bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BTCC Thruxton 6.maí https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=22129 |
Page 1 of 1 |
Author: | gdawg [ Thu 17. May 2007 09:38 ] |
Post subject: | BTCC Thruxton 6.maí |
Ég kom í fyrsta skipti á Thruxton brautina á suðurhluta Bretlandseyja um daginn og þvílík vonbrigði... þessi braut er DRASL!! Skúrarnir þarna eru álíka stórir og klósettskápur, það eru fáránlega lág hávaðamörk þarna sem þurfti undanþágu fyrir, það var bannað að keppa á virkum dögum og það mátti ekki keyra á brautinni fyrr en eftir 11 því að það var Guðsþjónusta í kirkjunni í þorpinu við hliðina á!!!! Burt séð frá því er brautin sjálf býsna skemmtileg, en allt öðru vísi en allar aðrar brautir sem við keppum á. Því þurfti á sérstakri dekkjategund að halda frá Dunlop, sem okkar bíll var ekki að samþykkja, við vorum ekki á sama stigi og framdrifsbílarnir alla helgina en ökumennirnir okkar gerðu sitt besta. Eftir þessa keppni var lagst undir feld til að finna meiri hraða og m.a. send 8 dekk til Sauber í Sviss til að hrissta þau á bílhermi, aðalvandamálið er ss. dekkin, þau eru gerð fyrir framdrifs bíla, en við erum kominir með ágætis plan sem þarf að prófa og þess vegna förum við aftur til Wales til að prófa á mánudaginn. Nokkrar myndir frá Thruxton: ![]() ![]() Það eru alltaf rassar á ferð í pittinum ![]() ![]() ![]() Það var að sjálfsögðu Porsche cup keppni á undan okkur og einum af þeim tókst að takast á loft á bílnum sínum og fljúga yfir áhirfendagirðingu! ![]() http://youtube.com/watch?v=t3kgvL6juO4 Þá kom einn svipaður þessum ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Eins og staðan er í dag er Colin Turkington í 5.sæti í keppninni og Tom Onslow-Cole í 9. TeamRAC er síðan í 4. sæti. og efstir af óháðum liðum. |
Author: | Eggert [ Thu 17. May 2007 10:41 ] |
Post subject: | |
Flottar myndir! En hvernig fórstu að því að gera gat á þakið?? |
Author: | JonHrafn [ Thu 17. May 2007 11:27 ] |
Post subject: | |
wohoooo sexy touring! |
Author: | noyan [ Thu 17. May 2007 16:44 ] |
Post subject: | |
Magnað ![]() skuggalega flottur touring ![]() |
Author: | gdawg [ Thu 17. May 2007 19:31 ] |
Post subject: | |
Eggert wrote: Flottar myndir!
En hvernig fórstu að því að gera gat á þakið?? ég var að tölta með rafmagnskapal fyrir support trukkinn okkar og steig í gegnum glugga ![]() ![]() |
Author: | Stefan325i [ Thu 17. May 2007 20:41 ] |
Post subject: | |
OOOOOOO ég vildi óska að það væri ein svona hræðileg braut hérna á Íslandi ..................HÁLFVITI.............. (ekki illa meint ![]() ![]() Helvíti flott hjá þér, gaman að fylgjast með. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |