Page 1 of 2

M.Benz 500E W124

PostPosted: Wed 16. Jul 2003 22:16
by Benzari
Mætti svona bíl um daginn. Silfurlitaður svo og hár ökumannsins, +50 ára karl í góðum fíling á rúntinum. Bíllinn er ekki skráður á bilasolur.is og því líklega ekki til sölu eða hvað???

Endilega póstið info um gripinn ef þið vitið e-ð :) :) :)

Umræður voru á huga um E60 W124 en er þetta ekki eini bíllinn þessarar tegundar á landinu?

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 00:23
by gmg
Þessi bíll verður aldrei seldur segir sonur eigandans, þessi bíll var fluttur inn fyrir c.a 2 árum alveg eins og nýr! Ég fékk þann heiður að prufa þennan bíl þegar hann var til sölu það var DÁSAMLEGT!!!!

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 01:04
by U2SLOW
Ég held að það eru 2 eða 3 500 E bílar og einn E 60 AMG og einn sem er með 500 E útlitið enn 420 vélina.

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 08:29
by bebecar
ÉG held það sé bara þessi eini E500 bíll hér á landinu, svo er einn E60 AMG og einn með E500 boddí en E420 vélina.

Ég skoðaði þennan bíl á sínum tíma en fór því miður ekki svo langt að keyra hann þar sem ég vissi að ég ætti ekki nóg fyrir honum (keypti M5 skömmu síðar). Hann leit hinsvegar óaðfinnanlega út og þetta tæki er á óskalistanum hjá mér.

Hinsvegar ætti ekki að vera stórmál að flytja inn svona bíl ef maður sættir sig við dágóðan akstur - þeir eru ekki svo dýrir á mobile.de

Reyndar væri þetta ansi skemmtilegur bíll fyrir Sæma sem vetrarbíll ef hann gæti hugsað sér að kaupa Benz en ekki BMW.

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 09:35
by saemi
Image

Erum við að tala um svona útlit???

Mér finnst þetta svo óspennandi í útliti :roll:

Sæmi

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 09:36
by Benzari
Jamm, '94-'95 framendinn er mun skárri, grillið nær ekki "uppá" húddið á þeim árgerðum.

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 09:38
by saemi
Image

Aha, svona. Þá er hann eins og 190 bens :?

Sæmi

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 09:50
by bebecar
Mér finnst hann bara klassískur og mjög vígalegur með breiða lúkkinu.

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 10:15
by íbbi_
ég er svo furðulegur að mér finnst svo 500 lookið verra en hitt, ég bara fíla ekki brettin á þeim..

e420 er aftur á móti spennandi hlutur 8)

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 10:21
by bebecar
Félagi minn var einmitt að kaupa E420... verulega góð græja.

Samt fyndið eitt, ég held hann hafi sagt mér að hann sé gefin upp með 9.5 hröðun í 100 kmh. Það stenst held ég engan veginn!

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 10:24
by íbbi_
nei einmitt.. en þetta er eflaust tæki sem er að njóta sín betur þegar það er komið upp fyrir hundraðið

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 12:06
by uri
Mér finnst þessi brettaútvíkkun helvíti töff 8) hún var líka hönnuð og smíðuð hjá porsche :)

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 13:00
by Logi
Samt fyndið eitt, ég held hann hafi sagt mér að hann sé gefin upp með 9.5 hröðun í 100 kmh. Það stenst held ég engan veginn!

Nei það getur ekki verið þar sem S420 er uppgefinn 8,0-8,2 í hundraðið!

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 13:07
by bebecar
Það er nú sennilega best að fletta þessu upp!

PostPosted: Thu 17. Jul 2003 13:13
by bebecar
Rússnesk síða segir 7.1 sek í 100 kmh. EKKI slæmt það...