bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Alvöru BMW klúbbur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=197
Page 1 of 1

Author:  Kull [ Thu 17. Oct 2002 20:57 ]
Post subject:  Alvöru BMW klúbbur

Sælir félagar, ég var að spá í hvort við ættum ekki að gera þennan klúbb að alvöru BMW klúbb Íslands. Mörg lönd hafa official BMW klúbba, kíkið t.d. á http://www.bmwcca.org og skoðið undir links. BMW Club Europa, http://www.bmw-club-europa.org er eins konar miðstöð Evrópu og er hægt að skrá okkur hjá þeim og taka þátt í samstarfi klúbbanna um allan heim.

Eins og t.d. með ferð til Þýskalands næsta sumar með Norrænu þá gætum við haft samband við klúbbinn í Þýskalandi og hitt þá og þeir gætu hjálpað okkur að skipuleggja ferð.

Einnig gætum við haft samband við B&L og haft eitthvað samstarf við þá, kannski reddað einhverjum afslætti fyrir meðlimi klúbbsins. Þessar samkomur hjá okkur, sérstaklega ef blöð fara að fjalla um þær, eru góð auglýsing fyrir BMW og þar af leiðandi B&L.

Ég hef ekkert skoðað þetta nánar en þetta var bara svona pæling. Hvað segið þið?

Author:  flamatron [ Thu 17. Oct 2002 21:52 ]
Post subject: 

Akkuru ekki, þetta er bara góð hugmynd, :)

Author:  Djofullinn [ Thu 17. Oct 2002 22:03 ]
Post subject: 

Góð hugmynd! :D

Author:  Svezel [ Thu 17. Oct 2002 22:42 ]
Post subject: 

Um að gera að athuga þetta, sérstaklega að ná einhverjum díl við B&L.

Author:  saemi [ Thu 17. Oct 2002 23:26 ]
Post subject: 

Alveg tilvalið að gera þetta.

Við gætum sótt um t.d. að verða meðlimir í öðrum hvorum klúbbnum (eða báðum)!

Ég veit að í BMW CCA eru stofnaðir svokallaðir "chapter" sem eru einskonar undirdeildir í aðalklúbbnum. Þar eru sér stjórnir sem skipuleggja og halda utan um viðkomandi svæði. Það væri ekkert svo vitlaust að stofa sér Íslandsdeild

Jæja, orðin alltof þreyttur, bónaði nebbnilega í dag :!:

sæmi

Author:  Gunni [ Fri 18. Oct 2002 01:15 ]
Post subject: 

jám þetta er ansi sniðugt. sérstaklega ef menn væru tilí að fara í hópferð til þýskalands og hitta annann bmw klúbb. það væri bara mesta snilldin.

en í sambandi við b&l þá hef ég verið í sambandi við aðst. framkvæmdastjórann. hann gerði okkur t.d. kleift að opna þessa síðu með því að borga fyrir domainið og hýsinguna í 1 ár, og er ég og væntanlega þig allir honum mjög þakklátir fyrir það. einnig var ég að spurja hann útí afsláttadæmi af varahlutunum og hann ætlaði að kíkja á það, en ég þarf bara spurja hann aftur um það.

svo voru gstuning strákarnir að tala um að reyna að redda dynodegi hjá TB þannig að allir gætu látið aflmæla bílana og svona á einhverjum díl, en það er kannski orðið fullseint fyrir það núna. gerum það bara næsta sumar. þá væri líka sniðugt að reyna að redda einhverjum díl hjá þeim fyrir meðlimi.

svo er ég líka með eina hugmynd í kollinum um það að búa til einhverskonar meðlimakort fyrir bmweigendur sem eru meðlimir í klúbbnum til að sýna á þeim stöðum sem veita BMWKrafts félögum sérkjör.

ég held líka alveg að það sé hægt að fá b&l í meira samstarf við okkur ef við erum að fara að gera eitthvað spennandi. þessi maður sem ég talaði við er mjög liðlegur og almennilegur.

endilega ef þið hafið einhverjar hugmyndir í sambandi við eitthvað þá megiði endilega láta mig vita. við erum allir í þessu sem einn ekki satt ?

Author:  Haffi [ Fri 18. Oct 2002 08:39 ]
Post subject: 

wh0000h0000 það væri fínt að fara nokkrir saman til þýskalands þar sem að ég er nú að fara í 2 mán tripp um europe á mínum næsta sumar :)

Author:  bebecar [ Fri 18. Oct 2002 08:47 ]
Post subject: 

Þetta er náttúrulega mjög góð hugmynd og væri mikill heiður.

Ég veit ekki hvort það eru fleiri áhugamannaklúbbars starfandi hér á landi en þetta er allavega sá fyrsti sem ég heyri um. Þetta gæti orðið talsverð lyftistöng fyrir bíladellu á landsvísu og það er náttúrulega augljóst að maður mun leggja sig fram við að leita að BMW þegar maður skiptir um bíla - enda með DELLU.

Author:  Bjarki [ Fri 18. Oct 2002 09:31 ]
Post subject: 

Við verðum að fá svona BMW fríðindakort frá VISA eða EURO.
Kortið myndi svo gilda sem félagsskírteini.
Oft verið að auglýsa svona dæmi í erlendum BMW bílablöðum, kannski ekki raunhæfur möguleiki fyrir 50 manna klúbb á íslandi.

Author:  bebecar [ Fri 18. Oct 2002 09:51 ]
Post subject: 

Það væri nú asskoti kúl....
síðan er spurning hvort hægt væri að bjóða viðskiptavinum B&L á BMW í klúbbinn í gegnum B&L?

Þá fengjum við fleiri í klúbbinn, kannski ekki virka... en þá erum við komnir með hóp sem gæti haft nokkur áhrif.

Author:  Propane [ Fri 18. Oct 2002 10:03 ]
Post subject: 

Jamms, þetta hljómar mjög vel. :)

Author:  Djofullinn [ Fri 18. Oct 2002 10:08 ]
Post subject: 

Já það væri frábært að hitta meðlimi í þýskum BMW klúbbum, örugglega margir hverjir á MJÖG flottum bílum :D

Author:  GauiJul [ Fri 18. Oct 2002 10:10 ]
Post subject:  well well

Ég er bara Sammála þessu öllu þetta eru snilldar hugmyndir

Author:  Propane [ Fri 18. Oct 2002 10:29 ]
Post subject: 

Það þarf bara að passa það að við fáum bara afslátt af bmw-tengdum-hlutum hjá B&L. Svo það skrá sig ekki eitthvað fólk með Hyundai-rusl í klúbbinn.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/