bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hægriregla / hægriréttur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=20506
Page 1 of 2

Author:  bErio [ Sat 24. Feb 2007 13:28 ]
Post subject:  Hægriregla / hægriréttur

Mig vantar smá upplýsingar um hægrirétt og svonna.
Það var keyrt létt inn í mig vinstramegin af framan á föstudaginn á bílastæði.
Sem sagt ég var að beygja til hægri og ég er að koma úr hans hægri hönd og hann fer inn í frambrettið á bílnum mínum og beyglar það í druslur og smá húddið.
Er ekki alltaf varúð til hægri eða hægriréttur á bílastæðum?

Mynd :lol: btw. Ég er bestur í paint! 8)


Image

Hvað segið þið?

Author:  xtract- [ Sat 24. Feb 2007 13:32 ]
Post subject: 

ef thu ert "rauda strikid" tha ert thu i retti, thad hlytur ad vera umferdarreglur a bilastaedum eins og odru, nema hann hafi ekki verid a bilastaedinu :S

Author:  bErio [ Sat 24. Feb 2007 13:35 ]
Post subject: 

Ég er rauða línan við vorum enþá á bílastæðinu

Author:  Doror [ Sat 24. Feb 2007 13:39 ]
Post subject: 

Þú ert í rétti. Þar sem eru ekki merkingar gildir hægri reglan.

Author:  mmc_evo8 [ Sat 24. Feb 2007 13:49 ]
Post subject: 

Ef að hann er með þig á hægri hönd þá ber honum að stoppa og hleypa þér. Þannig að jú, það er alltaf varúð til hægri á bílastæðum. :wink:

Author:  Frikki [ Sat 24. Feb 2007 13:53 ]
Post subject: 

yep þú ert í rétti..

til gamans má geta að skv. lögum þarftu ekki að nota öryggisbelti á bílastæðum og að ef þú keyrir á 20 km/h - 25 km/h klst á bílastæði þar sem hámarkshraði er
yfirleitt 15 km/h klst þá getur löggan sektað þig. (bara ergja mig yfir 5 km vikmörkum :evil: )

Author:  BirgirS [ Sun 25. Feb 2007 16:40 ]
Post subject: 

Einhver sagði mér að tryggingafélög dæma yfirleitt 50/50 þegar kemur að árekstrum á bílastæðum. Það gildir kannski frekar þegar verið er að bakka úr stæðum. Vonandi að þú fáir þetta bætt.

Author:  sindrib [ Sun 25. Feb 2007 17:30 ]
Post subject: 

jebb þú ert í rétti, ef það er ekki biðskylda þá gildir hægriréttur

Author:  bErio [ Sun 25. Feb 2007 18:34 ]
Post subject: 

Leiðinlegt en samt


:clap: þar sem ég er víst í rétti.

Before
Image

After :x

Image

Author:  ValliFudd [ Sun 25. Feb 2007 18:45 ]
Post subject: 

Það er reyndar undantekning sem á EKKI við hér.. Bílastæði eiga ekki forgang útá götu þó þau séu hægramegin :) Og þá meina ég ekki bara þar sem er eitt bílastæði heldur kannski svona smá afleggjari inn þar sem eru kannski 3-4 stæði.

Held að ég fari ekki með rangt mál því þá er það ekki flokkað sem gata heldur sem bílastæði og á þar af leiðandi ekki "hægri rétt"..

En ég myndi segja að þú værir í 100% rétti í þessu tilviki :)

Author:  Tommi Camaro [ Wed 28. Feb 2007 15:40 ]
Post subject: 

bErio wrote:
Leiðinlegt en samt


:clap: þar sem ég er víst í rétti.

Before
Image

After :x

Image

þetta er ekki neitt .
hef nú séð stærri beyglur en þetta
haha

Author:  bErio [ Wed 28. Feb 2007 15:46 ]
Post subject: 

Ég ef nú líka séð þær stærri..
En ég kippti henni út smá og tók allar rispur og nudd og massaði það strax af.
Þannig þetta er bara fallegt miðað við hvernig þetta var :oops:

Author:  Kristjan PGT [ Wed 28. Feb 2007 16:58 ]
Post subject: 

Hægri réttur þar sem engar merkingar eru gildir á öllu landinu...á jöklum t.d.... ef að þú t.d. á jeppa og keyrir fyrir vélsleða sem úr hægri þá ertu í órétti :D

Author:  Omar [ Tue 06. Mar 2007 23:27 ]
Post subject: 

ekki verða svekktur þó þetta verði úrskurðað þér í óhag, það er satt sem einhver sagði hér að ofan að bílastæðaóhöpp eru yfirleitt 50/50.
Veit um nokkra sem hafa komið ósáttir útúr bílastæðum og haldið að einfaldur hægri rettur hafi átt við en síðan dæmdir í 50%rett

Author:  ///MR HUNG [ Tue 06. Mar 2007 23:42 ]
Post subject: 

Tommi Camaro wrote:
þetta er ekki neitt .
hef nú séð stærri beyglur en þetta
haha
Þú heyrir þetta væntanlega frá kellingunni þinni reglulega :lol:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/