bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMWkraftur límmiðar?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=201
Page 1 of 2

Author:  Propane [ Fri 18. Oct 2002 10:39 ]
Post subject:  BMWkraftur límmiðar?

Er ekki möguleiki á að fá litla límmiða á bílana, merkta bmwkraftur? Gæti verið ca 5x25cm á stærð. Eitthvað svipað þessu:
Image
eða
Image

Bara hugmynd..... :)

Author:  Djofullinn [ Fri 18. Oct 2002 10:57 ]
Post subject: 

Já gunni ætlaðir þú ekki að redda því? :)
Það gæti líka verið flott að hafa bara WWW.BMWKRAFTUR.COM, svipað og GSTuning eru með... humm.. bara hugmynd

Author:  Propane [ Fri 18. Oct 2002 11:09 ]
Post subject: 

Ég var líka að skoða þetta hérna um daginn, sem er snilld í afturgluggan á bíl með dökkar rúður. Bmw merkið kæmi ábyggilega vel út hér :)
Image

Author:  flamatron [ Fri 18. Oct 2002 11:56 ]
Post subject: 

Mér lýkar efri límmiðan. :)

Author:  Djofullinn [ Fri 18. Oct 2002 12:01 ]
Post subject: 

Já mér finnst efri límmiðinn flottari.
Persónulega mundi ég vilja hafa þá nákvæmlega eins og GSTuning límmiðarnir eru, held að það sé mjög flott á dökkum rúðum.
Síðan er náttúrulega bara spurning með að menn hafi bara límmiða sem þeir fíla, þurfa ekkert allir að vera með eins límmiða.

Author:  GHR [ Fri 18. Oct 2002 14:27 ]
Post subject: 

Efsti límmiðinn er flottastur, hef reyndar ekki séð miðann frá GStuning. Væri alveg til í einn svoleiðis, bara til að monta sig aðeins á þessum frábæra klúbb sem stækkar með hverjum degi :D

Author:  saemi [ Fri 18. Oct 2002 14:39 ]
Post subject: 

Góð hugmynd, endilega að gera þetta. Bara lítið og nett :)

Author:  Kull [ Fri 18. Oct 2002 15:33 ]
Post subject: 

Hvernig líst mönnum á að gera eitthvað dreifibréf sem maður getur sett undir þurrkuna á flottum BMW sem maður sér á ferðinni. Í þessu dreifibréfi gætum við boðið mönnum í klúbbinn. Fullt af flottum BMW þarna úti og eigendurnir vita sjálfsagt ekkert af klúbbnum.
Sumir verða sjálfsagt bara fúlir en þeir sem hafa áhuga myndi sjálfsagt tékka á síðunni.

Author:  Djofullinn [ Fri 18. Oct 2002 15:41 ]
Post subject: 

Ég var einmitt að hugsa það sama Kull! Hafa bara allir eitthvað af þessu í bílnum og alltaf þegar maður sér flottan BMW.... eða ljótan, láta þá miða á rúðuþurkuna eða eitthvað :)

Author:  GauiJul [ Fri 18. Oct 2002 15:50 ]
Post subject: 

Kull wrote:
Hvernig líst mönnum á að gera eitthvað dreifibréf sem maður getur sett undir þurrkuna á flottum BMW sem maður sér á ferðinni. Í þessu dreifibréfi gætum við boðið mönnum í klúbbinn. Fullt af flottum BMW þarna úti og eigendurnir vita sjálfsagt ekkert af klúbbnum.
Sumir verða sjálfsagt bara fúlir en þeir sem hafa áhuga myndi sjálfsagt tékka á síðunni.


tær snilld líst vel á þetta, ég skal sko vera duglegur að dreyfa :P

Author:  bebecar [ Fri 18. Oct 2002 16:22 ]
Post subject: 

Sama hér!

Ég er mikið á ferðinni og þetta væri lítið mál!

Author:  DXERON [ Fri 18. Oct 2002 22:37 ]
Post subject:  aðrir bmw ekki í klubbnum

ég hef einmitt verið að hugsa það sama þegar ég sé aðra bimma sem ekki hafa komið á samkomu.

Author:  Haffi [ Sat 19. Oct 2002 00:15 ]
Post subject: 

En strákar mínir þið vitið að það eru ekkert allir voðalega hrifnir af því að vera að láta einhverja miða undir rúðuþurrkuna.....


T.d. eins og ég þegar að ég kem úr vinnunni og eitthvða fíflið er búið að troða einhverjum hundblautum og ógeðslegum grænum miða á rúðuna og ég tek kannski ekkert eftir honum fyrr en ég er kominn ínní bílinn og þá verður maður að standa aftur uppúr bílnum útí kuldann og taka helvítis miðann af sem er kannski kominn á miðjarúðuna þannig að maður verður að tussast og teygjast yfir helvítis bílinn... bara hugsunin um miða á bílnum mínum gerir mig pirraðan!!

Kannski er ég bara svona pirraður maður og þetta sé eindæmi en ég legg frekar til auglýsingar í sjónvarpi og útvarpi :)

Author:  saemi [ Sat 19. Oct 2002 00:46 ]
Post subject: 

Það væri frekar ráð að fá útprentun úr bifreiðaskrá og senda bréf að mínu mati!

Það væri mun markvissara!

Fá svo B&L til að sponsora þetta, þeir eru með þessa útprentun huxa ég, þeir hafa sent svona dreifibréf. Tala allavega við þá, kannski senda þeir þetta reglulega, eða eru eitthvað að fara að gera það, og þá gætum við kannski verið með!

:shock:

Author:  Kull [ Sat 19. Oct 2002 00:58 ]
Post subject: 

Jamm, það er alveg rétt að sumir verða fúlir. Síðan gætum við lent í því að marg setja miða á sömu bílana og gera eigenduna verulega fúla.

Að senda bréf kostar náttúrulega slatta pening, spurning hvað B&L eru tilbúnir að eyða miklu en það má alveg spurja þá.

Síðan mætti kannski láta útbúa nafnspjöld, kostar ekkert gífurlega mikið, og hafa í móttöku verðstæðis B&L og eins í varahlutaversluninni. Flestir BMW eigendur koma þangað einhverntímann :wink:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/