Page 1 of 2

Spoilerar á Bimmum

PostPosted: Sat 26. Jul 2003 17:31
by O.Johnson
Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image Image




:puke:

PostPosted: Sat 26. Jul 2003 17:38
by GHR
ÓGÓ

PostPosted: Sat 26. Jul 2003 17:45
by bjahja
Var verið að skoða bmwnightmere page :wink:
En þetta er vibbi :x

PostPosted: Sat 26. Jul 2003 18:23
by Schulii
algjör vibbi.. bara RICE

PostPosted: Sat 26. Jul 2003 18:50
by benzboy
Þvílíkt ógeð, þetta "I can fly" dæmi er ekki einusinni fyndið :puke:

PostPosted: Sat 26. Jul 2003 19:03
by Schulii
Ólíkt mörgum hérna á spjallinu þá þoli ég nú alveg smá spoilera á BMW ...EN, það er ekki EINN af þessum spoilerum í lagi

PostPosted: Sun 27. Jul 2003 00:15
by Dr. E31
Rúmlega helmingur af þessu eru Kanar (af því sem sést), smekkmenn. :puke:

PostPosted: Sun 27. Jul 2003 16:01
by Moni
Spoilerar eru flottir, ef þeir eru í hófi og ekki stórir, ég er með lítinn spoiler á skottinu mínu, M3 spoiler (replica) þeir eru í lagi, að mér finnst, sá líka um daginn E34 með lítinn spoiler, frekar töff bara...

Sem betur fer erum við hérna í klúbbnum með mismunandi skoðanir, annars værum við allir á eftir sömu bílunum... :)

PostPosted: Sun 27. Jul 2003 23:37
by E36HADDI
Jæja strákar hvað á þetta að þýða að rífa sig útaf spoiler? ég sem hélt að það væri það sem hann gerir ekki hvernig hann lítur út, Það mætti halda að þið hefðuð ekki hugmynd um það.... :idea:

PostPosted: Sun 27. Jul 2003 23:52
by benzboy
E36HADDI wrote:Jæja strákar hvað á þetta að þýða að rífa sig útaf spoiler? ég sem hélt að það væri það sem hann gerir ekki hvernig hann lítur út, Það mætti halda að þið hefðuð ekki hugmynd um það.... :idea:


Já þessir Boeing vængir eru líklega alveg bráðnauðsynlegir til að halda bílunum niðri - sure

PostPosted: Sun 27. Jul 2003 23:54
by Schulii
E36HADDI wrote:Jæja strákar hvað á þetta að þýða að rífa sig útaf spoiler? ég sem hélt að það væri það sem hann gerir ekki hvernig hann lítur út, Það mætti halda að þið hefðuð ekki hugmynd um það.... :idea:


hahaha... einmitt.. það var loftaflsfræðin sem þvingaði eigendur þessara annars ágætu BMW bifreiða til að fá sér þessa ÖMURLEGU spoilera eins og 316 compact bíllinn.. ye right

PostPosted: Mon 28. Jul 2003 01:47
by íbbi_
ég veit ekki hvort ég er bara sona heimilislegur en.. það mætti alveg hengja upp þvott á þessu

PostPosted: Mon 28. Jul 2003 19:53
by Moni
325ix wrote:
hahaha... einmitt.. það var loftaflsfræðin sem þvingaði eigendur þessara annars ágætu BMW bifreiða til að fá sér þessa ÖMURLEGU spoilera eins og 316 compact bíllinn.. ye right


Hummm gæti verið 323 compact... En þó að það væri 323 þá er það rétt hjá þér, hann þarf ekki svona innkaupakerru handfang á bílinn... gæti verið hentugt kannski ef það þarf að ýta bílnum eitthvað,,, hehe :D

PostPosted: Mon 28. Jul 2003 20:09
by SE
púff manni verður nú bara illt í augunum, þetta er hryllingur......

PostPosted: Mon 28. Jul 2003 20:15
by Moni
Það gleymdist örugglega að segja að þessi þráður er ekki við hæfi almennra bílaáhugamanna, sem hafa smá smekk í sér...

Það er hægt að "rice"a bíla, en þetta er eitthvað yfirnáttúrulegt... á slæman hátt...