bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Beint út á Granda eftir Track day ?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=21779
Page 1 of 3

Author:  Angelic0- [ Sun 29. Apr 2007 15:22 ]
Post subject:  Beint út á Granda eftir Track day ?

Hvað er málið með svona fávita, þetta stígur mér allavega til höfuðs.

Það var ekki nóg að mæta upp á völl og djöflast þar heldur þurftu menn að fara að spyrna og láta einsog hálfvitar úti á Granda eftir þetta.

Hvað gerist síðan ef að þetta spyrst út ? Fáum við þá nokkuð annan svona Track-Day ?

Ætla að vitna í þennan þráð;
http://www.live2cruize.com/phpBB2/viewtopic.php?t=54680

BMW á einkanúmeri og SRT ? er þessi BMW ökumaður einhver hérna á spjallinu?

Author:  bebecar [ Sun 29. Apr 2007 15:29 ]
Post subject:  Re: Beint út á Granda eftir Track day ?

Angelic0- wrote:
Hvað er málið með svona fávita, þetta stígur mér allavega til höfuðs.

Það var ekki nóg að mæta upp á völl og djöflast þar heldur þurftu menn að fara að spyrna og láta einsog hálfvitar úti á Granda eftir þetta.

Hvað gerist síðan ef að þetta spyrst út ? Fáum við þá nokkuð annan svona Track-Day ?

Ætla að vitna í þennan þráð;
http://www.live2cruize.com/phpBB2/viewtopic.php?t=54680

BMW á einkanúmeri og SRT ? er þessi BMW ökumaður einhver hérna á spjallinu?


Vertu þá ekki að hjálpa til við að auglýsa þetta :lol:

Author:  íbbi_ [ Sun 29. Apr 2007 15:31 ]
Post subject: 

ohh almennilegt grandakvöld og ég lá steinsofandi heima.. djö.. ég elska þegar að safnast saman út á granda

Author:  bjahja [ Sun 29. Apr 2007 15:32 ]
Post subject: 

Ef menn halda að einn svona "track dagur" eyði öllum kappakstri af götunum þá eru þeir bara kjánar.

Author:  Angelic0- [ Sun 29. Apr 2007 15:35 ]
Post subject: 

nei, en mér finnst þessi hegðun alveg út í hött...

Að menn skuli ætlast til þess að það sé sett upp æfingasvæði (og braut til kappaksturs) til þess að menn eyði spennunni þar og síðan fara menn beint út á Granda eftirá.

Þá held ég að það sé alveg hægt að blása þetta bara af. Þarna er verið að bjóða mönnum að koma og NOTA sín ökutæki á löglegan hátt.

Finnst rosalega lame af þessum einstaklingum sem að þarna voru að verki að haga sér svona þegar að það er verið að reyna að byggja eitthvað athvarf fyrir okkur.

Author:  Angelic0- [ Sun 29. Apr 2007 15:36 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Ef menn halda að einn svona "track dagur" eyði öllum kappakstri af götunum þá eru þeir bara kjánar.


Já, en þarna er verið að ræða um að menn hafi mætt á Grandann í MASSAVÍS... fjöldi bíla hafi safnast þarna saman og það strax eftir Track Dag.

Þetta málar auðvitað ekki góða mynd á þessa "Track daga" !

Author:  Djofullinn [ Sun 29. Apr 2007 15:38 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Ef menn halda að einn svona "track dagur" eyði öllum kappakstri af götunum þá eru þeir bara kjánar.
Klárlega.

En að geta ekki sleppt þessu þetta eina kvöld til þess að sýna smá vilja finnst mér alveg asnalegt

Author:  Angelic0- [ Sun 29. Apr 2007 15:44 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
bjahja wrote:
Ef menn halda að einn svona "track dagur" eyði öllum kappakstri af götunum þá eru þeir bara kjánar.
Klárlega.

En að geta ekki sleppt þessu þetta eina kvöld til þess að sýna smá vilja finnst mér alveg asnalegt


Nákvæmlega það sem að mér finnst, alveg hrikalega lame að geta ekki byggt smá traust...

