„Án bandarísks herliðs og án varnarskuldbindinganna í varnarsáttmálanum frá 1951 væri þetta land varnarlaust gegn hverskonar glæpaflokkum, málaliðum eða herflokkum sem kysu að ráðast á eða hernema Ísland," sagði Björn við AP.
Þá segir Björn að íslensk stjórnvöld, stjórnmálamenn og almenningur hafi alltaf talið að vinaþjóðir á borð við Bandaríkin muni tryggja öryggi landsins til frambúðar. „Þessu getum við ekki og megum ekki gera ráð fyrir," segir Björn. „Myndun varnarsveitar ... myndi vera ákveðið skref fyrir Íslendinga í átt að þeirri hugsun að varnir landsins séu nauðsynlegar til að tryggja sjálfstæðið."
Haft er eftir Halldóri Árnasyni, skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, að ekki séu á döfinni fundir íslenskra og bandarískra embættismanna um þá kröfu Bandaríkjamanna að herflugvélarnar verði fluttar frá Íslandi. „Við vonumst eftir viðunandi niðurstöðu en nú er ekkert nýtt af málinu að frétta," segir hann.
I am sooooo going !!! Þ.e.a.s. ef kaninn fer og þetta verður að veruleika!
