bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 04:57

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Þarf álit hjá ykkur
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 10:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Ég þarf smá hjálp.

Þannig er mál með vexti að ég er að fara að flýja Svíþjóð, það er svo ógeðslega leiðinlegt hérna (plús að maður kemst ekki á kraftssamkomur eða bíladaga :wink: ) þannig að ég ætla að flytja heim til Íslands. Vandamálið snýr að mínum ástkæra bíl, ég hringdi í tollinn til að kanna hvað það myndi kosta fyrir mig að taka hann með og fékk þau svör að ég myndi þurfa að borga ca 300 þúsund krónur!!! Mér finnst það frekar mikið þar sem svona bíll fer á mest 450-500 hér úti og minn fer á mun minna. Það nefnilega eru nokkur atriði sem þarf að gera við til að fullnægja smámunaseminni hjá mér, og til að hann verði bara pottþéttur. Það er pakki upp á svona ca 200k. Ef ég sel hann hérna þá þýðir það að ég fæ bara ca. 300k fyrir hann. Svo langar mig eiginlega ekkert að skilja við hann. Svo náttúrulega fær maður ekki 540 á Íslandi fyrir 300k :wink: Allavega þarf ég nú að fara að ákveða hvort ég sel hann eða tek hann með. Hvað mynduð þið gera? Ég snýst í hringi hérna, get ekki ákveðið mig.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 11:22 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
er alveg efni fjárhag held ég, ef ég hefði efni á ví myndi ég gera það :) e34 v8 er bara cool


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 14:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Posts: 1905
Location: RVK
Var E34 540 framleiddur manual í miklu upplagi ? maður sér þá nánast aldrei þannig :roll:

Hann væri allavega eini sinnar tegundar á landinu held ég

_________________
E39 530D ///M Sport


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 14:28 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Posts: 844
Location: Akureyri
ertu ekki buinn ad eiga hann i 1 ar tharna?
Allavegana heyrdi eg einhversstadar ad ef madur aetti bil i heilt ar tha mundi madur bara borga flutningskostnad :S


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 14:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
xtract- wrote:
ertu ekki buinn ad eiga hann i 1 ar tharna?
Allavegana heyrdi eg einhversstadar ad ef madur aetti bil i heilt ar tha mundi madur bara borga flutningskostnad :S


Annað sagði tollarinn sem ég talaði við þegar ég hringdi og tékkaði á þessu. Þeir taka verðið á nýjum 540 í umboðinu og reikna svo vissa rýrnun per mánuð frá fyrsta skráningardegi. Svo náttúrulega hjálpar ekki að vera með 4L vél upp á tollaflokk að gera.

--Edit: Rýrnunin er aldrei reiknuð meir en 90%--

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 15:02 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
þetta er bullcrap. Þeir eiga ekki að reikna eitthvað verð sem þeir finna hér heima. Það er ekki sanngjarnt.

Þeir eiga að taka kaupverð úti og flutningskostnað og útfrá því. Auk þess sem það gilda sérstakar reglur eftir einhvern X langann tíma og þá færðu bílinn inn til landsins sem búslóð.

http://tollur.is/default.asp?cat_id=429
http://tollur.is/default.asp?cat_id=270

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 15:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Ef þeir hefðu tekið verðið hér úti þá hefði tollurinn orðið hærri. En ég kíki á þessa linka, takk fyrir þá.

Quote:
Viðkomandi hafi haft fasta búsetu erlendis í a.m.k. tólf síðustu mánuði áður en hann fluttist til landsins. Tollfrelsi samkvæmt þessum lið tekur ekki til ökutækja eða annarra vélknúinna farartækja.


http://tollur.is/default.asp?cat_id=270

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 16:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
ég var að tékka og já því miður þá eru þetta tölurnar af verðinu á bílnum.
287 þús kr :(

og þetta er samkvæmt reiknivél Kraftsins ;)

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 16:24 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
xtract- wrote:
ertu ekki buinn ad eiga hann i 1 ar tharna?
Allavegana heyrdi eg einhversstadar ad ef madur aetti bil i heilt ar tha mundi madur bara borga flutningskostnad :S
Þetta er ekki rétt

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 16:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Hvað með að selja vini þínum hérna heima bílinn áður en þú flytur heim á eðlilegu verði.

Flytja svo bílinn heim "fyrir hann" og borga toll af þeirri upphæð. Þú segir að þú fengir bara um 300k fyrir bílinn úti. Gera bara afsal upp á þá upphæð.

Þá ertu nú ekki að svindla neitt. Hugsanlega á gráu svæði samt.

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 16:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
JOGA wrote:
Hvað með að selja vini þínum hérna heima bílinn áður en þú flytur heim á eðlilegu verði.

Flytja svo bílinn heim "fyrir hann" og borga toll af þeirri upphæð. Þú segir að þú fengir bara um 300k fyrir bílinn úti. Gera bara afsal upp á þá upphæð.

Þá ertu nú ekki að svindla neitt. Hugsanlega á gráu svæði samt.


Lítið betra

Verð ökutækis í SEK: 30.000 SEK
Gengi á SEK: 10 ISK
Flutningskostnaður: 28.000 ISK
Stofn til Tolls og Virðisauka: 339.700 ISK


Tollur(45%): 152.865 ISK
Virðisauki(24,5%): 120.678 ISK
Samtals aðflutningsgjöld: 273.543 ISK


Stofn til aðflutningsgjalda: 339.700 ISK
Aðflutningsgjöld 273.543 ISK
Ýmis kostnaður við skráningu: 21.864 ISK
Samtals: 635.107 ISK

Þetta virðist vera no-win staða.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 17:11 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
þá er bara að flytja hann inn og borga. Ef hann hentar þér vel, þá er líklega ekki mikið úrval af bílum hér heima sem gera það betur.

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 18:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Posts: 2837
Location: Reykjavík
Hvað ertu búinn að búa lengi úti???
Því að mig minnir að það sé hægt að flytja bílinn inn sem búslóð ef þú ert búinn að búa lengur enn 5 ár úti og þá er það mun ódýrara apð koma með hann

_________________
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 18:41 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Ég skal setja þetta fram á einfaldan hátt, þú tekur að sjálfsögðu bílinn með þér hingað. Annars muntu pottþétt sjá eftir því að hafa ekki gert það :wink:

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Jan 2007 19:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
ömmudriver wrote:
Ég skal setja þetta fram á einfaldan hátt, þú tekur að sjálfsögðu bílinn með þér hingað. Annars muntu pottþétt sjá eftir því að hafa ekki gert það :wink:


Veit allt um eftirsjána, ég bara á ekki 300k extra. Nógu helvíti dýrt er að borga gáminn undir búslóðina (200-250k).

sh4rk wrote:
Hvað ertu búinn að búa lengi úti???
Því að mig minnir að það sé hægt að flytja bílinn inn sem búslóð ef þú ert búinn að búa lengur enn 5 ár úti og þá er það mun ódýrara apð koma með hannHvað ertu búinn að búa lengi úti???
Því að mig minnir að það sé hægt að flytja bílinn inn sem búslóð ef þú ert búinn að búa lengur enn 5 ár úti og þá er það mun ódýrara apð koma með hann


Flutti út 2004

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 18 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group