bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Að kaupa bíl sem er á útlenskum númerum https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=19646 |
Page 1 of 1 |
Author: | Lindemann [ Sat 20. Jan 2007 17:15 ] |
Post subject: | Að kaupa bíl sem er á útlenskum númerum |
Nú vantar mig smá upplýsingar. Það er bíll sem ég er aðeins að hugsa um að kaupa til að nota í varahluti, en hann er á útlenskum númerum. Ég var að spá í hvort einhver hérna hefði reynslu af þessu, og þá hvaða kostnaði ég gæti lent í. Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég gæti keypt bílinn, hent plötunum af, og látið hann svo hverfa, þannig að hann væri hvergi skráður á íslandi. En ég vil alls ekki lenda í einhverju veseni eftirá. Þarf að borga fulla toll af svona bíl? Hann er ekki ökufær og stefnan er ekki að hann fari nokkurn tíman á götuna aftur. |
Author: | Lindemann [ Sat 20. Jan 2007 17:21 ] |
Post subject: | |
Gleymdi náttúrulega að taka það fram að viðkomandi bíll er á íslandi. |
Author: | JónP [ Mon 22. Jan 2007 15:55 ] |
Post subject: | |
Væri fínt að fá svar við þessum spurningum. Er í sömu hugleiðingum... |
Author: | srr [ Mon 22. Jan 2007 15:56 ] |
Post subject: | |
Getur ekki umferðarstofa svarað þessari spurningu ? |
Author: | amg [ Mon 22. Jan 2007 20:09 ] |
Post subject: | |
með ´rettu þarftu að tolla hann inní landið, semsagt borga vörugjald og virðisauka, það þarf samt ekki að vera mikið ef upphæðin a afsali er höfð temmilega þægileg. enn það er samt þónokkuð umstang i kringum þetta. getur pm-að á mig ef þú vilt einhverjar uppl um svona |
Author: | BjarkiHS [ Tue 23. Jan 2007 17:20 ] |
Post subject: | |
tætann og tilkynna hann svo stolinn eða týndan ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 23. Jan 2007 17:41 ] |
Post subject: | |
þeir sögðu í umferðarstofu að fyrst það ætti að rífa hann, þá gætum við bara tekið hann og þyrftum ekkert að skrá neitt eða borga neitt. Bara athuga hvort seljandi sé ekki örugglega eigandi að bílnum. En ef það á að skrá hann, þá þarf núverandi eigandi(útlendingur) að nýskrá bílinn og borga skráningargjöld. |
Author: | srr [ Tue 23. Jan 2007 17:55 ] |
Post subject: | |
Er þá hægt að flytja inn bíla með þessum máta, þeas bíla sem á að nota í parta? |
Author: | Lindemann [ Wed 24. Jan 2007 00:38 ] |
Post subject: | |
Nú bara veit ég ekki...ég talaði reyndar ekki sjálfur við þá, en þetta var það sem var sagt. Efast um samt að maður geti flutt inn bíl til að rífa og sleppa við tollinn ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |