu viku þegar hann losni af spítalanum. Nokkrum vikum seinna fæ ég einhver svör sem benda hingað og þangað en ekkert af viti.
Í lok jan fer loksins "seinni" pakkinn frá þeim og ég býð spenntur eftir restinni af því sem ég hafði pantað. Þegar ég loksins fæ pakkann sé ég strax að eitthvað vantar þar sem hann var klárlega alltof lítill til að innihalda IC og eldgrein. Við opnun sést svo að þetta er wastegate, tölva, spíssar og eitthvað smálegt -> aðal stöffið vantar ennþá.
Jæja ég hef samband alveg brjálaður einu sinni enn og þeir svara engum símtölum, tölvupósti né öðrum samskiptaleiðum. Var ég alveg búinn að gefa upp alla von þegar þeir loks svara mér í fokking mars! Þá er síðasti pakkinn í tollinum úti og allt að gerast. Jæja hljómar vel en ég læt þá alveg heyra að mér finnist þeir vera aular.
Aldrei kemur pakkinn og svo um miðjan mars hringir meistari Mert yfir w4nker hjá Da í mig. Hann er greinilega í einhverjum bíl sem þeir hafa verið að tjúna því ég heyri þegar verið er að þrykkja einhverjum vel öflugum turbo bíl með tilheyrandi túrbínuvæli og blow off öskri.
Hann kemur með setningar sem sjálfur Borat hefði ekki getað samið, þvílík list! Hann segist hafa verið svo rosalega upptekinn við að þrófa twin turbo kitt fyrir E46 M3 og svo portað því yfir á S50 að þeir hafi alveg gleymt mér. Núna vill hann senda mér twin turbo kit alveg frítt en ég sendi honum svo dótið sem ég var búinn að fá aftur þegar hitt er komið. Jæja þetta hljómar nú bara eins vel og vonast mátti af þessum aulum en ég bið hann samt að senda mér restina af því sem ég pantaði.
Nú kemur sko aðal línan: "I know we have made you very sad, but the twin trubo kit will make you very very happy"....Ég þurfi bókstaflega að halda aftur af mér til að sprynga ekki úr hlátri í símann. Hann gefur sig ekkert með að þetta TT kit sé málið þ.a. ég segi honum að senda þetta á mig og ég sendi hitt til baka þegar ALLT er komið í mínar hendur. Ok lets go, við setjum saman kittið og þú færð það eftir < mánuð.
Jæja nú var kominn apríl og ekkert kit....alltaf er kittið alveg að verða til, í tollinum úti eða hreinlega komið í flug. Alltaf voru einhver svör; "pabbi minn var að deyja svo ég hef ekki haft tíma né vilja í svona", okkur vantar varahluti frá Ástralíu, bla bla bla.
Í dag er maí að skríða sitt síðasta og ekkert kit komið enn. Nú átti kittið að hafa farið í póst á föstudaginn (for real í þetta sinn) og núna vill hann fara að selja mér meira; kúplingu o.s.frv. en ég hef margt oft sagt honum að ég ætli að kaupa það annars staðar.
Nýjasta nýtt er svo að hann vill fá ECU'ið mitt út til að forrita það, komi aftur eftir 3daga max....yeah fokking righ. Ég á til standalone, wideband O2, EGT og boost mæla -> þeir fá ekkert ECU.
Þ.a. forðist það alfarið að eiga nokkur viðskipti við DA motorsport, þetta er mesta wankera og aulafyrirtæki ever sem lýgur endalaust í opið geðið á manni. Ég athugaði, að ég hélt, nokkuð vel áður en ég lét slag standa og þá höfðu allir sem ég trúði fengið sitt dót fyrir rest og það reynst vel. Þessi 1000hö saga frá UK er náttúrlega ennþá í gangi og Frakkinn sem fékk hálf tjúnaðan bíl frá þeim en af þessu sem ég pantaði virtist allt standa, tók smá tíma en gekk fyrir rest.
kv.
Sveinbjörn
p.s. þar sem ég er orðinn lang þreyttur á aulum, wanne-be's og lygurum þá hef ég verið að láta það bitna á einhverjum saklausum hér og biðst hér með afsökunar á því. Maður á að vita betur en þessi saga er "hreinsaða" útgáfan af þessu og ofan á þetta hefur bæst ýmislegt annað vesen sem ég fer ekki útí hérna þ.a. skapið og mórallinn hefur ekki verið upp á sitt besta.
_________________ E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
|