Author:  bjahja [ Sun 29. Apr 2007 15:44 ]
Post subject: 

Já, ég er alls ekki að segja að þetta sé sniðugt að fara þarna sama dag og missa sig.

En maður fékk það svona á tilfinninguna að LÍA héldi að þetta myndi eyða öllum hraðaakstri af götunum.
Og allt þetta tal um að þetta sé í fyrsta skipti sem hægt er að keyra ólöglega löglega..........menn eru ansi fljótir að gleyma kvartmílubrautinni og öllum Leikdögunum seinasta sumar á rallýkross brautinni.

Author:  Angelic0- [ Sun 29. Apr 2007 15:48 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Já, ég er alls ekki að segja að þetta sé sniðugt að fara þarna sama dag og missa sig.

En maður fékk það svona á tilfinninguna að LÍA héldi að þetta myndi eyða öllum hraðaakstri af götunum.
Og allt þetta tal um að þetta sé í fyrsta skipti sem hægt er að keyra ólöglega löglega..........menn eru ansi fljótir að gleyma kvartmílubrautinni og öllum Leikdögunum seinasta sumar á rallýkross brautinni.


Það er enginn að tala um að þetta myndi bara útrýma strax hraðakstri. Það þarf hinsvegar að vera svona að minnsta kosti einusinni í viku, jafnvel æfingar á mið-fim og keppnir á föstudögum.

Það er spurning um að stofna félag utanum þetta og finna einhverja nokkra hæfa í stjórn. Óli er allavega unfit að mínu mati, maður var að heyra ýmsar sögur um alveg fáránlega hegðun hjá honum þarna í gær.

Author:  zazou [ Sun 29. Apr 2007 15:55 ]
Post subject: 

Reyndar er ég fylgjandi því að ef kemur braut, þá þurfi menn að vera undir ákveðnum punktamörkum, kannski 7 til að fá að keyra. Þá hugsa menn aðeins lengra en 12 punktar og svipting.

Author:  Aron Fridrik [ Sun 29. Apr 2007 16:20 ]
Post subject: 

dohc skrifar á l2c wrote:
gaurinn á hvíta E30 var þarna bara einsog hann væri Dominic úr fast and the furious :lol:



hehe.. robbi318is ?

Author:  siggir [ Sun 29. Apr 2007 16:21 ]
Post subject: 

aronisonfire wrote:
dohc skrifar á l2c wrote:
gaurinn á hvíta E30 var þarna bara einsog hann væri Dominic úr fast and the furious :lol:



hehe.. robbi318is ?


jamm...

Hann hefur bara verið orðinn svona svakalega góður að keyra eftir brautardaginn :roll:

Author:  íbbi_ [ Sun 29. Apr 2007 16:29 ]
Post subject: 

zazou wrote:
Reyndar er ég fylgjandi því að ef kemur braut, þá þurfi menn að vera undir ákveðnum punktamörkum, kannski 7 til að fá að keyra. Þá hugsa menn aðeins lengra en 12 punktar og svipting.


vá hvað ég er ósammála.. finnst það ekki eiga að skipta neinu máli

Author:  Angelic0- [ Sun 29. Apr 2007 16:50 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
zazou wrote:
Reyndar er ég fylgjandi því að ef kemur braut, þá þurfi menn að vera undir ákveðnum punktamörkum, kannski 7 til að fá að keyra. Þá hugsa menn aðeins lengra en 12 punktar og svipting.


vá hvað ég er ósammála.. finnst það ekki eiga að skipta neinu máli


Ég er reyndar ósammála þessu líka, síbrotamenn myndu þá bara halda endalaust áfram að brjóta af sér á götunum og þá er settu markmiði ekki náð.

Ég vil sjá fleiri svona Track daga og vil fá stóra Hangar planið í Drift-stöff..

Risastórt plan sem að eflaust væri hægt að gera mjög góðan drift-völl úr;

Image

Sést hérna í vinstra-efra horni á þessari mynd...

Image

Hérna er ég búinn að stækka myndina og þarna má sjá þann hluta sem að var notaður í bílastæði fyrir hið árlega 4.júlí Carnival...

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/