Page 1 of 1

Tryggingar.

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 09:31
by Vargur
Jæja, nú á að fara að taka tryggingafélögin í bakaríið fyrir samráð. Vonandi fá þessir djöflar að blæða.

Vissir þú að framrúðutrygging er ekki skylda, hringdu núna í tryggingafélagið þitt og láttu endurgreiða þér framrúðutrygginguna þar sem þú baðst ekki um hana. :evil:

Vís 560-5060
Sjóva 569-2500
Tm 515-2000

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 10:46
by arnib
Hver vill ekki framrúðu tryggingu?

Veistu hvað framrúða kostar í 750 bílinn þinn?

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 11:00
by Vargur
Ég hef átt ca. 100 bíla á síðustu 14 árum og hef aldrei þurft að skipta um framrúðu, þannig að ef ég hefði aldrei borgað neina framrúðutryggingu ætti ég sjálfsagt fyrir framrúðu í bilinn og kanski afgang.

Í meðalbíl kostar rúða og ísetning ca 25-30 með vsk. og ekki gleyma að ef þú þarft að láta skipta um rúðu þarft þú að borga 10% sjálfur og endurnýja trygginguna.

Hvað hafið þið oft þurft að skipta um framrúðu ?

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 11:47
by GHR
Ég hef einu sinni skipt um framrúðu á BMW 520IA og þarf líka að gera það á núverandi bíl :wink:
Ég hef alltaf vitað að framrúðutryyging sé ekki skylda, ég kaus bara að borga þetta og vera öruggur :wink:

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 12:23
by benzboy
Dufan wrote:Hvað hafið þið oft þurft að skipta um framrúðu ?


Tvisvar eða þrisvar - búinn að vera með prófið í rúmlega 10 ár en bjó líka úti á landi á tímum malarveganna :twisted:

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 12:50
by bebecar
Ég hef tvisvar þurft að láta skipta um framrúðu - en ég myndi alveg hugsa mig um...

PS, Dufan, hvernig er með tryggingarnar á mótorhjólið - viltu segja mér hvað þú ert að borga og hvort þú ert sáttur við þann hluta tryggingamála?

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 14:22
by Kull
Dufan wrote:Ég hef átt ca. 100 bíla á síðustu 14 árum og hef aldrei þurft að skipta um framrúðu,


Hehe, ekkert skrýtið, þú hefur bara skipt um allan bílinn :lol:

PostPosted: Fri 01. Aug 2003 18:15
by íbbi_
það er einmitt flunkandi ný framrúða í maximuni,