Og hvað þýðir að "gera ökutækið upptækt" ?
Er það 1 dagur, 1 vika eða endalaust ?
OG hvaða bætur fá menn þegar bíllinn er tekinn af þeim ?
Segjum ef það er einn bíll á heimili, maðurinn og konan þurfa að nota hann til skiptis.
Konan er ökuníðingur af verstu gerð og bíllinn er gerður upptækur hjá henni.
Á það að bitna á manninum ?
Ef það er þannig að það megi ekki bitna á meðeigendum bíla, skrá þá ekki allir mömmu sína eða ömmu sína sem meðeigendur ?
Basically, hvað þýðir að ökutækið sé gert upptækt ?
Ég man eftir einu tilviki þar sem unglingur missti ökuprófið fyrir að keyra eins og asni. Hann var undir lögaldri að mig minnir og átti MMC 3000 GT.
Í því tilviki var málið einfalt, mamman lét lögregluna geyma bílinn þangað til hann seldist.
En hvernig er málum háttað ef eigandi bílsins er lögráða ?
Á maður þá að biðja mömmu sína um hjálp ?
En ef maður á ekk..........
Þið skiljið hvað ég meina.